Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2009 3hjólað inn í sumarið ● fréttablaðið ● Hjólafestingar koma sér oft vel. Gaman getur verið að hafa reiðhjól með á ferð um land- ið og fást ýmiss konar reið- hjólafestingar á bíla. Hjá Stillingu fást Thule- reiðhjólafestingar af ýmsum stærðum og gerðum. Ramm- arnir eru framleiddir sam- kvæmt ISO-stöðlum, halda hjólunum vel föstum og eru með endurskinsmerkjum. Oftast er hægt að leggja fest- ingarnar saman til geymslu. Hægt er að fá festingar fyrir mismörg hjól en oft eru þær fyrir tvö upp í fjögur hjól. Festingarnar má ýmist setja á toppinn eða aftan og fram- an á bíla, allt eftir því hvað valið er. THULE ProRide 591 hefur hlotið einna bestu einkunnina af öllum hjóla- grindunum sem í boði eru hjá Stillingu. - hs Hjólin með í ferðalagið Morgunhressing verður á þremur stöðum í borginni nú í morgunsárið fyrir þátttakendur í átakinu Hjólað í vinnuna. Reist verða tjöld við Elliðaárvog, við brúna yfir Kringlumýrarbraut, Nauthólsvíkurmegin, og við gatnamót Sæbrautar og Kringlumýrar- brautar. Í tjöldunum býður Ávaxtabíllinn upp á léttar veitingar og Kaffitár upp á drykkjar- föng. Fólk frá hjólreiðasamtökum verður á staðn- um og reiðhjólaverslunin Örninn með snögga viðgerðarþjónustu. Þessi lúxus er í boði milli hálfátta og hálftíu í dag og svo aftur að viku liðinni. - gun Ráðherrar, borgarstjóri og aðrir aðstandendur átaksins er þeir brunuðu af stað. Kaffihúsatjöld fyrir hjólandi vegfarendur Í 80 til 85 prósentum tilvika ver hjálmur fólk fyrir alvar- legum höfuðáverkum, sam- kvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Lands- björg. Þetta er gott að hafa í huga, nú þegar hjólunum fer fjölgandi á götum úti. En það er ekki nóg að vera með bara einhvern hjálm á hausnum. Fyrir það fyrsta er mikilvægt að hjálmur sé af réttri stærð. Hann á að sitja beint ofan á höfðinu og það er gott að hafa þá reglu í huga að einn eða tveir fingur eiga að komast á milli höfuð- bands og hökunnar. Jafnframt er um að gera að hafa hjálm í skærum litum, til að vera sem mest áberandi í umferðinni. Ekki má líma merki né mála á hjálma. Það getur minnkað höggþol þeirra. - hhs Í réttri stærð og skærum litum Hjólafólk á öllum aldri ætti að taka sér þessa krakka til fyrir- myndar og nota hjálma.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.