Fréttablaðið - 13.05.2009, Síða 48

Fréttablaðið - 13.05.2009, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Í dag er miðvikudagurinn 13. maí, 133. dagur ársins. 4.19 13.24 22.31 3.46 13.09 22.34 Svavar, það hafa fjölmarg-ir haft samband við mig og beðið mig um að leggja ykkur lið í samninganefndinni um Icesave. Ég taldi að slíkt ætti ekki fyrir mér að liggja en hvað veit maður á þessum síðustu og verstu tímum þegar ólíklegustu hlutir gerast? Sjáðu bara hvernig fór fyrir henni Svandísi, hún er ekki búin að tylla sér í þingsætið sitt og það er strax búið að véla hana í ráðherrastól. Og sjáðu líka hvernig fór fyrir skáldkonunni sem mótmælti með svo góðum ljóðum að hún endaði á þingi. Já, það er eins gott að passa sig. ÞANNIG að ef þér hafði dottið í hug að kippa mér inn í nefndina, nú þegar Gordon er orðinn illur, þá ætla ég að segja þér ástæðuna fyrir því að ég ætti ekki að koma nálægt svona nefndum. Það ætti að fá þig ofan af slíku rugli. EITT SINN sat ég löngum stund- um í mosku einni og hlýddi á trú- bræður félaga míns segja frá leyndardómum íslams. Ég var nokkuð heillaður af mörgu sem ég lærði þar. Umræðurnar voru líka afskaplega skemmtilegar og fróðlegar og lausar við þennan gassagang sem venjulega gríp- ur um sig þegar við Íslendingar troðum meiningu okkar í kokið á viðmælandanum. Myntubragð- ið af teinu sem teygað var líður mér örugglega aldrei úr minni. Ég lærði meira að segja nokkra arabísku. Ég gleymi því aldrei þegar ég fór með trúarjátn- inguna á lýtalausri arabísku, eftir því sem nærstaddir tjáðu mér. Menn fögnuðu mér fyrir afrekið, óskuðu mér til ham- ingju en síðan hætti mér að lít- ast á blikuna þegar þeir spurðu hvaða íslamska nafn ég ætlaði að taka mér. SVAVAR, þú sérð að þú hefur ekkert með svona mann að gera í nefndinni. Ég klóraði mig reynd- ar út úr þessu en ég drap gjör- samlega þessa skemmtilegu fagnaðarstemningu sem upp var komin. EN hvernig gengur annars, Svabbi? Það er örugglega ekki gott að eiga við þetta meðan þessi búralegi Gordon lætur svona. Maður veit hreinlega ekki á hvaða plánetu hann lifir þessi maður. Það er spurning hvort við Íslendingar eigum ekki ein- hvern álíka til að gjalda líku líkt. Þú getur svo sem alveg hringt og athugað hvort mér hafi snúist hugur, eins og ég sagði, maður veit aldrei. Bréf til Svavars H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 9 -0 8 4 3 Erum við símann til kl. 21 í kvöld Íslandsbanki býður fjölmargar lausnir til að hagræða í fjármálunum og til að komast í gegnum tímabundin greiðsluvandræði. Í dag milli klukkan 17 og 21 verða fjármálaráðgjafar okkar við símann og svara fyrirspurnum um hvaða úrræði eru í boði. Hringdu í síma 440 4000 milli klukkan 17 og 21 og ræddu við ráðgjafa Íslandsbanka um úrræði sem gætu hentað þér. Ráðgjafar Íslandsbanka veita upplýsingar um úrræði Skuldbreytingar lána Skoðað hvort hægt sé að hagræða með sameiningu skammtímalána og lengingu lána. Skilmálabreytingar bílasamninga Lækkun á leigugreiðslu bílasamninga í erlendri mynt í átta mánuði og lenging á samningi um fjóra mánuði. Tímabundin opnun séreignar- sparnaðar Í flestum tilvikum hvetjum við fólk til að snerta ekki á lífeyrissparnaði sínum. En stundum getur það verið skynsamlegt, t.d. til að borga niður óhagstæðar skammtímaskuldir. Greiðslujöfnun verðtryggðra lána Greiðslujöfnun verðtryggðra húsnæðislána og annarra verðtryggðra lána með fasteignaveði. Greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána Lausn sem lækkar og jafnar greiðslubyrðina. Aðstoð við heimilisbókhaldið á islandsbanki.is Á heimasíðu okkar islandsbanki.is eru netlausnir sem aðstoða þig við heimilis- bókhaldið. Þú getur sett þér markmið í sparnaði og gert einfalt mat á stöðu fjármála heimilisins. Hagræðing í rekstri heimilisins Útgjöld heimilisins greind og skoðað hvar er hægt að hagræða til að ná endum saman. islandsbanki.is Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.