Fréttablaðið - 13.05.2009, Síða 42

Fréttablaðið - 13.05.2009, Síða 42
22 13. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR FÓTBOLTI „Eigum við ekki að segja að ég hafi verið á pari miðað við standið á mér enda er ég kominn í virkilega gott form. Það var reynd- ar óþolandi að fá þetta mark á sig og tapa. Það er samt ljúfsárt að fá smá viðurkenningu fyrir frammi- stöðuna,“ sagði Daði Lárusson, leikmaður 1. umferðar Pepsi-deild- arinnar hjá Fréttablaðinu. Daði lenti í erfiðum bakmeiðsl- um á síðustu leiktíð. Missti stöðu sína til Gunnars Sigurðssonar og kom ekkert við sögu seinni hluta mótsins. Margir héldu að Daði væri hreinlega hættur en svo er nú alls ekki. „Ég er kannski ekki stiginn upp frá dauðum heldur meira úr meiðslum. Ég er genginn í end- urnýjun lífdaga. Maður verður að hugsa vel um skrokkinn á sér á efri árum til þess að halda sér í formi,“ sagði Daði sem er 35 ára gamall. Hann fór í bakinu í fyrra og í kjölfarið komu bólgur í maga- festingarnar. Það er ekkert sem háir Daða lengur og hann segist eiga nóg eftir. „Eigum við ekki að segja að læknavísindin muni halda mér gangandi til fertugs. Ég er ekkert á þeim buxunum að hætta enda hef ég ákaflega gaman af því að spila með FH-liðinu. Ég er orðinn fullkomlega heill heilsu og í flottu formi. Ég ætla að sýna mitt rétta andlit í sumar og næstu sumur líka. Stefnan er að spila til fertugs. Ég get ekki hugsað mér að hætta eins og staðan er í dag,“ sagði Daði en hvernig var sú nýja reynsla að þurfa að sitja á bekknum í fyrra? „Það lenda flestir leikmenn í svona upplifun og þá koðna menn annaðhvort undan álaginu eða koma sterkir til baka. Ég valdi seinni kostinn. Ég hafði ekki áhuga á að enda ferilinn á bekknum. Ég þarf samt að vera vel á tánum enda er góður markvörður á bekknum sem veit- ir mér verðuga samkeppni,“ sagði Daði um Gunnar Sigurðsson sem leysti hann svo vel af hólmi á síð- ustu leiktíð. Daði hefur undanfarin ár verið viðloðandi landsliðið. Lengstum setið á bekknum en þó fengið tæki- færi líka. Hann missti sæti sitt þar í fyrra rétt eins og hjá FH. Í ljósi þess að hann ætlar að spila næstu árin mun hann þá gera aðra atlögu að landsliðssæti? „Ég held að Óli sé kominn með sitt framtíðarplan og ég ætla ekk- ert að fara að trufla það fyrir honum. Ég hugsa bara um að standa mig fyrir FH og það er nóg álag í því fyrir miðaldra mann. Það er nóg fyrir mann á þessum aldri að spila bara fyrir eitt lið,“ sagð Daði léttur og í fínu formi. henry@frettabladid.is Ég ætla mér að spila til fertugs Daði Lárusson, markvörður FH, er leikmaður 1. umferðar Pepsi-deildar karla hjá Fréttablaðinu. Daði átti virkilega góðan leik gegn Keflavík og sá til þess að tíu FH-ingar fengu aðeins á sig eitt mark í leiknum. Daði hvarf okkur sjónum síðasta sumar en er kominn aftur á fullt og segist ekki nálgast endalok ferilsins. KOMINN AFTUR Daði Lárusson átti flotta endurkomu á fótboltavöllinn í skítaveðri í Keflavík á mánudaginn var. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið. Á DVD14. MAÍ i i r r f ir j i . í t tt rt i í l . r/s ti . FULLT AF AUKAVINNINGUM: TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR, GOS OG MARGT FLEIRA! SENDU SMS EST YES Á NÚMERIÐ 1900 AÐALVINNINGUR ER DVD MYNDIN 9. HVER VINNUR! FÓTBOLTI Valur og Breiðablik mætast klukkan 19.15 í kvöld í toppslag Pepsi-deildar kvenna á Vodafone-vellinum að Hlíðar- enda. Þessum tveimur liðum var spáð efstu sætunum og ef marka má þróun undanfarinna ára þá gæti þetta verið einn af lykilleikj- um sumarsins. Síðustu fimm ár hefur það lið orðið Íslandsmeistari sem hefur unnið fyrstu viðureign Vals og Breiðabliks í deildinni. Valur vann 2004 og 2006-2008 en Breiðablik vann fyrsta leik lið- anna sumarið 2005. Breiðablik vann 6-1 sigur á Lengjubikarmeisturum Þór/KA í fyrsta leik og er til alls líklegt í sumar. Þetta verður því stórt próf fyrir Íslandsmeistara síðustu þriggja ára sem hafa unnið alla 9 leiki sína á Vodafone-vellinum, þar á meðal 9-3 sigur á Blikum í mikill markaveislu í fyrra. - óój Stórleikur Vals og Breiðabliks: Endurtaka þær markaveisluna? TÓLF MÖRK Það var mikið skorað í leik Vals og Blika í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA KÖRFUBOLTI Signý Hermannsdótt- ir, fyrirliði íslenska landsliðsins í körfubolta og besti leikmaður síðasta tímabils, hefur ákveðið að spila með KR í Iceland Express- deild kvenna næsta vetur. „Það var kominn tími fyrir mig að breyta til. KR hentar mér vel. Ég þekki