Fréttablaðið - 14.05.2009, Page 44
28 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jæja, er
það nárinn
sem er að
angra þig?
Tjaa... Það
er bara svo
margt sem
angrar mig!
Hvernig hefur
Palli það?
Hannstóðst
GV-prófið
með glans.
Er hann með
háa greindar-
vísitölu?
GV:
Grunnhygginn
vitleysingur.
Malla mín, við verðum að
hafa áætlun ef það kemur
hvirfilbylur eða flóð.
Ég er kominn. Hæ! Jæja, var eitthvert vesen
á krökkunum í dag?
Ókei, var eitthvað alvarlegt
vesen á krökkunum í dag?
Alvarlegt fyrir
mig eða alvar-
legt fyrir þau?
Hjá Snata
Bestu afgangarnir í bænum
Eftirlaunasjóður Félags Íslenskra Atvinnuflugmanna
(EFÍA) boðar hér með til ársfundar sjóðsins. Fundurinn
verður haldinn á Grand Hóteli, Sigtúni 38 í Reykjavík,
fimmtudaginn 28. maí 2009 kl. 13.00.
Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál í samræmi við
samþykktir sjóðsins og 30. gr. laga nr. 129/1997 um
skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða:
1. Skýrsla skipaðs umsjónaraðila EFÍA
2. Ársreikningur EFÍA 2008
3. Tryggingafræðileg úttekt EFÍA og tillögur um
skerðingu lífeyrisréttinda sjóðfélaga
4. Fjárfestingarstefna EFÍA
5. Val á endurskoðanda EFÍA
6. Lýsing á skipan stjórnar EFÍA samkvæmt gr. 5.3 í
samþykktum EFÍA og laun stjórnarmanna
7. Framtíð EFÍA, aðkoma skipaðs umsjónaraðila að
sjóðnum og áætlanir hans um að hverfa frá sjóðnum
að afstöðnum ársfundi
8. Önnur mál, löglega upp borin
Ársfundargögn er hægt að nálgast á heimasíðu sjóðsins,
www.efia.is.
Reykjavík, 14. maí 2009.
Virðingarfyllst,
Viðar Lúðvíksson, hrl.,
skipaður umsjónaraðili Eftirlaunasjóðs FÍA
samkvæmt 46. gr. laga nr. 129/1997.
EFTIRLAUNASJÓÐUR
FÉLAGS ÍSLENSKRA
ATVINNUFLUGMANNA
(EFÍA)
BOÐAR TIL ÁRSFUNDAR
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Þar sem ég hef alltaf verið veik fyrir Eurovision hvarflaði ekki annað að mér en að fylgjast með keppninni í
fyrradag. Að sjálfsögðu ekki síst vegna
þess að fulltrúi Íslands, Jóhanna Guðrún,
átti að keppa fyrir okkar hönd. Húsbóndinn
á heimilinu kom sér út – enda er hann afar
lítið fyrir keppnina. Fjögurra ára sonurinn
var hins vegar reiðubúinn til að kíkja á
fyrirbærið með móður sinni. Ekki þurfti
nema hálft lag til þess að hrekja hann á
brott frá sjónvarpinu, honum leist ekkert á
þessi lög. Bragð er að þá barnið finnur.
Og ég verð að viðurkenna
að mig greip óþol, ég gat
ekki varist þeirri hugs-
un að lögin yrðu verri
með hverju ári sem
líður.
En gamla góða þrautseigjan kom
mér í gegnum keppnina og alla leið að
aðalatriðinu; tilkynningu á því hverjir
kæmust áfram. Þá tóku leikar náttúrlega
að æsast og upp rifjaðist aðalástæða þess
að maður horfir staðfastur á keppnina ár
hvert, sem er stigagjöfin í aðalkeppninni.
Að sjálfsögðu fagnaði ég gríðarlega þegar í
ljós kom að við komumst áfram og er strax
farin að hlakka til heilagrar Eurovision-
stundar á laugardaginn, þar sem ég mun að
minnsta kosti njóta þess að hlusta á stigin
lesin, einkum á frönsku.
Þess má að lokum geta að þegar ró var
komin í húsið ákvað ég að tékka aðeins á
því hvort sú tilfinning mín væri rétt að
Eurovision-lögin hefðu verið betri í þá
gömlu góðu. Þökk sé netinu getur maður
gert rannsóknir af þessu tagi með lítilli
fyrirhöfn. Það er skemmst frá því að segja
að með óhlutdrægri nálgun komst ég ein-
mitt að þeirri niðurstöðu, öll bestu lögin
voru komin fram fyrir árið 1987.
Bragð er að …
NOKKUR ORÐ
Sigríður Björg
Tómasdóttir