Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 14
14 13. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Það var á þessum degi fyrir 28 árum sem til-
raun var gerð til að myrða Jóhannes Pál páfa II.
á Péturstorginu í Róm. Tilræðismaðurinn, Tyrkinn
Mehmet Ali Agca, var meðlimur í tyrknesku fas-
istahreyfingunni Gráu úlfarnir. Hann skaut páfa
nokkrum skotum í magann.
Mehmet þessum mistókst ætlunarverk sitt
og páfi lifði. Síðan hefur Mehmet eytt flest-
um dögum sínum á bak við lás og slá. Hann
sat í fangelsi á Ítalíu í nítján ár vegna tilræðis-
ins. Þangað heimsótti Jóhannes Páll hann jólin
1983 og ræddu þeir saman einslega í tuttugu
mínútur. Eftir afplánun á Ítalíu var Mehmet færð-
ur í fangelsi í Tyrklandi, þar sem hann afplánaði
dóm vegna morðs á ritstjóra vinstrisinnaðs dag-
blaðs. Hann var látinn laus 12. janúar 2006 en
var handtekinn aftur átta dögum síðar á þeim
grundvelli að ekki væri hægt að draga fangelsis-
dvöl hans á Ítalíu frá afplánun í Tyrklandi.
Jóhannes Páll páfi II. lifði lengi eftir tilræð-
ið. Hann lést 2. apríl árið 2005, á 85. aldurs-
ári. Hann hafði þá setið í stóli páfa í 27 ár, næst-
lengst allra páfa.
ÞETTA GERÐIST: 13. MAÍ 1981
Tilraun gerð til að myrða páfa
„Það er ekki það versta sem fyrir mann
getur komið að fá heilabilun. Það versta
sem fyrir mann getur komið er að fá
heilabilun og vera umkringdur fólki
sem veit ekki hvað það á að gera,“ segir
Svava Aradóttir, nýlega kjörinn fram-
kvæmdastjóri Félags áhugafólks og að-
standenda Alzheimerssjúklinga og ann-
arra skyldra sjúkdóma (FAAS). Ýmis-
legt er á döfinni á vettvangi félagsins.
Í kvöld klukkan 20 verður til að mynda
aðalfundur þess haldinn í húsnæði Vist-
or hf. í Hörgatúni 2 í Garðabæ. Hann er
opinn öllum áhugasömum.
„Þú ert sama manneskjan hvort sem
þú færð heilabilun eða ekki. Það er svo
mikilvægt að einhver haldi utan um þig,
svo þú týnist ekki í ferlinu. Það þarf
ekki að gerast,“ segir Svava.
Markmið FAAS er að gæta hags-
muna fólks með heilabilun og aðstand-
enda þeirra. Það er yfirgripsmikið verk-
efni sem snýr að mörgu, allt frá því að
berjast fyrir bættum aðbúnaði til út-
gáfu og dreifingar fræðsluefnis. Lögð
er áhersla á að auka þekkingu og skiln-
ing á heilabilunarsjúkdómum í þjóðfé-
laginu, bæði hjá þeim sem hlut eiga að
máli, almenningi og ekki síst stjórnvöld-
um. „Það hefur gífurlega margt gerst í
þessum málaflokki á tiltölulega fáum
árum. Ekki síst þegar litið er á þekk-
ingu og skilning á einkennum sjúk-
dómsins. En það má alltaf gera betur,“
segir Svava.
Eitt þeirra baráttumála sem nú er
unnið að á vettvangi samtakanna er að
úrræðum verði fjölgað og kerfið gert
sveigjanlegra. „Dagþjálfun fyrir fólk
með heilabilun þarf til dæmis að verða
algengari. Við rekum nú þrjár slíkar á
höfuðborgarsvæðinu. Fleiri en við bjóða
dagþjálfun, nýverið var til dæmis opnuð
á Selfossi fyrsta dagþjálfunin sem ein-
göngu er ætluð fólki með heilabilun
utan Reykjavíkursvæðisins. En það
komast ekki allir sem þurfa í dagþjálf-
un. Það þarf fleiri úrræði, meiri mögu-
leika og meira val.“
Hún nefnir að hvíldarinnlögnum
þurfi líka að fjölga. Mikið mæði á að-
standendum fólks með heilabilanir sem
oft eru sjálfir orðnir gamlir eða veik-
ir. „Það er ekki auðvelt að vita hvern-
ig á að sinna fólki sem ef til vill veit
ekki lengur hvernig á að nota einfalda
hluti, eins og glas. Það er nauðsynlegt
að þeir sem umgangast þessa sjúklinga
veiti þeim öryggi og haldi þeim saman
sem persónu, þrátt fyrir skerðinguna.
Þekking og persónuleg færni eru nauð-
synlegir þættir í fari umönnunaraðila
til að aðstoða fólk við að lifa merking-
arbæru lífi.“
Svava segir gríðarlega mikilvægt að
félag eins og FAAS sé sterkt, ekki síst
til að það geti með góðu móti hjálpað að-
standendum. Til þess að svo geti verið
þurfi sem flestir að skrá sig í félagið.
