Fréttablaðið - 14.05.2009, Side 48
32 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Tónlistarhátíðin Vorblót var tilraun til að festa í sessi hátíð hér á landi
sem sérhæfði sig í heimstónlist, þjóðlögum og djassi. Hún varð ekki
langlíf, lognaðist út af eftir tvö ár, 2006 og 2007. Þetta var engu að
síður virðingarverð til-
raun. Hápunkturinn
á Vorblótinu 2007 að
mínu mati var tónleikar
malísku tónlistarkon-
unnar Oumou Sangaré.
Hrár kraftur og spila-
gleði einkenndi Oumou
og hljómsveitina
hennar.
Fyrir nokkru kom út
ný plata með Oumou
Sangaré. Hún heitir
Seya og er hennar
fyrsta plata með nýju
efni síðan 2003, en þá
sendi hún frá sér tvö-
faldan safndisk, Oumou, með átta nýjum lögum. Oumou hefur ekki
setið auðum höndum þessi sex ár. Hún hefur spilað á tónleikum af og
til, en líka verið að byggja upp fyrirtæki. Hún á og rekur hótel í Malí
og hóf fyrir nokkru að flytja inn kínverska jeppa sem henta víst sér-
lega vel vestur-afrískum aðstæðum. Það er í samræmi við baráttu
hennar fyrir auknu sjálfstæði kvenna, en sú barátta er áberandi í
textunum hennar.
Seya er snilldarplata. Hún er í ætt við fyrri plötur Oumou, þjóðleg
tónlist frá Wassoulou-héraðinu í Malí blönduð öðrum stílum af afrískri
tónlist, eins og afrófönki og eyðimerkurblús. Seya er margslungnari
en fyrri plöturnar ef eitthvað er. Undir söngnum kraumar þykkur
bræðingur litaður af þessum flotta hljómi sem afrísk hljóðfæri eins og
n’goni (malísk lúta), belgfiðla og ýmsar gerðir ásláttarhljóðfæra gefa.
Plötuna vann Oumou með Cheick Tidiane Seck en hann er margreynd-
ur upptökumaður og hljóðfæraleikari sem hefur m.a. unnið með Mory
Kanté, Touré Kunda, Salif Keita og Joe Zawinul. Það er greinilega
ekkert lát á flottri tónlist frá Malí.
Afríkudrottningin
ÍSLANDSVINUR Oumou Sangaré fer á kostum á nýju
plötunni Seya. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
> Í SPILARANUM
Wilco - Wilco
The Horrors - Primary Colours
Patrick Wolf - The Bachelor
Tortoise - Beacons of Ancestorship
Leaves - We Are Shadows
LEAVESWILCO
Breska rokksveitin Arctic Monk-
eys er þessa dagana að leggja
lokahönd á þriðju breiðskífu sína.
Trommarinn Matt Helders segir
í samtali við Drowned in Sound
að upptökum sé lokið og meðlim-
ir sveitarinnar séu hálfnaðir með
hljóðblöndun. Platan hefur ekki
enn fengið nafn. „Ég veit ekki
nákvæmlega hvenær hún kemur
út en það verður væntanlega í
ágúst,“ segir Helder.
Josh Homme, leiðtogi Queens
of the Stone Age, stjórnar upp-
tökunum á plötunni. „Við vorum
allir miklir aðdáendur sveitar-
innar löngu áður en við stofnuð-
um hljómsveit svo það er aug-
ljóslega mikill heiður að vinna
með manni eins og honum,“ segir
Helders, sem ber Homme líka vel
söguna. „Hann er frábær náungi
og mjög fyndinn.“
Arctic Monkeys
klárar plötu
NÝ PLATA Á LEIÐINNI Alex Turner og
félagar í Arctic Monkeys senda frá sér
nýja plötu í ágúst. NORDICPHOTOS/GETTY
Áttunda plata bandaríska rokktríósins Green Day
kemur út á morgun. Platan heitir 21st Century
Breakdown og er fyrsta hljóðversplata sveitarinnar
síðan American Idiot kom út 2004 við miklar vin-
sældir. Sú plata rakaði saman Grammy-verðlaunum
og hefur selst í yfir tólf milljónum eintaka.
21st Century Breakdown er þemaplata sem skipt-
ist í þrjá hluta: Heroes and Cons, Charlatans and
Saints og Horseshoes and Handgrenades. Þar kryfja
þeir Billie Joe Armstrong, Mike Dirnt og Tre Cool
bandarískt samfélag eftir stjórnartíð George W.
Bush þar sem ungt par er í forgrunninum. Fjalla
þeir um stjórnvöld, trúarbrögð, fjölmiðla og í raun
alls kyns yfirvöld á sama tíma og þriggja hljóma
pönkið fær að njóta sín.
„Við vissum að það yrði erfitt að toppa American
Idiot,“ sagði forsprakkinn Billie Joe. „Við hefðum
auðveldlega getað samið hefðbundin lög en okkur
langaði til að seilast enn lengra.“
Upptökustjóri var Butch Vig, sem er þekktastur
fyrir að hafa tekið upp meistaraverkið Nevermind
með Nirvana. 21st Century Breakdown, sem inni-
heldur smáskífulagið Know Your Enemy, hefur
fengið mjög góða dóma; fjórar og hálfa stjörnu í
Rolling Stone, fimm K í Kerrang! og 8/10 hjá NME.
Kryfja bandarískt samfélag
BILLIE JOE ARMSTRONG Armstrong og félagar gefa á morgun
út sína áttundu plötu, 21st Century Breakdown.
NORDICPHOTOS/GETTY
Rapparinn og ólátabelgur-
inn Eminem er kominn aft-
ur fram á sjónarsviðið eftir
fimm ára hlé með plötuna
Relapse. Dópneysla, skiln-
aður og dauði besta vinar
hans eru að baki og bjartari
tímar eru fram undan.
Eftir útgáfu Encore árið 2004, sem
fékk dræmari viðtökur en síðustu
Eminem-plötur, lýsti hann því yfir
að hann vildi taka sér hlé frá sóló-
ferli sínum um óákveðinn tíma.
Hann var orðinn þreyttur á sviðs-
ljósinu og ætlaði að einbeita sér að
upptökustjórn fyrir aðra rappara,
sérstaklega þá sem voru á mála hjá
útgáfufyrirtæki hans Shady Rec-
ords. Við útkomu safnplötunnar
Curtain Call: The Hits, árið 2005,
hafði hann þetta að segja: „Ég er á
þeim tímapunkti í lífinu að ég veit
ekki hvert ferillinn minn stefnir.
Þess vegna ákváðum við að kalla
plötuna Curtain Call vegna þess að
hún gæti orðið okkar síðasta verk.
Við vitum það bara ekki,“ sagði
hann.
Eminem fór í tónleikaferðalag
um Bandaríkin sumarið 2005 en
aflýsti fyrirhuguðu ferðalagi sínu
um Evrópu og skráði sig í meðferð
vegna fíknar í svefntöflur. Lítið
heyrðist í kappanum næstu árin.
Hann eyddi miklum tíma í upp-
tökustjórn, lét sólóferilinn sitja á
hakanum og beið þess að andinn
kæmi yfir hann. Einkalífið var
heldur ekki til að hrópa húrra fyrir.
Hann kvæntist fyrrverandi eigin-
konu sinni Kimberly Scott í annað
sinn en sá ráðahagur entist aðeins
í ellefu vikur. Um svipað leyti var
besti vinur hans, rapparinn Proof,
skotinn til bana fyrir utan nætur-
klúbb í Detroit. Eminem sökk enn
dýpra í lyfjamókið og lokaði sig
sífellt meira af. Hann yfirgaf varla
heimili sitt og neitaði að koma fram
opinberlega.
Smám saman náði hann þó áttum
og ákvað að gera nýja plötu með
vin sinn Dr. Dre við stjórnvölinn.
Eminem, sem hafði á síðustu plöt-
um sínum tekið aukinn þátt í upp-
tökustjórninni, vildi í þetta sinn ein-
beita sér að lagasmíðunum og þegar
upp var staðið stjórnaði hann aðeins
upptökum á einu lagi á plötunni. Í
viðtölum greindi hann frá því að
dauði Proof hefði verið innblástur-
inn að plötunni en hún væri engu að
síður bjartari en síðustu verk hans,
því sjálfur væri hann orðinn ham-
ingjusamari og hefði lært að sætta
sig betur við dauða vinar síns.
Þessi fimm ára hvíld Eminem frá
sviðsljósinu virðist hafa gert honum
gott.
Relapse, sem kemur út eftir helgi,
hefur fengið góða dóma, þar á meðal
fjórar stjörnur í Rolling Stone, og
nýja lagið We Made You sýnir að
okkar maður hefur nákvæmlega
engu gleymt. Aðdáendur hans geta
því tekið gleði sína á ný eftir erfiða
tíma, uppfulla af óvissu um framtíð
átrúnaðargoðsins.
freyr@frettabladid.is
Erfiðleikar Eminem að baki
SEGIR SKILIÐ VIÐ DÓP OG ÞUNGLYNDI Rapparinn Eminem gefur út sína sjöttu hljóð-
versplötu, sem nefnist Relapse. Dauði vinar hans, rapparans Proof, var innblásturinn
að plötunni, sem fengið hefur góða dóma.
Hljómsveitin Sudden Weath-
er Change heldur útgáfu-
tónleika á Grand Rokk á
föstudagskvöld. Tilefnið
er útkoma plötunnar Stop!
Handgrenade in the Name of
Crib Death ‘nderstand? sem
kom út á dögunum á vegum
Kimi Records við mjög góðar
undirtektir gagnrýnenda.
Á tónleikunum ætla strák-
arnir að spila nýju plötuna
í heild sinni, meðal annars
lagið Ampeg, sem krefst þess
að fjöldi magnarastæða af
gerðinni Ampeg verði notað-
ur auk þess sem fleiri en einn
bassaleikari er nauðsynlegur
til þess að allt gangi upp.
Á tónleikunum verður
einnig tilkynnt um sigurveg-
ara í ljósmyndasamkeppni
sem hljómsveitin hefur stað-
ið fyrir á Facebook undan-
farnar vikur. Þar var þátt-
takendum gert að senda inn
myndir af sér að herma eftir
umslagi plötunnar.
Hljómsveitirnar Skátar
og BoB stíga einnig á svið
annað kvöld. Ókeypis er á
tónleikana og verður Grand
Rokk opnað klukkan 21. Alls
konar varningur verður jafn-
framt til sölu.
Spila plötuna í heild sinni
SUDDEN WEATHER CHANGE
Hljómsveitin Sudden Weather
Change heldur útgáfutónleika á
Grand Rokk á föstudagskvöld.
Nýjasta plata Leaves, We Are Shad-
ows, er komin í þriðja sætið yfir
söluhæstu plötur tónlistarsíðunn-
ar Amie Street. Platan hoppaði
beint úr nítjánda sæti í það þriðja
og greinilegt að notendur síðunn-
ar kunna vel að meta ómþýða tóna
sveitarinnar. Lagið All the Streets
are Gold er jafnframt í fjórða sæti
á síðunni yfir vinsælustu lögin.
Þetta eru góð tíðindi fyrir Leaves
sem eyddi fjórum árum í gerð
plötunnar og gaf hana loks út síð-
asta mánudag á eigin vegum. We
Are Shadows er einnig fáanleg á
iTunes, Grapewire.net og víðar þar
sem enn fleiri aðdáendur Leaves
geta tryggt sér eintak.
Plata Leaves
selst vel ytra