Fréttablaðið - 14.05.2009, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 14. maí,
134. dagur ársins.
4.16 13.24 22.34
3.42 13.09 22.38
Að búa á Íslandi er eins og að búa í blokk sem er með hús-
félagsfund á hverju kvöldi til að
ræða hvernig teppið í stigagang-
inum á að vera á litinn. Það eru
alltaf einhver mál „á dagskrá“,
sem ég á að hafa skoðun á. Einu
sinni varð ég að hafa skoðun á
því hvort flugvöllurinn ætti að
vera áfram í Vatnsmýri eða fara
eitthvert – og þá hvert? Eins og
mér væri ekki drullusama. En
auðvitað þorði ég ekki að segja
það. Að vera sama þykir að
viðurkenna að maður sé bjáni.
ÞEGAR um málið hafði verið
tuðað árum saman boðaði Ingi-
björg Sólrún loks til kosninga
um það. Ég man eftir því þegar
ég kaus. Það var glampandi sól
og mér leið eins og fífli þegar ég
var búinn að kjósa. Að láta hafa
mig út í þetta! Samt man ég ekk-
ert hvort ég kaus. Líklega vildi
ég flugvöllinn burt því það átti
að vera svo rosalega flott þekk-
ingarþorp þarna í Vatnsmýrinni.
Allir með latté í frauðmálum að
gera eitthvað rosa merkilegt
þekkingar-eitthvað.
ÞAÐ er tuðað fram og aftur,
út og suður, upp og niður, en
að lokum er það bara tíminn
sem kemur með niðurstöðuna.
Er Davíð Oddsson snillingur
eða fól? Er Bónus bjargvættur
alþýðunnar eða Satan sjálfur?
Alveg er ég viss um að tíminn
kemst að niðurstöðu um þetta,
eins og hann komst að niður-
stöðu um herinn á Miðnesheiði.
Og ekki var nú lítið tuðað um
hann.
TUÐLENDINGAR fá aldrei
nóg af tuðinu í heitu pottun-
um. Tuðið fékk vítamínsprautu
í rassinn þegar Tuðmenn fött-
uðu bloggið. Og þú getur rétt
ímyndað þér allt tuðið sem er
fram undan. Evrópusambandið:
Ertu með eða á móti? Og síðast
en ekki síst: Hverjum er banka-
hrunið um að kenna? Ríku gráð-
ugu körlunum? Þér sjálfum af
því þú trúðir fagurgalanum og
tókst myntkörfulán?
ÆTLI það sé tuðað jafn mikið í
öðrum þjóðfélögum og hér? Ætli
annars staðar skiptist þjóðirn-
ar reglulega í tvær tuðandi fylk-
ingar? Er kannski séns að ein-
hvers staðar sé hægt að komast
í gegnum árið án allra þessara
húsfélagsfunda? Þú veist, bara
hafa það fínt á venjulegum dag-
vinnulaunum og hafa þak yfir
höfuðið án þess að hneppa sig
í þrældóm til æviloka. Og vera
laus við tuðið.
Tuðland
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
Þjónustuver 1817 | Sími 445 1600 | Fax 445 1601
tal@tal.is | Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík