Fréttablaðið - 13.05.2009, Side 8
8 13. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
VINNUMARKAÐUR „Enginn þeirra er
með lögheimili í sveitarfélaginu
okkar og þar af leiðandi eiga þeir
engan rétt hjá okkur,“ segir Hjör-
dís Árnadóttir, félagsmálastjóri
Reykjanesbæjar.
Hún var spurð
um sjómennina
sjö sem búa í
Óskari RE-157,
sem liggur að
höfn í sveitar-
félaginu. Þeir
segjast pen-
ingalausir með
öllu og neita að
halda í næsta
túr fyrr en
útgerðarmaður-
inn borgar þeim
launin sem þeir
eiga inni.
„Ég veit ekk-
er t hver n ig
þ e i r r a m á l
standa, það er
orð gegn orði, en
þessi aðili sem
þeir hafa verið
hjá, þeim stend-
ur til boða að vinna hjá honum
áfram. Þannig að þetta er þeirra
val,“ segir Hjördís.
Sæmundur Árelíusson útgerðar-
maður hafi haft samband við skrif-
stofuna og látið vita að mennirn-
ir gætu fengið vinnu hjá honum.
Hjördís ætlar „ekkert að setja
mig meira inn í það. […] Það er
allavega ekki sveitarfélagsins að
rannsaka það hvort brotið hafi
verið á þeim.“
En vísar skrifstofan þeim áfram
í kerfinu? „Nei, við gerum ekki
annað en að benda þeim á að þeir
eiga ekki rétt hjá okkur. Þetta eru
fullorðnir karlmenn.“
Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasam-
bandsins, segir mennina ekki fá
sérstaka aðstoð hjá þeim, aðra
en að lögmaður sé að afla gagna
í þeirra þágu. Að öðru leyti sé
litið á málið sem venjulegt gjald-
þrotamál. „Við getum ekki haldið
þeim uppi, það er útilokað,“ segir
Hólmgeir. Lögmaðurinn hafi þó
eitthvað leitað að húsnæði.
Anna Poploska, túlkur mann-
anna, segir að útgerðarmaðurinn
neiti að afhenda þeim skattkortin
sín. Hann hafi ekki skilað skatt-
skýrslu þeirra og afskráð alla
nema tvo af heimili sínu, þar sem
þeir höfðu áður lögheimili. Hinir
hafi því engan rétt á landinu, hvað
þá dvalarleyfi.
Sæmundur Árelíusson segist
síðast hafa sótt um dvalarleyfi
fyrir mennina í september. „Þeir
hafa verið hér síðan 2006 og ég
get ekki sagt til um hvernig þeir
urðu ólöglegir,“ segir Sæmundur.
„Minn misskilningur gæti verið
sá að ég taldi að þegar menn væru
skráðir á bátinn [hjá Tollstjóra],
þá væru þeir með dvalarleyfi,“
segir hann. Allt hafi verið gefið
upp til skatts. „En ég vil borga
þessum mönnum og búið,“ segir
Sæmundur Árelíusson. Hann
muni gera upp við þá á hádegi í
dag, enda hafi alltaf staðið til að
greiða þeim. Skattkortin muni
fylgja. Sæmundur vonast svo til
að fara með nýja áhöfn á rækju-
veiðar um helgina.
klemens@frettabladid.is
Sjómenn án
réttinda í
Reykjanesbæ
Félagsmálastjóri segist enga skyldu hafa til að að-
stoða sjómenn á Óskari RE-157. Túlkur þeirra segir
þá ekki með dvalarleyfi og þeir fái ekki skattkort
sín. Útgerðarmaðurinn ætlar að borga á morgun.
HÓLMGEIR
JÓNSSON
HJÖRDÍS
ÁRNADÓTTIR
Jóhannes, annar eigandi Gleraugna-
búðarinnar á Laugavegi 36, hafði
samband til að koma því á framfæri
að búið sé að breyta versluninni í lág-
vöruverðsverslun fyrir gleraugu og
linsur. „Við bjóðum góðar umgjarðir
á aðeins þrenns konar verði, 9.900,
14.900 og 19.900 kr. Glerin eru á
lægsta mögulega verði, parið af venju-
legum glerjum er á kr. 14.300 með
glampavörn. Margskipt gler bjóðum
við á 41.000, sem er með því lægsta
sem gerist. Linsurnar hjá okkur eru
líka á lægsta mögulega verði, t.d.
kostar pakki af daglinsum aðeins kr.
2.800.“
Jóhannes segir að hægt sé að bjóða
þetta lága verð vegna þess að verslun-
in sé aðili af stærri alþjóðlegri keðju
verslana og vegna þess að yfirbygg-
ingin sé lítil.
Að öðru. Reiðhjóla- og barnavöru-
markaðurinn er nýtt fyrirbæri sem
er til húsa að Holtasmára 1 í Kópa-
vogi. Gríðarvel tókst til um síðustu
helgi og því á að endurtaka leikinn nú
um næstu helgi. Á markaðinum gefst
fólki kostur á að kaupa og selja reið-
hjól (fullorðins jafnt sem barnahjól)
og barnavörur eins og kerrur, barna-
vagna, barnahúsgögn o.s.frv. Tekið
verður á móti vörum í umboðssölu alla
vikuna á milli kl. 17-20, en markaður-
inn sjálfur fer svo fram um helgina kl.
10-17 á laugardaginn og 13-17 á sunnu-
daginn.
Neytendur: Ný lágvöruverðsverslun og nýr umboðsmarkaður
Ódýr gleraugu og markaður með barnavöru
GLERAUGU Á HAGSTÆÐU VERÐI Eigandi Gler-
augnabúðarinnar á Laugavegi segir verslunina nú
vera lágvöruverðsverslun fyrir gleraugu og linsur.
Umgjarðir kosti frá 9.900 krónum til 19.900.
ÓSKAR RE-157 Útgerðarmaðurinn segist ætla að gera upp við pólsku áhöfnina í dag.
Svo vill hann sigla á rækjuveiðar með nýrri áhöfn. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Auglýsingasími
– Mest lesið
1 Í hvaða götu var árás gerð á
íslenska friðargæsluliða í Kabúl
í Afganistan árið 2004?
2 Hvað heitir stúlknasveitin
sem Hara-systurnar Rakel
og Hildur Magnúsdætur eru
hættar í?
3 Hver skoraði sigurmark
Keflavíkur gegn FH á mánu-
dagskvöld?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
VEISTU SVARIÐ?