Fréttablaðið - 13.05.2009, Blaðsíða 46
26 13. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. íþrótt, 6. fíngerð líkamshár, 8.
töffari, 9. hluti verkfæris, 11. fyrirtæki,
12. skopleikrit, 14. starfsaðferð, 16.
grískur bókstafur, 17. skörp brún, 18.
kerald, 20. gangflötur, 21. glufa.
LÓÐRÉTT
1. skref, 3. einnig, 4. nagdýr, 5. ögn, 7.
eilífð, 10. frjó, 13. gerast, 15. liðormur,
16. krot, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. golf, 6. ló, 8. gæi, 9. orf,
11. ms, 12. farsi, 14. tækni, 16. pí, 17.
egg, 18. áma, 20. il, 21. rifa.
LÓÐRÉTT: 1. klof, 3. og, 4. læmingi,
5. fis, 7. óratími, 10. fræ, 13. ske, 15.
igla, 16. pár, 19. af.
„Hér hafa óskaplega mörg mál verið rædd. Stærstu
málin eru höfundarréttamál fyrir listflytjendur,“
segir Randver Þorláksson formaður Félags
íslenskra leikara.
Randver er væntanlegur til landsins í dag frá
Varsjá þar sem hann hefur verið undanfarna daga
og sótt fundi hjá Alþjóða leikarasamtökunum. Efst
á baugi var umræða um hvernig ber að höndla nið-
urhal af Netinu og ýmsa sjóræningjastarfsemi sem
þar viðgengst. „Það er ekkert við þetta ráðið. Tækn-
in er orðin svo mikil. En menn eru að leita leiða til
að fá eitthvað fyrir þetta,“ segir Randver og vísar
til þess að ef höfundarréttur er fótum troðinn komi
það fyrr en síðar niður á öllu því sem heitir listræn
sköpun. Þá var á fundunum rædd verktakastarfsemi
í listum og staða listamanna almennt hvað varðar
tryggingar.
Varsjá er stór og mikil að sögn Randvers sem ekki
hafði gert sér grein fyrir því að borgin var lögð ger-
samlega í rúst í stríðinu. En hefur nú verið byggð
upp og er orðin býsna vestræn. „Mér finnst hún ekki
beint falleg. Kommabragurinn er farinn. Pólverj-
ar eru afskaplega gott fólk. Mér hefur ekki leiðst
hérna. Hef farið í óperuna og svona,“ segir Randver.
- jbg
Randver Þorláks í Varsjá
Draumateymið Örlygur Smári
og Páll Óskar Hjálmtýsson eru
mennirnir á bak við lagið sem
þær Anna Hlín Seculic og Hrafna
Hanna Elísa Herbertsdóttir flytja
á úrslitakvöldi Idol-stjörnuleit-
ar á föstudagskvöldið. Þá kemur
í ljós hvor þeirra fer heim með
tvær milljónir íslenskra króna.
Tvíeykið Örlygur og Páll eru
gulltrygging fyrir smelli því
meðal laga sem hafa náð hæstu
hæðum á vinsældalistum Íslands
má nefna Allt fyrir ástina, Inter-
national, Betra líf, að ógleymdum
Euro vision-slagaranum This is my
life. Örlygur semur lagið en Páll
Óskar sér um textagerðina.
Örlygur Smári sagði lagið, sem
heitir Ég fer alla leið, vera hresst
popplag. Enda ekki við öðru að
búast úr smiðju tónskáldsins.
„Ekki fer ég að skila af mér ein-
hverri ballöðu í svona keppni,“
segir Örlygur og bætir því við
að það reyni töluvert á hæfileika
keppendanna tveggja. „Þetta er
ekki neitt miðjumoð, ég fékk Palla
til að syngja demóið því ég treysti
mér ekki til þess sjálfur,“ segir
Örlygur sem hefur ekki hugmynd
um af hverju lögin hans njóti
svona mikilla vinsælda. „Ætli það
sé ekki bara af því ég hef gaman
af þessu sjálfur, maður er alla-
vega bara þakklátur fyrir að fólk
vilji hlusta á það sem maður er að
gera.“
Tónskáldið segist treysta þeim
Önnu Hlín og Hröfnu fyllilega
til að flytja lagið sómasamlega
og koma því til skila á föstudags-
kvöldið. „Þegar þú ert búinn að
fara í gegnum svona síu eins og
Idolið áttu alveg að ráða við það.“
- fgg
Örlygur Smári og Páll Óskar semja Idol-lag
MAGNAÐ TVÍEYKI Þeir Páll Óskar og Örlygur Smári hafa reynst vera ansi magnað tví-
eyki en mörg af vinsælustu lögum síðustu tveggja ára koma einmitt úr smiðju þeirra.
RANDVER ÞORLÁKS Lætur vel af sér í Varsjá en þar hitti hann
kollega sína í leiklistargeiranum sem ræddu meðal annars
höfundarréttarmál listflytjenda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Lára Ómarsdóttir fréttamaður var
um hríð atvinnulaus eftir að hafa
flengst á milli fjölmiðla: Stöð 2 með
viðkomu á Iceland Express, Blaðinu
og Mogganum, var þá atvinnulaus
um hríð áður en hún hóf störf
hjá ÍNN og þá RÚV. Lára sat ekki
auðum höndum þann tíma sem
atvinnuleysið varði heldur fór um
og hélt fyrirlestra vítt og breitt með
kreppuráð í farteskinu.