Lesa má allt um það á heimasíðunni
www.alzheimer.is. „Við erum alltaf til
ráðgjafar,“ segir Svava. „Fólki er frjálst
að hringja í okkur og leita eftir ráðgjöf
eða upplýsingum.“
holmfridur@frettabladid.is
AÐSTANDENDUR ALZHEIMERSJÚKLINGA: HALDA OPINN AÐALFUND Í DAG
Nauðsyn að fjölga úrræðum
SVAVA ARADÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI FAAS Það er ekki það versta sem fyrir mann getur
komið að fá heilabilun, segir Svava. Það versta sé að fá heilabilun og vera umkringdur fólki
sem veit ekki hvað það á að gera. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Eiginmaður minn , faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Magnús Finnbogason
frá Lágafelli, Gilsbakka 2, Hvolsvelli,
lést þriðjudaginn 5. maí. Útför hans verður gerð frá
Krosskirkju Austur-Landeyjum laugardaginn 16. maí
kl 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en
þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarsjóð
Guðrúnar á Lágafelli reikn.nr. 0182-15-370217 eða
Dvalarheimilið Kirkjuhvol, Hvolsvelli.
Auður Hermannsdóttir
Vilborg Magnúsdóttir Gunnar Hermannsson
Finnbogi Magnússon Þórey Pálsdóttir
Ragnhildur Magnúsdóttir Guðmundur Erlendsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Þyri Eydal
Gilsbakkavegi 7, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri að morgni föstudagsins
8. maí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 15. maí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir
að láta Sjúkrahús Akureyrar njóta þess.
Þyri Guðbjörg Björnsdóttir
Elinborg Björnsdóttir
Lars Erik Schilling
Anna María Schilling
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðný G. Ólafsdóttir (Lóa)
Hæðargarði 35,
er lést fimmtudaginn 7. maí, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 14. maí kl. 15.00.
Hilmar Jónsson Jóhanna Gunnlaugsdóttir
Reynir Jónsson Kristín Sigurðardóttir
Stefán Úlfarsson Bjarklind Guðlaugsdóttir
Guðný Hrönn Úlfarsdóttir Heimir Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Kurt S. Sveinsson,
Præstevejen 18, Fuglse, Danmark,
andaðist 6. maí 2009. Útför hefur farið fram.
Áslaug Guðjónsdóttir Sveinsson og fjölskylda.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Úlfar Jensson
hárskerameistari, Mánatúni 4, Reykjavík,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 5. maí. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðmunda Matthíasdóttir
Rúnar Mölk Margrét Garðars Mölk
Örn Úlfarsson Kristbjörg Björnsdóttir
Sigrún Úlfarsdóttir Gunnar Maríusson
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum auðsýnda samúð, hlýhug og
vinarþel við fráfall ástkærrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Hönnu Ingólfsdóttur
Johannessen
Reynimel 25A, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki kvennadeildar
21A á Landspítala fyrir einstaka umhyggju.
Matthías Johannessen
Haraldur Johannessen Brynhildur Ingimundardóttir
Ingólfur Johannessen
Matthías H. Johannessen Saga Ómarsdóttir
Kristján H. Johannessen Lísa Margrét Sigurðardóttir
Anna H. Johannessen
Svava H. Johannessen
og barnabarnabörn.
Móðir okkar,
Jóna S. Jónasdóttir
Akralandi 1,
andaðist á Landakotsspítala sunnudaginn 10. maí
síðastliðinn.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðni P. og Kristján Kristjánssynir.
MOSAIK
MERKISATBURÐIR
1776 Konungur gefur út tilskip-
un um póstferðir á Ís-
landi, en slíkar ferðir hefj-
ast þó ekki fyrr en 1782.
1934 Dettifossslagurinn á Siglu-
firði, sem er hörð viður-
eign verkfallsmanna og
andstæðinga þeirra vegna
afgreiðslubanns á skip
Eimskipafélags Íslands.
Hæstiréttur fellir dóm
gegn verkfallsmönnum
1937.
1947 Sauðárkrókur verður með
lögum kaupstaður.
1966 Íslenska ríkið kaupir
Skaftafell í Öræfum undir
þjóðgarð sem er opnaður
tveimur árum síðar. Jörðin
er eitt prósent alls Íslands.
2007 Manchester United fær
níunda bikar sinn í ensku
úrvalsdeildinni.
DENNIS RODMAN ER 48 ÁRA Í DAG
„Ég hef ekki séð föður minn í
meira en þrjátíu ár, svo hvers
er að sakna? Ég sé þetta
svona: Einhver maður kom
mér í heiminn. Það þýðir
ekki að ég eigi föður.“
Körfuboltahetjan Dennis Keith
Rodman átti dapra barnæsku.
Hann gekk undir ýmsum við-
urnefnum, meðal annars Ógn-
valdurinn Dennis og Ormur-
inn. Í NBA-deildinni spilaði
hann fyrir Detroit Pistons, San
Antonio Spurs, Chicago Bulls,
Los Angeles Lakers og Dallas
Mavericks.