þessar stelpur mjög vel og ég held að ég sé ágætis viðbót inn í þennan hóp,“ sagði Signý sem fer í háskólann næsta vetur. „Það voru engin önnur lið inni í myndinni og þetta var bara val á milli KR og Vals. Þetta er ekki ákvörð- un sem ég tek létt og ég var búin að hugsa mjög mikið um hvað ég ætti að gera,“ segir Signý en hún á enn eftir að verða Íslands- meistari á ferlinum og það gæti breyst næsta vetur enda K R-liðið komið með mjög breiðan og öflugan hóp. Signý segir það hafa verið erfitt að yfirgefa Val. „Ég kveð allt góða fólkið í Val með sökn- uði en þessi ákvörðun var algjörlega tekin út frá mínum for- sendum. Ég vil óska þeim alls hins besta,“ sagði Signý sem hefur leik- ið með Val eða ÍS allan sinn feril hér á landi. Hún er uppalin í Val en fór í ÍS þegar Valsmenn lögðu niður kvennaliðið sitt frá 1996 til 2007. Signý er gríðarlegur styrkur fyrir lið KR sem varð bikarmeist- ari í vetur og endaði í 2. sæti á Íslandsmótinu. Signý var kosin leikmaður ársins í lokahófinu en hún var með 19,5 stig, 14,1 frákast, 4,1 stoðsend- ingu og 5,8 varin skot að meðaltali í leik með Val í vetur. Signý hefur verið fyr- irliði íslenska kvenna- landsliðsins undanfar- in fjögur ár og hefur alls spilað 53 A-lands- leiki fyrir Íslands hönd. Hún er núna í miðjum undirbún- ingi fyrir Smá- þjóðaleikana á Kýpur. - óój Landsliðsfyrirliðinn skiptir um félag í kvennakörfunni: Signý er farin í KR MIKILL LIÐS- STYRKUR Signý Hermannsdóttir er besti miðherji landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guð- jónsson og félagar í Burnley tryggðu sér í gærkvöldi sæti í úrslitaleiknum um sæti í ensku úrvalsdeildinni með því að vinna Reading, 2-0, á útivelli. Burnley vann 1-0 sigur í fyrri leiknum á sínum heimavelli og vann því 3-0 samanlagt. Bæði mörk liðsins í gær voru stór- glæsleg en þau gerðu Martin Pat- erson og Steven Thompson. Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á sem varamaður hjá Burnley á 71. mínútu leiksins. Brynjar Björn Gunnarsson lék allan leik- inn með Reading. Burnley mætir Sheffield United í úrslitaleiknum sem fram fer 25. maí næstkomandi. - óój Enska b-deildin í fótbolta: Burnley komst á Wembley Á WEMBLEY Jóhannes Karl Guðjónsson ásamt stjóranum Owen Coyle. NORDICPHOTOS/GETTY sport@frettabladid.is Fyrsta umferðin í Pepsi-deild karla er afstaðin en hún fór fram við misjafnar aðstæður. Fréttablaðið mun sem fyrr velja leikmann hverrar umferðar ásamt liði umferðarinnar. Þrjú lið eiga tvo fulltrúa í liði umferðarinnar að þessu sinni - KR, Keflavík og nýliðar Stjörnunnar sem komu skemmtilega á óvart gegn Grindavík. Hólmar Örn tryggði Keflavík sigur á FH og nýi miðvörðurinn, Alen Sutej, leit vel út í fyrsta leik og á eftir að reynast Keflavík drjúgur ef að líkum lætur. Jónas Guðni og Björgólfur kláruðu Fjölni og í liðinu er einnig ungur Fjölnis- maður, Aron Jóhanns- son, sem sló í gegn með mögnuðum leik. Hann fékk reyndar glórulaust rautt spjald undir lok leiksins. Annar ungur strákur, Tómas Þorsteinsson, var flottur með Fylki gegn Val. Heiðar Geir spilaði stutt með Fram en breytti samt algjörlega gangi leiksins gegn ÍBV og var valinn maður leiksins. > Atvik umferðarinnar Þegar Jóhannes Valgeirsson ákveður að fara eftir tilmælum aðstoðardómara, sem var í verri stöðu en hann sjálfur, og rekur Aron Jóhannsson Fjölnismann af velli. Skelfilegur dómur hjá Jóhannesi sem hefur þess utan oft mætt til leiks í betra líkamlegu formi. > Bestu ummælin „Þeir eru með dýrasta lið Íslandssög- unnar og auðvitað eiga þeir að gera betur,” sagði Valur Fannar Gíslason, fyrirliði Fylkis í viðtali við Stöð 2 Sport. Hann sendi frá sér yfirlýsingu í gær og tók ummæli sín til baka. PEPSI-DEILD KARLA: ÚRVALSLIÐ 1. UMFERÐAR Nýliðar Stjörnunnar með tvo í liðinu TÖLURNAR TALA Flest skot: KR 18. Flest skot á mark: KR 11. Fæst skot: Grindavík 7. Hæsta meðaleink.: Stjarnan 6,36. Lægsta meðaleink.: Grindavík 4,23. Grófasta liðið: Þróttur, KR og FH brutu 19 sinnum af sér. Prúðasta liðið: Fram 8 brot. Flestir áhorfendur: 1899, á leik KR og Fjölnis. Fæstir áhorfendur: 753, á leik Fram og ÍBV. Áhorfendur alls: 6970 (1161). Besti dómarinn: Kristinn Jakobsson Fékk 7 í eink- unn fyrir leik Keflavíkur og FH. Daði Lárusson Alen Sutej Daníel Laxdal Arnór Sveinn Aðalsteinsson Jónas Guðni Sævarsson Birgir Birgisson Tómas Þorsteinsson Hólmar Örn Rúnarsson Aron Jóhannsson Heiðar Geir JúlíussonBjörgólfur Takefusa 3-5-2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.