Fréttablaðið - 14.05.2009, Side 64

Fréttablaðið - 14.05.2009, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Dr. Gunna Í dag er fimmtudagurinn 14. maí, 134. dagur ársins. 4.16 13.24 22.34 3.42 13.09 22.38 Að búa á Íslandi er eins og að búa í blokk sem er með hús- félagsfund á hverju kvöldi til að ræða hvernig teppið í stigagang- inum á að vera á litinn. Það eru alltaf einhver mál „á dagskrá“, sem ég á að hafa skoðun á. Einu sinni varð ég að hafa skoðun á því hvort flugvöllurinn ætti að vera áfram í Vatnsmýri eða fara eitthvert – og þá hvert? Eins og mér væri ekki drullusama. En auðvitað þorði ég ekki að segja það. Að vera sama þykir að viðurkenna að maður sé bjáni. ÞEGAR um málið hafði verið tuðað árum saman boðaði Ingi- björg Sólrún loks til kosninga um það. Ég man eftir því þegar ég kaus. Það var glampandi sól og mér leið eins og fífli þegar ég var búinn að kjósa. Að láta hafa mig út í þetta! Samt man ég ekk- ert hvort ég kaus. Líklega vildi ég flugvöllinn burt því það átti að vera svo rosalega flott þekk- ingarþorp þarna í Vatnsmýrinni. Allir með latté í frauðmálum að gera eitthvað rosa merkilegt þekkingar-eitthvað. ÞAÐ er tuðað fram og aftur, út og suður, upp og niður, en að lokum er það bara tíminn sem kemur með niðurstöðuna. Er Davíð Oddsson snillingur eða fól? Er Bónus bjargvættur alþýðunnar eða Satan sjálfur? Alveg er ég viss um að tíminn kemst að niðurstöðu um þetta, eins og hann komst að niður- stöðu um herinn á Miðnesheiði. Og ekki var nú lítið tuðað um hann. TUÐLENDINGAR fá aldrei nóg af tuðinu í heitu pottun- um. Tuðið fékk vítamínsprautu í rassinn þegar Tuðmenn fött- uðu bloggið. Og þú getur rétt ímyndað þér allt tuðið sem er fram undan. Evrópusambandið: Ertu með eða á móti? Og síðast en ekki síst: Hverjum er banka- hrunið um að kenna? Ríku gráð- ugu körlunum? Þér sjálfum af því þú trúðir fagurgalanum og tókst myntkörfulán? ÆTLI það sé tuðað jafn mikið í öðrum þjóðfélögum og hér? Ætli annars staðar skiptist þjóðirn- ar reglulega í tvær tuðandi fylk- ingar? Er kannski séns að ein- hvers staðar sé hægt að komast í gegnum árið án allra þessara húsfélagsfunda? Þú veist, bara hafa það fínt á venjulegum dag- vinnulaunum og hafa þak yfir höfuðið án þess að hneppa sig í þrældóm til æviloka. Og vera laus við tuðið. Tuðland Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is Þjónustuver 1817 | Sími 445 1600 | Fax 445 1601 tal@tal.is | Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.