Fréttablaðið - 14.05.2009, Side 6
6 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
Dr. Natasha Campbell skrifaði bókina “Meltingarvegurinn
og geðheilsa” eftir að hafa náð undraverðum árangri
með breyttu mataræði og notkun bætiefna fyrir son
hennar sem var greindur með alvarlega einhverfu. Reynsla
hennar hefur sýnt að mataræði er mjög mikilvægur
þáttur í að hjálpa börnum og fullorðnum með andlega
kvilla og hefur hún unnið mikið frumkvöðlastarf varðandi
notkun próbíótískra bætiefna við meðferð á andlegum
vandamálum. Fyrirlesturinn er almennur og ætti að
gagnast öllum sem áhuga hafa á að borða sér til bata.
Dr. Natasha Campbell-McBride
heldur 2 fyrirlestra í Bíósalnum
á Hótel Loftleiðum, þriðjudaginn
19. maí kl. 18.00 og kl. 20.00.
Aðgangseyrir kr.1000,- Skráning á netfanginu:
johannamjöll@simnet.is. Fyrirlesturinn fer fram á ensku
Dr. Campbell-McBride er læknismenntuð
með sérmenntun í næringarfræði og
taugasjúkdómafræði og sérhæfð í
næringarfræði fyrir fullorðna með
meltingar- og ónæmissjúkdóma.
FLENSBORGARAR FÆDDIR 1952
Flensborgarar, sem fæddir eru 1952, koma saman í Hellinum í Víkingahótelinu í Hafnarfi rði,
laugardagskvöldið 23. maí kl. 20:00.
Aðgangseyrir aðeins kr. 1952. Þátttaka tilkynnist á netfangið steinunnben@simnet.is fyrir mánudaginn
18. maí. Nánari upplýsingar veita eftirtaldir: Ársæll 820 2445, Bessi 897 2599, Steinunn 897 2045,
Þórarinn Jón 893 7006 og Helgi Sig. 891 9334.
Undirbúningsnefndin.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Horfðir þú á flutning íslenska
lagsins í Eurovision-keppninni?
Já 82,5
Nei 17,5
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætti að hækka gjöld á áfengi
og bensín?
Segðu þína skoðun á visir.is
SVEITARSTJÓRNARMÁL Staða sveitar-
félaganna er grafalvarleg og
skuldir þeirra hafa hækkað gríð-
arlega á stuttum tíma. Átak þarf
til að snúa dæminu við og til þess
þarf að hugsa rekstur sveitar-
félaga upp á nýtt.
Skuldir og skuldbindingar
sveitarfélaganna í landinu nema
um 240 milljörðum króna en voru
198 milljarðar í árslok 2007. Þar
af eru skuldir í erlendri mynt um
50 milljarðar. Þetta er meðal þess
sem kom fram á samráðsfundi
Sambands íslenskra sveitarfélaga
um rekstrarvanda þeirra í gær.
Gunnlaugur Júlíusson, sviðs-
stjóri hag- og upplýsingasviðs
Sambands íslenskra sveitarfélaga
(SÍS), segir að því verði ekki
neitað að staða sveitarfélag-
anna sé grafalvarleg. „Ég held að
niðurstaða fundarins hafi verið
að skipta verður um gír. Það er
enginn að tala lengur um skamm-
tímalausnir. Þessi vandi verður
ekki leystur með slíkum aðgerð-
um heldur verður að breyta
um verklag hjá sveitarfélögun-
um og sætta sig við að taka upp
lægra þjónustustig.“ Gunnlaugur
segir að mörg sveitarfélög, sér-
staklega vaxtarsveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu, hafi vanist
miklum tekjum en nú verði allir
að sætta sig við að það umhverfi
hefur snúist til hins verra.
Það sem sveitarfélögin standa
frammi fyrir í stuttu máli eru
minnkandi tekjur, gríðarlega
háar skuldir og aukin útgjalda-
þörf. Útgjaldaþörfin kemur ekki
síst til vegna atvinnuleysis sem
birtist í hærri bótum, aukinni
þörf á félagslegri þjónustu og
fjárhagsaðstoð við hina verst
settu.
