Fréttablaðið - 14.05.2009, Qupperneq 12
12 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
Auglýsingasími
RÚSSLAND, AP Átök um auðlindir, þar
á meðal á norðurskautssvæðum,
ve r ð a me g i nv i ð fa n g s ef n i
rússneskrar herstjórnar næsta
áratuginn, samkvæmt stefnuskjali
sem þjóðaröryggisráð Rússlands
hefur birt á heimasíðu sinni.
„Alþjóðastefnan til langs tíma
beinist einkum að því að ná
yfirráðum yfir auðlindum, þar
á meðal í Mið-Austurlöndum,
í landgrunni Barentshafs og
öðrum norðurskautssvæðum,
í Kaspíahafinu og Mið-Asíu,“
segir í stefnuskjalinu, sem er
undirritað af Dmitrí Medvedev
Rússlandsforseta.
„Í samkeppnisátökum um
auðlindir er ekki hægt að útiloka
að hervaldi verði beitt til að leysa
aðsteðjandi vandamál,“ segir enn
fremur í skjalinu. „Mögulegt er
að núverandi valdajafnvægi við
landamæri Rússlands og vinaþjóða
þess verði raskað.“
Nánari útlistanir á þessu er ekki
að finna í skjalinu, né heldur eru
tilgreind sérstök dæmi.
Í skjalinu segir að Rússar stefni að
því að eiga samstarf við Bandaríkin
á jafnréttisgrundvelli, en áform
Bandaríkjanna um að koma sér upp
eldflaugavörnum í Evrópu eru sögð
ein af þeim hættum sem helst steðji
að þjóðaröryggi Rússlands þessa
stundina. - gb
Rússar móta stefnu sína í öryggismálum næsta áratuginn:
Búa sig til átaka um auðlindir
MEDVEDEV MUNDAR RIFFIL Rússneski
herinn býst við átökum út af norður-
skautinu og öðrum auðlindasvæðum.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Lögregla hefur
lokið við að greina efnin sem
fundust í skotti bíls á Austfjörð-
um 19. apríl síðastliðinn og hafði
verið smyglað til landsins með
skútunni Sirtaki.
Efnið var alls um 110 kíló. Þar
af voru 55 kíló amfetamín, 34
kíló voru marijúana og um 19 og
hálft kíló var hass. Þá fundust
9.400 e-töflur.
Sex menn, fimm Íslendingar og
Hollendingur, sitja nú í gæslu-
varðhaldi vegna málsins. Þrír
þeirra voru handteknir í landi og
þrír til viðbótar um borð í skút-
unni á flótta út úr landhelginni
tæpum sólarhring síðar. - sh
110 kíló voru í skútunni:
Helmingurinn
var amfetamín
FÓLK Fulltrúar Íslands settu glæsi-
legan svip á Alparósahátíðina sem
haldin var í byrjun maí í Norfolk í
Virginíuríki í Bandaríkjunum.
Í Norfolk eru höfuðstöðvar Atl-
antshafsbandalagsins í Bandaríkj-
unum. Borgin heldur á hverju ári
hátíð og velur eina Natóþjóð til
að vera í öndvegi. Að þessu sinni
var það Tékkland sem þannig átti
drottningu hátíðarinnar. Hinar
27 þjóðir bandalagsins áttu hins
vegar hver sína prinsessu.
Haldin var glæsileg skrúðganga
um götur borgarinnar og var
Tanja Bryndís Thorsteinsson
prinsessa Íslands að þessu sinni.
Sat hún í hásæti á þrjátíu feta
löngum vagni Íslendingafélagsins
í Norfolk, en vagninn var í formi
víkingaskips. Sér til beggja handa
hafði Tanja síðan hafmeyjar en
þær kynjaverur eru einmitt tákn
Norfolk-borgar. - gar
Sautján ára stúlka var prinsessa Íslands á Alparósahátíð Norfolk-borgar í Virginíu:
Þrjátíu feta víkingaskip á Natóhátíð
PRINSESSAN KRÝND Frú Sesselja
Seifert, formaður Íslendingafélagsins,
krýnir Tönju Bryndísi Thorsteinsson
sem prinsessu Íslands.
ÍSLENSKIR VÍKINGAR Tanja Bryndís Thorsteinsson var prinsessa Íslands og Hilmar
Jónsson víkingur í stafni á vagni á Alparósahátíðinni í Norfolk.
OPNUNARTÍMARAKUREYRIMÁNUDAGA-FÖSTUDAGA 10 - 18.30LAUGARDAGA 10 - 17SUNNUDAGA 13 - 17
4.999
SPARIÐ 5.000
HEIMUR
LEIKJA
5.999
SPARIÐ 6.000
OPNUNARTÍMARGRAFARVOGURKÓPAVOGURMÁNUDAGA-FÖSTUDAGA 11 - 19LAUGARDAGA 10 - 18SUNNUDAGA 12 - 18
154171
LEGO 4210 CITY RESCUE PRODUCT
Afl andsstöð strandgæslunnar með þyrlu,
krana, björgunarfl eka, hákarli, kafara, o.s.frv. .
Frá 5 ára. Verð 11.999
532223
LITTLEST PET SHOP
RISASTÓR PAKKI
Með 20 gæludýrum. Verð 9.999
Kópavogur Smáratorg 3 sími 550 0800 Grafarvogur Blikastaðarvegur 2-8 sími 585 0600 Akureyri Glerártorg sími 461 4500
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l o
g
m
eð
2
0.
05
.2
00
9.
Í
ve
rð
un
um
e
r i
nn
ifa
lin
n
vi
rð
is
au
ka
sk
at
tu
r.
Þa
ð
er
t
ek
in
n
fy
ri
rv
ar
i á
p
re
nt
vi
llu
m
o
g
u
p
p
se
ld
um
v
ö
ru
m
.