Fréttablaðið - 14.05.2009, Síða 42

Fréttablaðið - 14.05.2009, Síða 42
26 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is HERRA ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON, FORSETI ÍSLANDS, ER 66 ÁRA Í DAG. „Ég hef verið að þróa for- setaembættið í ákveðnar áttir vegna þess að ég tel að á tuttugustu og fyrstu öld- inni getum við ekki lifað einangruðu lífi.“ Eftirfarandi orð lét herra Ólafur Ragnar Grímsson falla í Kínaför sinni haustið 2007. Hann situr nú fjórða kjörtímabil sitt sem forseti Íslands. „Við erum fyrsti árgangurinn sem út- skrifast með BA-gráðu í dansi frá ís- lenskum háskóla þannig að þetta er stórt skref fyrir listdansinn á Íslandi,“ segir Ásgeir Helgi Magnússon en auk hans útskrifast fjórir aðrir nemendur. „Færustu dansarar og danshöfundar í Evrópu hafa komið til að kenna okkur auk okkar góðu íslensku kennara en námið er blanda af tæknitímum og listrænum verkefnum. Þetta er mikil vinna og maður kemur dauðþreyttur heim á daginn,“ segir hann og brosir út í annað. Kostirnir við að stunda nám í list- dansi á Íslandi eru margir að sögn Ás- geirs. „Þá er hægt að lifa og hrærast í íslenska listaheiminum og byggja upp tengslanet á meðan maður er enn í skólanum. Svo höfum við unnið með íslenskum danshöfundum og tekið þátt í verkefnum með Íslenska dansflokkn- um,“ segir hann og bætir við: „Ég byrj- aði í skóla úti í Svíþjóð og það var mun dýrara auk þess sem kostnaður fylgdi því að fljúga á milli. Það merkilega er þó að mínu mati að gæði námsins hér heima eru í raun mun meiri en á mörg- um stöðum erlendis. Vel hefur verið staðið að uppbyggingu þessa náms og það er strax farið að vekja athygli fyrir utan landsteinana. Sem dæmi má nefna að helmingurinn af stúlkunum á fyrsta ári kemur að utan.“ Ásgeir viðurkennir að landið heilli marga en annars sé uppsetning náms- ins áhugaverð og það frelsi sem nem- andinn fær. „Hér er verið að útskrifa góða dansara en líka danslistamenn og kennararnir eru á heimsmælikvarða. Við fáum tækifæri til að hugsa sjálf- stætt, okkur er ýtt í djúpu laugina og við þurfum að finna okkar leið áfram með því að nota forvitni og eðlishvöt til að kanna nýjar leiðir. Dansbrautin og samtímadansinn eru innan leiklistar- deildarinnar þannig að við fáum líka að taka námskeið með leiklistardeild- inni og nám í fræðum og framkvæmd sem er nýtt af nálinni,“ segir hann full- ur áhuga og nefnir að gaman sé að vera ekki einungis verkfæri heldur að fá líka að setja sig í spor skaparans. Útskriftarnemar af dansbraut Lista- háskólans frumsýna í kvöld dansverkið Deadhead‘s Lament sem er nýtt dans- verk eftir nýsjálenska danshöfund- inn Tony Vezich. „Hann samdi verkið sérstaklega fyrir útskriftarnemend- ur dansbrautar Listaháskóla Íslands og höfum við þar fengið að taka svo- lítinn þátt í sköpuninni,“ segir Ásgeir ánægður og lýsir verkinu. „Dregin er upp mynd af eins konar líkamshruni – líkamlegu, andlegu og siðferðislegu hruni – og myrkrinu sem verður áþreif- anlegt í svoleiðis aðstæðum. Ég upplifi verkið þannig að það fjalli um myrkrið sem býr innra með mér og allt þetta ljóta sem ég vil ekki vera og vil ekki gera en er samt fær um ef ég missi tökin. Í verkinu tekur myrkrið völdin og keyrir mig áfram þar til ég sit ein- hvers staðar örmagna og berskjaldaður og veit ekkert hvernig ég komst þangað eða hvað ég gerði.“ Ásgeir lýsir hreyfingum verksins sem kraftmiklum og segir að mikið sé um fimleika. „Verkið er svolítið dýrs- legt en þó eru sumir hlutar þess hægir, rólegir og fallega daprir, þannig að það spannar þónokkra breidd og við fáum mikið að leika okkur.“ Hann segist spenntur fyrir sýningunni og útskriftinni. „Sex sýningar eru í boði í Hafnar- fjarðarleikhúsinu og þar er hægt að panta miða en líka á midi.is. Sýningin er svolítið öðruvísi. Þetta er ekkert tipl á tánum heldur frekar í ætt við áhættu- leik í hasarmynd. Ég vona bara að við lifum þetta af,“ segir hann og hlær. hrefna@frettabladid.is ÁSGEIR HELGI MAGNÚSSON: ÚTSKRIFAST MEÐ BA-GRÁÐU Í SAMTÍMADANSI Stór áfangi í listdansi á Íslandi DÝRSLEGT EÐLI Ásgeir Helgi dansar í nemendaleikhússýningu dansbrautar Listaháskólans, Deadhead‘s Lament, en verkið samdi nýsjálenski danshöfundurinn Tony Vezich sérstaklega fyrir útskriftarnemendur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Þetta gekk æðislega