Fréttablaðið - 14.05.2009, Page 36
14. MAÍ 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● frístundir og námskeið
Golfleikjaskólinn verður
með byrjendanámskeið við
Álftanesveg flesta mánu-
daga í sumar. Leiðbeint
verður í undirstöðuatrið-
um golfíþróttarinnar í
skemmtilegum leik og al-
vöru, eins og segir á heima-
síðu Golfleikjaskólans.
Kennt verður fimm
virka daga í röð, í eina og
hálfa klukkustund í senn.
Leiðbeinandi á námskeið-
unum er Anna Día Erlings-
dóttir, íþróttafræðingur og
stofnandi Golfleikjaskól-
ans, ásamt fleirum.
Að hámarki komast tíu
til tólf þátttakendur að í
hverjum hópi. Námskeiðs-
gjald er 7.000 krónur og
innifalið í því er vallar-
gjald þegar spilað er á golf-
velli síðasta daginn. - hhs
Krakkar í Golfleikjaskólanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Ný námskeið
í hverri viku
Tólf smíðavellir verða starfrækt-
ir á vegum Íþrótta- og tómstunda-
ráðs í sumar en þar eru helstu við-
fangsefni barnanna kofasmíði og
smíði á ýmiss konar smáhlutum.
Smíðavellirnir, sem eru ætlað-
ir börnum á aldrinum átta til tólf
ára, eru undir stjórn leiðbeinenda
en þó er ekki um eiginlega gæslu
að ræða og er mæting frjáls.
Vellirnir verða opnir frá klukk-
an 9 til 12 og 13 til 16, með örfáum
undantekningum, og verða starf-
ræktir á eftirtöldum stöðum: Í Ár-
seli, Austurbæjarskóla, Breiða-
gerðisskóla, Miðbergi, Hólmaseli,
Engjaskóla, Foldaskóla, Kjalar-
nesi, við Kirkjustétt, Hlíðaskóla,
Melaskóla og Þróttheimum. Nán-
ari upplýsingar á www.rvk.is. - ve
Smíða sér hús
með hamri og sög
Marga krakka dreymir um að eignast kofa og á smíðavöllum getur sá draumur orðið
að veruleika. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu setur ráðstefnuna.
David Burton MSW, Ph.D – Erindi um þann hóp sem fer örast vaxandi í
kynferðisbrotum; ungmenni sem gera sig sek um kynferðislega misnotkun.
David Burton mun fjalla um rannsóknir og samanburð á meðferðarúrræðum
fyrir unga gerendur. Burton mun einnig kynna helstu meðferðarúrræði fyrir
þolendur ofbeldis.
Linn Getz MD, Ph.D. – Áföll í æsku - leiðandi orsakir sjúkdóma á fullorðin-
sárum og ótímabærs dauða.
Britt Fredenman, Project Leader for BellaNet, WOCAD – Kynnir verkefni sem
hjálpar unglingstúlkum sem misnota áfengi og eiturlyf og sýnir tengsl við
ofbeldi sem margar þeirra hafa orðið fyrir.
Þorbjörg Sveinsdóttir, B.A. – Kynnir starfsemi Barnahúss og svarar spurnin-
gum um þjónustuleiðir fyrir börn sem sætt hafa ofbeldi.
Gerður Árnadóttir, Þroskahjálp – Kynnir fræðsluefni og nýútkominn bækling
ætlaðan ungu fólki með þroskahömlun.
SAFT, vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga – Erindi um
öryggi barna á Internetinu og samstarf við EFF2, framleiðanda Videntifier
Forensic sem gerir lögreglu auðveldara með að finna ólöglegt myndefni .
Stígamót – kynning á þjónustu Stígamóta.
Sólstafir Vestfjarða – Erindi um samstarf við Blátt áfram og árangur þess með
forvarnarátakið Verndarar Barna.
Blátt áfram – Erindi um forvarnarfræðslu sem er í boði hjá Blátt áfram. Einnig
býðst ráðstefnugestum að taka þátt í námskeiðinu Verndarar Barna.
FORVARNIR ERU
BESTA LEIÐIN
Dagskrá
Ráðstefna um forvarnir gegn
kynferðislegu ofbeldi á börnum
í Háskólanum í Reykjavík
dagana 19. og 20. maí 2009
Skráning á
www.blattafram.is
Markmið ráðstefnunnar er að skoða allar þær leiðir sem
samfélagið getur farið í að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi
á börnum. Þegar forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á
börnum eru ræddar eru viðbrögð almennings oft ótti, reiði
og afneitun og er það miður. Um leið og lagðar eru fram
tillögur um að þessi mál séu rædd, blátt áfram og í
dagsljósinu þarf jafnframt að taka ábyrgð á því að vera gott
fordæmi fyrir umhverfið. Það er gert með því að vekja
athygli á þeim fjölda leiða sem eru færar til þess að fræðast
um og fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Á þessari
ráðstefnu verður lögð áhersla á meðferðarúrræði fyrir
þolendur og unga gerendur kynferðislegs ofbeldis.
Á ráðstefnunni verður einnig haldið áfram að vekja fólk til
umhugsunar um að ofneysla áfengis, fíkniefna og lyfja er oft
nátengd kynferðislegri misnotkun og/eða öðrum áföllum í
æsku, eins og fjölmargar rannsóknir gefa til kynna.
Markmið
Ráðstefnan er öllum opin og fer fram á ensku.
Fundarstjórar – Guðrún Ebba Ólafsdóttir grunnskólakennari
og Sigríður Björnsdóttir framkvæmdarstjóri Blátt áfram.
Verð 9.500 kr. og 5.500 kr. fyrir nema og atvinnulausa.
Allar helstu upplýsingar er að finna á www.blattafram.is
eða hjá Svövu Björnsdóttur svava@blattafram.is
Samstarfsaðilar:
Heilsuakademían býður upp
á Herbúðir Heilsuakademí-
unnar fyrir þrettán til sex-
tán ára unglinga sem vilja
efla heilsuna í sumar. Á
námskeiðunum fara krakk-
arnir í herþjálfun, fjallgöng-
ur, hjólaferðir, sund, hópefli,
sjálfsstyrkingu og margt
fleira.
Námskeiðin eru vikulöng
og hefjast þau fyrstu 15.
júní. Hægt er að vera fyrir
hádegi frá klukkan 9-12 eða
eftir hádegi frá klukkan 13
til 16 viku í senn.
Verð er 7.990 krónur.
Veittur er tuttugu prósenta
systkinaafsláttur og fimmt-
án prósenta afsláttur af öðru
námskeiði, ef tekin eru fleiri
en eitt námskeið.
Allar nánari upplýsing-
ar á www.ha.is, skráning fer
fram á síðunni og í síma 594
9666. Greiðsla fer fram við
skráningu.
Unglingar
í herbúðir
Vel er tekið á móti þeim sem
skrá sig á námskeið hjá Heilsu-
akademíunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR