Fréttablaðið - 13.05.2009, Side 15

Fréttablaðið - 13.05.2009, Side 15
6 Sögurnar... tölurnar... fólkið... Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 H E L S T Í Ú T L Ö N D U M Miðvikudagur 13. maí 2009 – 19. tölublað – 5. árgangur Olíuverðið hækkar | Heims- markaðsverð á hráolíu fór í tæpa 60 dali á tunnu fyrri part dags í gær. Það hefur ekki verið hærra síðan í nóvember í fyrra. Hæst fór olíuverðið í rúma 147 dali á tunnu í júlí í fyrra. Öldungur tapar fé | Berkshire Hathaway, fjárfestingarfélagið sem Warren Buffett hefur stýrt í rúm fjörutíu ár, tapaði 1,5 millj- örðum Bandaríkjadala á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta jafngild- ir tæpum 190 milljörðum króna. Fyrirtækið hefur ekki skilað tapi síðan 2001. Tapa vegna Íslands | Þrettán fasteignasjóðir í Bretlandi töp- uðu 195 milljónum punda, jafn- virði 37 milljörðum króna, vegna hruns íslensku bankanna í fyrra- haust, samkvæmt úttekt breska blaðsins Daily Mail um stöðu sjóð- anna. Kreppa í Lettlandi | Hagvöxtur í Lettlandi dróst saman um átján prósent á fyrsta ársfjórðungi, samkvæmt tölum sem birtar voru í fyrradag. Þetta er þó ekki jafn slæmt og í kreppunni sem reið yfir landið í byrjun tíunda ára- tugar síðustu aldar. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Margir smærri stofnfjáreigenda Byrs sparisjóðs eru að sligast vegna skuldabagga í kjölfar stofn- fjáraukningar sparisjóðsins í desember 2007 og horfa örvæntingarfullir fram á veginn. Sumir sjá fátt annað fram undan en gjaldþrot. Gjalddagi er í næsta mánuði á lánum sem stofn- fjáreigendur Byrs tóku við stofnfjáraukningu sparisjóðsins í desember 2007. Aukningin hljóð- aði upp á 26,2 milljarða króna og var fjármögnuð að stærstum hluta af Glitni (nú Íslandsbanka) með veði í stofnfjárbréfum stofnfjáreigenda. Stofnfjáreigendur Byrs, sem bæði koma frá Sparisjóði Hafnarfjarðar, Sparisjóði vélstjóra og Sparisjóði Kópavogs, eru 1.500 talsins og tóku flestir lán fyrir nýju stofnfé. Hluti stofnfjár- eigenda tók lán í íslenskum krónum, sumir tóku blöndu myntkörfu lána á meðan aðrir tóku ein- göngu erlend lán. Þeir sem áttu þess kost að fjármagna stofnfjár- aukninguna eftir öðrum leiðum, svo sem með veði í fasteignum sínum, standa betur. Þeir eru engu að síður óttaslegnir, samkvæmt heimildum Markað- arins. Óvíst er með verðmæti eignarhluta stofn- fjáreigenda Byrs í dag. Stærstu stofnfjáreigendurnir, svo sem Magnús Ármann, þá umsvifamesti stofnfjáreigandi Byrs, og aðrir honum tengdir beint og óbeint, fjármögn- uðu stofnfjáraukninguna að öllu leyti með lánum og geymdu skuldbindingar sínar í eignarhaldsfé- lögum. Smærri stofnfjáreigendur fjármögnuðu kaupin í eigin nafni og fjölskyldu sinnar og falla lánin á viðkomandi á gjaldaga. Byr greiddi stofnfjáreigendum 13,5 milljarða króna arð vorið 2008 vegna góðrar afkomu spari- sjóðsins árið áður og nýttist arðgreiðslan til niður- greiðslu á lánunum. Þeir stofnfjáreigendur sem Markaðurinn hefur rætt við vita ekki hvað tekur við. Þeir sem fjármögnuðu aukninguna með láni Glitnis á sínum tíma standa verst og óttast nokkrir að Íslandsbanki, sem tók yfir innlenda starfsemi Glitnis í fyrrahaust, taki Byrs-hlutina með veðkalli og skilji stofnfjáreigendur eftir með skuldabagga á bakinu. Markaðurinn hefur rætt við stofnfjár- eiganda sem tók tuttugu milljóna króna lán vegna stofnfjáraukningarinnar. Þótt arðgreiðslan hafi verið nýtt til að greiða inn á það fyrir ári hljóðar skuldin í dag upp á 28 milljónir króna. „Það eru margir uggandi um sína stöðu,“ segir Sveinn Margeirsson, einn þeirra sem fer fyrir hópi stofnfjáreigenda og annarra velunnara sparisjóðs- ins sem ákveðið hefur að bjóða sig fram til for- ystustarfa í sparisjóðnum á aðalfundi hans í dag. Í hópnum eru meðal annars Hörður Arnarson, fyrr- verandi forstjóri Marel Food Systems. Framboðið á rætur sínar að rekja til rannsóknar Sveins og eiginkonu hans á viðskiptum með stofn- fjárhluti í Byr eftir hrun bankakerfisins og afkomu sjóðsins í fyrra. „Þetta er fyrst og fremst réttlætis- mál enda margir stofnfjáreigenda eldra fólk sem var platað til að skuldsetja sig á sínum tíma,“ segir Sveinn. Stofnfjáreigendur Byrs óttast gjaldþrot Stór hluti stofnfjáreigenda Byrs veit ekki hvað tekur við á erfiðum gjalddaga á tugmilljarðaláni við Íslandsbanka í næsta mánuði. Margir eru ófærir um að borga. Græna prentsmiðjan VIÐSKIPTI Evru posi – aukin þjónusta við erlenda ferðamenn Við bjóðum viðskiptavinum okkar sérstaka posa fyrir erlend MasterCard og VISA kort. Þannig geta þeir selt vöru eða þjónustu til erlendra ferðamanna í evrum og valið um að fá uppgjörið í evrum eða íslenskum krónum. Velta í dagvöruverslun jókst um 1,1 prósent á föstu verðlagi í apríl miðað við sama mánuð í fyrra og um tæp 23 prósent á breytilegu verðlagi. Ekki hefur orðið raun- aukning í veltu dagvöruverslun- ar á milli ára síðan um mitt síð- asta ár. Ástæðuna fyrir aukningunni nú má rekja til þess að í ár voru páskarnir í apríl en í fyrra voru þeir í mars, samkvæmt upplýsing- um frá Rannsóknasetri verslun- arinnar. Ef veltuvísitala dagvöruversl- unar er leiðrétt fyrir árstíða- bundnum þáttum varð samdrátt- ur í veltu um 5,9 prósent milli ára. Verð á dagvöru lækkaði um 0,9 prósent frá mars til apríl. Verð á dagvöru var hins vegar 21,4 pró- sentum hærra í apríl en á sama tíma í fyrra. - ghs Íslenska fyrirtækið SecurStore ætlar að taka þátt í sýningunni Channel Expo 20.-21. maí. Alex- ander Eiríksson framkvæmda- stjóri segir fyrirtækið taka þátt í sýningunni til að afla sér sam- starfsaðila í Bretlandi. SecurStore býður fyrirtækjum afritun gagna yfir Netið með sérstakri tækni. Channel Expo er eina sýningin í Bretlandi sem endursöluaðilar sækja til að leita sér að samstarfs- aðila. Endursöluaðilar SecurStore þar er nú um þrjátíu. - ghs Leitar fleiri samstarfsaðila Vikuleg vefráð Að fá mikið fyrir lítið á Netinu Afleiðingar verðhjöðnunar Lækka verðtryggðu lánin 4-5 Joseph Stiglitz Vor uppvakninganna 6 Velta jókst í verslun

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.