vel og var alveg rosalega spenn- andi,“ segir Sigurður Lyngdal, kennari við Hólabrekku- skóla, en þar var í fyrsta sinn haldin matreiðslukeppni á dögunum. Sjö þriggja manna lið úr níunda og tíunda bekk öttu kappi um besta aðal- og eftirréttinn. „Rimaskóli hefur haldið slíkar keppnir í nokkur ár við góðan orðstír og mig langaði að koma þessu á hér,“ útskýrir Sigurður, sem var steinhissa á hinum miklu gæðum matarins sem krakkarnir töfruðu fram. „Hún Unnur Krist- leifsdóttir heimilis- fræðikennari átti stóran þátt í að skipuleggja keppn- ina,“ segir Sigurður en keppnin hófst klukkan 13 hinn 7. maí og fengu krakkarnir tvo tíma til að búa réttina til. Skólinn fékk hráefnið í keppnina víða að. Kjarna- fæði gaf innanlærislambavöðva, súkkulaði fékkst frá Ölgerðinni og Mata gaf allt grænmeti. „Síðan fengu krakkarnir að nota allt það sem til var í eldhúsinu til að búa til aðalrétt og eftirrétt,“ segir Sig- urður og bætir við að dómararnir þrír hafi verið mjög ánægðir með gæði matarins. Sigurvegarar voru þær Elva Rán Oddgeirsdóttir, Erla Guðrún Lúðvíksdóttir og Alda Björt Gísladóttir. Þær fengu að launum verðlaunapening og fá að fara út að borða á veitingastaðnum Silfrinu. Sigurður segist vera mjög ánægður og vonast til að keppnin verði árlegur viðburður við skólann. - sg Keppt í matar- gerð í fyrsta sinn METNAÐUR Krakkarnir lögðu metn- að sinn í verkið. KEPPNISSKAP Á síðustu metrunum small allt saman. KRÆSINGAR Hvert lið útbjó einn aðalrétt og einn eftirrétt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 90 ára afmæli Matthildur Soff ía Maríasdóttir frá Hjörsey verður níræð í dag þann 14. maí 2009. Í tilefni þess býður hún vinum og vandamönnum að samfagna með sér tímamótunum föstudaginn 15. maí 2009 kl. 18 í Félagsheimili Orkuveitunnar í Elliðaárdal. Allir hjartanlega velkomnir. Gjafi r afþakkaðar. Varsjárbandalagið var stofnað í Varsjá í Póllandi á þessum degi árið 1955 að frumkvæði Nikita Krút- sjov, þáverandi leiðtoga Sovétríkjanna. Stofnríki voru: Sovétríkin, Pólland, Austur-Þýskaland, Tékkóslóvakía, Ungverjaland, Rúmenía, Búlgaría og Albanía. Bandalagið var hugsað sem mótvægi við Atlants- hafsbandalag vesturveldanna (NATO) sem stofn- að var árið 1949. Varsjárbandalagið var því hernaðar- bandalag Sovétríkjanna og fyrrnefndra kommúnista- ríkja í Austur-Evrópu á tímum kalda stríðsins. Innganga Vestur-Þýskalands í Atlantshafsbandalag- ið árið 1955 var einn helsti hvatinn að baki stofnun Varsjárbandalagsins. Varsjárbandalagið var formlega leyst upp 1. júlí árið 1991 en Atlantshafsbandalagið lifir enn góðu lífi og hefur verið stækkað. Árið 1994 ákvað Atlants- hafsbandalagið að bjóða öllum fyrrverandi Varsjár- bandalagsríkjum ásamt öllum hlutlausum ríkjum Evrópu nánari samvinnu á sviði hermála. Síðan þá hefur fjöldi ríkja undirritað samkomulagið, sem kall- ast Bandamenn um frið. Einnig hafa mörg ríki Austur- Evrópu sótt um aðild að NATO. ÞETTA GERÐIST: 14. MAÍ 1955 Varsjárbandalagið var stofnað MERKISATBURÐIR 1643 Loðvík XIV tekur við völd- um í Frakklandi fjögurra ára gamall. 1919 Átta klukkustunda vinnu- dagur er lögfestur í Dan- mörku. 1922 Fimm skip farast og með þeim 44 sjómenn í ofsa- veðri sem gengur yfir norðan- og austanvert landið. 1948 David Ben-Gurion forsæt- isráðherra lýsir yfir stofn- un Ísraelsríkis. 1959 Pétur Ottesen, sem verið hafði þingmaður lengur en nokkur annar, hættir þingmennsku eftir 43 ár. 1965 Fokker Friendship-flug- vél Flugfélags Íslands, sú fyrsta sinnar tegundar, kemur til landsins. Hvert lífár sem vinnst vegna skipulagðrar krabbameins- skimunar í brjóstum kostar íslenskt samfélag minna en milljón krónur. Þetta sýnir ný rannsókn Helgu Garðars- dóttur, tilvonandi heilsuhagfræðings. Niðurstöður Helgu sýna að töluverður heilsufarslegur árangur næst af krabbameinsskimun í brjóstum hér á landi, þótt hún auki heildarkostnað heilbrigðiskerfisins. Kostnaðurinn sé vel innan við það sem teljist ásættanleg fórn fyrir lífár. Því megi segja að krabbameinsleit í brjóst- um á Íslandi sé þjóðhagslega hagkvæm. Helga vann lokaverkefni til meistaragráðu í heilsuhag- fræði við Háskóla Íslands. Hún heldur fyrirlestur um rannsóknina í stofu 101 á Háskólatorgi í dag klukkan tólf og eru allir velkomnir. - hhs Milljón fyrir ár

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.