Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 18
MARKAÐURINN 13. MAÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T A S K Ý R I N G
Verðhjöðnun er fyrirbæri sem Íslendingar þekkja lítið enda hefur viðfangs-efnið hér á landi frekar
verið verðbólga en verðhjöðnun í
gegnum tíðina. Þó hefur verið talað
um verðhjöðnun milli mánaða síð-
ustu vikur. Því er spurt: Hvað er
verðhjöðnun? Hvaða áhrif hefur
hún? Hvernig er hægt að berjast
gegn henni? Leitast verður við að
svara þessum spurningum í þess-
ari grein.
Verðhjöðnun er neikvæð verð-
bólga eða viðvarandi lækkun al-
menns verðlags. Hún myndast
þegar neytendur búast við að verð
fari lækkandi og halda þess vegna
að sér höndum í innkaupum. Verð-
hjöðnun dregur því mjög úr eft-
irspurn eftir vörum og þjónustu.
Langvarandi verðhjöðnun ber vott
um stöðnun í hagkerfinu og sýnir
að efnahagsástandið er erfitt.
Spár gera ráð fyrir því að
tímabundin verðhjöðnun verði
í íslensku efnahagslífi í byrj-
un næsta árs. Alþýðusambandið
spáði verðhjöðnun í hagspá sinni
strax í byrjun ársins án þess þó
að nefna nokkrar tölur. Hugsan-
legt er að verðhjöðnun verði áfram
inni í hagspánni þegar hún verð-
ur endurnýjuð í lok þessa mánað-
ar. Það er þó ekkert víst og á bara
eftir að koma í ljós. Þá gerir Seðla-
bankinn ráð fyrir verðhjöðnun í
nýjustu spá sinni.
FORSENDUR HAFA BREYST
Ingunn S. Þorsteinsdóttir, hag-
fræðingur hjá Alþýðusambandinu,
býst við að tólf mánaða vísitalan
fari rétt niður fyrir núll í byrjun
næsta árs. Hún bendir á að Seðla-
bankinn geri ráð fyrir að verð-
bólgan verði -0,3 prósent á öðrum
ársfjórðungi næsta árs og verð-
hjöðnunin standi í stuttan tíma,
kannski tvo til þrjá mánuði.
Alþýðusambandið er að vinna að
nýrri hagspá, sem verður kynnt
síðar í þessum mánuði. Ingunn
segir að forsendur hafi breyst
nokkuð frá því í síðustu hagspá.
„Við sjáum fram á aðeins verri
niðurstöðu heldur en við vorum
með þegar við gáfum út síðustu
spá. Við höfum þó ekki áætlað
nákvæmlega hversu mikið en við
erum á fullu að vinna í þessu,“
segir hún.
Staðan á erlendum mörkuðum
hefur breyst mikið frá því sem
gert var ráð fyrir í síðustu hag spá
ASÍ. Kreppan er dýpri á alþjóða-
mörkuðum. Ingunn segir að er-
lendar spár verði sífellt svartari.
„Svo hefur ýmislegt verið að tefj-
ast hjá okkur. Endurreisn bank-
anna hefur tekið lengri tíma og
krónan hefur ekki styrkst eins
hratt og mikið og við gerðum
okkur vonir um. Það helst í hend-
ur við endurreisn bankakerfisins
og aðra þætti í
efnahagslífinu. Í
fljótu bragði eru
það helst þessar
forsendur sem
hafa breyst ,“
segir hún.
LANGVARANDI
VERÐHJÖÐNUN
ÓLÍKLEG
Í yfirlýsingu pen-
ingastefnunefnd-
ar Seðlabankans
er talað um hraðari verðhjöðnun
en áður hafi verið gert ráð fyrir
og að nokkrar líkur séu á tíma-
bundinni verðhjöðnun á næsta
ári haldist gengi krónunnar til-
tölulega stöðugt. Seðlabankinn
telur langvarandi verðhjöðnun
hins vegar mjög ólíklega.
Ingunn segir að endurnýjuð
hagspá ASÍ verði ekki endilega á
sömu lund og hjá peningastefnu-
nefnd. Hagdeild ASÍ hafi verið
heldur svartsýnni en Seðlabankinn
í janúar. Hún þorir ekki að segja
hvernig þetta verði nú, hvort líkur
séu á meiri og langvinnari verð-
hjöðnun en ASÍ hafi áður talið.
Mestu skipti að koma hagkerf-
inu í gang á nýjan leik. Eftir því
sem kreppan verði dýpri og lengri
þeim mun erfiðara verði að koma
efnahagslífinu í gang á ný.
ÓÞÆGILEGUR MÖGULEIKI
Gylfi Magnússon viðskiptaráð-
herra vill ekki ganga svo langt að
segja að aukin hætta sé á verð-
hjöðnun eða að hún muni valda
verulegum vandræðum hér á landi
á næstunni en „þetta er eitthvað
sem menn hafa verulegar áhyggj-
ur af í stærri hagkerfum, sérstak-
lega Bandaríkjunum og reyndar
einhverjum Evrópulöndum og
Japan“, segir hann.