Halldór Halldórsson, formað-
ur SÍS, sagði fjárhagserfiðleik-
ana meiri en áætlanir gerðu ráð
fyrir í upphafi árs, og almennt
geri fólk sér ekki grein fyrir
hversu alvarleg staðan hjá sveit-
arfélögunum, jafnt sem ríkinu, er.
„Það er því ekki nokkur einasta
undankomuleið frá því að ræða
allar mögulegar lausnir, þó það
sé viðkvæmt. Hér er nefnilega
um að tefla atvinnuöryggi fjölda
manns.“
Ólafur Sigurðsson, bæjar-
stjóri á Seyðisfirði, var ómyrk-
ur í máli. Hann sagði að sveitar-
stjórnarmenn þyrftu að gera sér
grein fyrir því strax að þær nið-
urskurðaraðgerðir sem ráðast
þyrfti í þýddu töpuð störf. „Það
þarf að fara í langtímaaðgerðir
til að gera sveitarfélögin rekan-
leg í því umhverfi sem við búum
við. Við þurfum að fækka fólki og
það sama mun gerast hjá ríkinu
þegar niðurskurðurinn hefst þar.
Atvinnuleysi mun aukast. þetta
blasir við ef menn þora að opna
augum.“ svavar@frettabladid.is
Þarf að endurhugsa
rekstur sveitarfélaga
Staða sveitarfélaganna í landinu er grafalvarleg, er niðurstaða samráðsfundar
Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skuldir hafa hrannast upp og skyldur hafa
aukist með tilheyrandi kostnaði. Á sama tíma dragast skatttekjur saman.
FJÁRMÁL Fulltrúar fyrri valdhafa
í stjórn Byrs héldu velli í stjórn-
arkjöri á aðalfundi sparisjóðsins
í gær.
Afar mjótt var á mununum í
stjórnarkjörinu. A-listi, fulltrú-
ar „grasrótarinnar“ meðal hlut-
hafa, fékk 46 prósent atkvæða og
B-listi fyrri stjórnar fékk 48 pró-
sent. B-listinn fékk því þrjá menn
í stjórn og A-listinn tvo.
Um 1.500 stofnfjárhluthafar
eru í Byr. Mættu um 600 þeirra
með umboð fyrir samtals 70 pró-
sent hluthafa á aðalfundinn sem
fór fram í skugga 29 milljarða
króna taps Byrs á árinu 2008.
Aðalfundurinn var bæði langur
og tilfinningaríkur. Fráfarandi
stjórn sparisjóðsins var kraf-
in svara og mátti þola skammir
og gagnrýni fundargesta vegna
slæmrar stöðu.
Fulltrúar beggja framboðanna
til stjórnar Byrs telja brýnasta
verkefnið fram undan að semja
við lánardrottna sparisjóðsins
og bæði framboðin munu telja
sísta kostinn í erfiðri stöðu að
sækja um sérstakt ríkisframlag
samkvæmt neyðarlögunum frá í
október.
Fulltrúar B-listans í stjórn
Byrs eru Jón Kr. Sólnes, Guð-
mundur Geir Gunnarsson og
Matthías Björnsson. Fulltrúar
A-listans eru Sveinn Margeirs-
son og Arnar Bjarnason. - gar
Mjótt á munum í stjórnarkjöri á heitum aðalfundi í skugga risataps sparisjóðs:
Stjórn Byrs hélt meirihluta
AÐALFUNDARGESTIR BYRS Fjölmennt
var á aðalfundi Byrs á Nordica-Hilton
hótelinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MEXÍKÓ Svínaflensan, H1N1, virð-
ist vera í rénun í Mexíkó. Hún
virðist einnig hafa lagst á færra
fólk en búist var við í upphafi og
mun líklega ekki draga fleiri en
hundrað manns til dauða. Þetta
sagði Jose Angel Cordova, heil-
brigðisráðherra Mexíkó, í gær.