Þessi ráð tók hún þá
saman á bók sem er að
streyma úr prentsmiðju
núna og er væntanleg í
búðir eftir helgi. Bókin
heitir Hagsýni og ham-
ingja og er það Veröld
sem gefur út.
Geir Ólafsson söngvari er þegar
farinn að undirbúa sig fyrir Þjóð-
hátíð í Eyjum þar sem hann mun
troða upp. Geir leggur upp úr
því að ferðast með stæl og hann
hefur nú gengið frá því að fara til
Eyja í einkaþotu, eða Cessnu 421
– tveggja hreyfla skrúfu-
þotu. Flugmaðurinn, Birgir
Björgvinsson, mun fara
með söngvarann fram
og til baka, en í Eyjum
bíður Geirs einkabílstjóri
sem fer með hann á
tjaldstæðið og til baka
eftir tónleikana.
Áhrif brottreksturs Davíðs Oddsson-
ar úr stóli seðlabankastjóra og fall
ríkisstjórnarinnar um mánaðamótin
janúar/febrúar hefur haft ýmsar
afleiðingar í för með sér og sumar
óvæntari en aðrar. Þannig þurfti að
fresta útgáfu á nýrri bók Hugleiks
um Eineyga köttinn Kisa og þurfti
að endurrita hluta bókarinnar sem
nú er áformað að komi út 17. júní.
Síðasta bók hét Eineygi kötturinn
Kisi og ástandið, fyrri hluti, en þar
er tekið á ástandinu eins og það var
síðasta haust og spilaði
seðlabankastjóri
nokkuð stórt hlutverk
í bókinni. Seinni hluti
„ástandsins“ reyndist
hins vegar miklum
mun erfiðari í ritun
vegna mikilla
sviptinga. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það er hafragrautur sem ég
elda sjálfur. Er nýbyrjaður á
þessu og þetta verður bara minn
morgunmatur þar til ég kveð
þetta líf. Verð að viðurkenna að
ég sé eftir þessum 29 hafra-
grautslausum árum og þakka
bara tengdapabba mínum
kærlega vel fyrir að koma mér á
bragðið.“
Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari.
SIGIN
GRÁSLEPPA
„Ég varð bara klökkur, það er ekk-
ert hægt að segja þetta öðruvísi,
ég hélt reyndar fyrst að ég hefði
gert eitthvað af mér,“ segir Þor-
valdur Davíð Kristjánsson, nemi
við leiklistardeild Juilliard-lista-
háskólans í New York. Hann fékk
óvæntan glaðning í síðustu viku
þegar deildarforseti leiklistar-
deildar skólans kallaði hann á
fund til sín og tilkynnti íslenska
leikaranum að hann hefði hlotið
The Robin Williams Scholar ship
en hann hljóðar upp á sjö og hálfa
milljón íslenskra króna, eða 60
þúsund dollara. Styrkurinn er
veittur þeim nema sem þykir hafa
lagt hvað harðast að sér í náminu.
Eins og nafnið gefur til kynna er
það Óskarsverðlaunahafinn Robin
Williams sem hefur veg og vanda
af styrknum og hann greiðist beint
úr vasa bandarísku stórstjörnunn-
ar. „Hann var einhvern tímann í
skólanum, þetta er í hans nafni og
hann gefur þessa peninga.“
Styrkurinn nær yfir skólagjöld-
in í Julliard sem hafa hækkað
töluvert eftir að gengi krónunnar
féll með hruni bankanna. „Þessi
vetur hefur verið erfiður róður og
því hjálpar styrkurinn mér mjög
mikið í núverandi ástandi,“ heldur
Þorvaldur áfram en hann seg-
ist þó aldrei hafa leitt hugann að
því að hætta námi og snúa aftur
heim þrátt fyrir að dvölin í New
York væri orðin ansi dýr. „Nei,
maður hefði bara fundið einhverj-
ar leiðir og haldið áfram að borða
hafragrautinn,“ segir leikarinn og
hlær.
Alls 72 nemendur eru í leiklist-
ardeild Juilliard-skólans og því er
um að ræða mikla viðurkenningu
fyrir Þorvald. „En þetta leggur
auðvitað meiri pressu á mann að
standa sig en ég hef bara gaman
af því, mér finnst gott að setja
mér stór markmið því þá eru jú
meiri líkur á því að manni takist
að komast þangað.“ Þorvaldur þarf
á næstu dögum að setjast niður og
skrifa Robin Williams bréf, þakka
honum fyrir styrkinn og segja
eilítið frá starfi sínu innan veggja
skólans. freyrgigja@frettabladid.is
ÞORVALDUR DAVÍÐ: ROBIN WILLIAMS BORGAR NÁMIÐ Í JULLIARD
FÉKK SJÖ MILLJÓNA STYRK
GLEÐITÍÐINDI Þorvaldur Davíð fékk The Robin Williams Scholarship sem hljóðar upp á rúmlega sjö milljónir íslenskra króna en
hann nýtist til að borga skólagjöldin í Juilliard. Þau hafa hækkað töluvert eftir að krónan féll með hruni bankanna.
M
YN
D
/B
A
LD
U
R
K
R
IS
TJ
Á
N
S
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Kjúklingastræti
2 Elektra
3 Hólmar Örn Rúnarsson