„Við höfum verið að kljást við
talsvert önnur vandamál, það er
að segja verðbólgu. Ef við næðum
að lenda okkar verðlagsmálum
þannig að næðist að koma vel
böndum á verðbólguna þá held ég
að það ætti að vera hægt án þess
að við lendum í verðhjöðnun svo
neinu nemur þó að þetta sé einn
af möguleikunum sem gæti vissu-
lega orðið óþægilegur. En ég vil
ekki ganga svo langt að segja að
verðhjöðnun sé verulegt áhyggju-
efni.“
Gylfi telur að helsta ráðið til að
kljást við verðhjöðnun sé að auka
peningamagn í umferð. Þó að við-
fangsefni Íslendinga séu kannski
verri en annars staðar þá hafi
Seðlabankinn þannig þokkaleg
tæki til að koma í veg fyrir að
verðhjöðnun geti orðið verulegt
vandamál.
Hann bendir á að verðtrygging
sé svo útbreidd á Íslandi að verð-
hjöðnun myndi að sumu leyti hafa
góð áhrif því að verðtryggð lán
myndu lækka, bæði höfuðstóll og
mánaðarlegar afborganir.
ENDURSPEGLAR LITLA TRÚ
„Verðtryggð lán myndu þá lækka
að krónutölu og einhver hluti af
hækkun undanfarinna mánaða
myndi ganga til baka. Sennilega
myndu margir túlka það sem já-
kvæða frétt þó að meira máli
skipti hvernig kaupmáttur þró-
ast,“ segir hann.
Gylfi telur varhugavert að nota
tækifærið þegar verðhjöðnun er í
efnahagskerfinu að afnema verð-
trygginguna. Verðtryggingin sé
langtíma fyrirbæri. Þó að verð-
lag lækki í nokkra mánuði þá skapi
það ekki forsendur til að gera
róttækar breytingar á verð-
tryggingunni.
„Þetta myndi
hins vegar
breyta
Verðhjöðnun lækkar verðtryggðu
1968 1978 1988 1998
V Í S I T A L A N E Y S L U V E R Ð S
Línan sýnir þróun vísitölu neysluverðs
frá 1968 fram á þetta ár.
Spár gera ráð fyrir að verðhjöðnun verði lík-
lega í íslensku efnahagslífi í byrjun næsta árs.
Verðhjöðnun þykir yfirleitt ekki af hinu góða
enda er langvarandi verðhjöðnun merki um
djúpa efnahagskreppu. Guðrún Helga Sigurðardóttir
skoðaði fyrirbærið verðhjöðnun og komst að
raun um að það jákvæðasta við verðhjöðnun
væri helst að verðtryggð lán myndu lækka.
Aðalfundur Bakkavör Group hf. verður haldinn
miðvikudaginn 20. maí nk. kl. 10:30 í höfuðstöðvum
félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík.
Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins:
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið ár.
Ársreikningur fyrir liðið starfsár, ásamt áritun
endurskoðanda, lagður fram til samþykktar.
Ákvörðun um greiðslu arðs og jöfnun taps fyrir síðastliðið
reikningsár.
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
Kosning stjórnar félagsins.
Kosning endurskoðunarfélags.
Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.
Heimild til kaupa á eigin hlutum. – Lagt er til að stjórn
félagsins verði veitt heimild til kaupa á allt að 10% á eigin
hlutum félagsins á næstu 18 mánuðum.
Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu
liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö
dögum fyrir aðalfund. Ennfremur verður hægt að nálgast
umrædd gögn á vefsíðu félagsins, www.bakkavor.com, frá
sama tíma.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera
komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir
aðalfund.
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í
stjórn félagsins skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að
minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir
eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Í tilkynningu skal
geta auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfangs,
upplýsinga um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og
hlutafjáreign í félaginu. Auk þess skal geta upplýsinga um
hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins
sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Stjórn
félagsins skal fara yfir framboðstilkynningar og gefa hlutaðeigandi
tækifæri, með sannanlegum hætti til þess að bæta úr göllum sem
eru á tilkynningunni innan tiltekins frests sem eigi má vera lengri en
24 klukkustundir. Ef ekki er bætt úr ágöllum á framboðstilkynningu
innan tiltekins frests, úrskurðar stjórn félagsins um gildi framboðs.
Unnt er að skjóta ákvörðun stjórnar félagsins til hluthafafundar sem
fer með endanlegt úrskurðarvald um gildi framboðs.
Upplýsingar um framboð til stjórnar félagsins skulu vera
aðgengilegar hluthöfum á skrifstofu félagsins eigi síðar en
tveimur dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundar-
daginn frá kl. 10:00 á fundarstað. Athygli er vakin á að
atkvæðisréttur miðast við hluthafaskrá að morgni 19. maí 2009.
Fundarstörf fara fram á ensku.
Stjórn Bakkavör Group hf.
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
Aðalfundur Bakkavör Group
Í VON UM LÆGRA VERÐ Spár gera ráð fyrir að verðhjöðnun mælist í byrjun næsta árs og standi í tvo til þrjá mánuði. Verðhjöðnun hefur í för me
dregst saman. Neytendur halda að sér höndum í von um að verð lækki enn frekar. Bagalegt er ef sú þróun dregst á langinn.