Mexíkó hefur staðfest 60 tilfelli
látinna af völdum flensunnar, sem
hefur breiðst út um allan heim, en
þau tilfelli sem talið er að bætist
við þessa tölu eru sögð vera þeir
sem eru þegar mjög alvarlega
veikir á sjúkrahúsum.
Næstum þrjátíu prósent af þeim
sem hafa látið lífið þjáðust af syk-
ursýki og aukaverkunum af offitu.
Jose Angel Cordova:
Svínaflensan í
rénun í Mexíkó
STJÓRNMÁL Drög að þingsályktunar-
tillögu um Evrópusambandsaðild
voru kynnt formönnum stjórnar-
andstöðuflokkanna á Alþingi í gær.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var um að ræða einfalda
og almennt orðaða tillögu. Þar var
meðal annars getið um fyrirvara
sem hafa verið í umræðunni um
auðlindir, almannaþjónustu, land-
búnað og sjávarútveg.
„Ég gerði aldrei ráð fyrir öðru
en að það yrði víðtæk samvinna á
milli stjórnmálaflokkanna og hags-
munaaðila um samningsgerðina,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra í gærkvöldi.
Auk Steingríms var Jóhanna
Sigurðardóttir á fundinum með
þeim Bjarna Benediktssyni, for-
manni Sjálfstæðisflokksins, Sig-
mundi Davíð Gunnlaugssyni, for-
manni Framsóknarflokksins, og
Birgittu Jónsdóttur, formanni
þingflokks Borgarahreyfingar-
innar. Ekki náðist í þessa fulltrúa
stjórnarandstöðunnar í gærkvöldi.
Hins vegar var haft eftir forsætis-
ráðherra í Ríkisútvarpinu að þeir
hafi á fundinum fyrst og fremst
gagnrýnt að ekki væri löng grein-
argerð með tillögutextanum og að
þeir myndu verða í sambandi við
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra um breytingar á textan-
um og útfærslu í greinargerðinni.
Ætlunin er að leggja fram þings-
ályktunartillöguna um aðildarvið-
ræðurnar á komandi sumarþingi
Alþingis. - kóp, gar
Formenn stjórnarandstöðunnar á fund forsætisráðherra og fjármálaráðherra:
Stjórnarandstöðu sýnd Evróputillaga
JÓHANNA OG STEINGRÍMUR Kynntu
stjórnarandstöðunni Evróputillögu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON
STJÓRNMÁLIN ÞURFA AÐ BREYTAST
„Við stjórnmálamenn, sérstaklega
hér á höfuðborgarsvæðinu, erum
stödd í pólitískum sandkassaleik
á meðan fólkið úti í samfélaginu
glímir við alvarleg og raunveruleg
vandamál,“ sagði Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri á sam-
ráðsfundi sveitarfélaga í gær.
Hanna Birna sagði að um leið
og samstarf íbúa og sveitarfélaga
væri lífsnauðsynlegt kæmi annað
og meira til. „Við verðum að breyta
hefðbundnum reglum í stjórnmál-
um og hætta þessum innbyrðis
átökum. Það eru ekki hefðbundnir
tímar í íslensku samfélagi og ef
við svörum ekki kallinu þá höldum
við áfram á sömu braut, þyngjum
skuldabaggann og rífum frá kom-
andi kynslóðum þá grunnþjónustu
sem þau verða og eiga að fá.“
Hanna Birna sagði að átök innan
sveitarstjórna um stórt og smátt
myndu einnig einkenna þingstörf á
næstunni. „Þetta veldur því að við
náum ekki utan um verkefnið. Við
verðum að vera samstiga og áttum
okkur á því að þegar við fórum í
þessar aðgerðir, þá héldum við að
við værum að fara inn í tímabundna
kreppu, venjulega íslenska lægð, en
nú vitum við að þetta er varanleg
alþjóðleg kreppa sem kallar ekki á
tímabundnar aðgerðir eða niður-
skurð, heldur varanlegar breytingar
á þjónustu. Okkur tekst þetta ekki,
ef við förum ekki úr gömlu hjólför-
unum.“ - shá
HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR
KJÖRKASSINN