Fréttablaðið - 14.05.2009, Page 56
40 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Hver man ekki eftir
plástrunum sem allir íþróttamenn
voru með á nefinu hérna fyrir
nokkrum árum? Þeir hurfu fljótt
af sjónarsviðinu þegar sannað
þótti að þeir hjálpuðu lítið eða
ekkert. Menn hafa samt ekki lagt
árar í bát með plástrana og nú
hafa svokallaðir Orkuplástrar frá
Lifewave slegið í gegn. Má því
segja að plástrarnir færi sig neðar
á líkamann.
Íslenskir íþróttamenn eru farn-
ir að nota þessa plástra í auknum
mæli og meðal annars KR-ingarnir
Bjarni Guðjónsson og Jónas Guðni
Sævarsson. Þeir eru ánægðir með
plástrana.
„Ég er búinn að spila með þessa
plástra síðan í febrúar. Þetta virk-
ar fyrir mig,“ segir Bjarni Guð-
jónsson. Hann spilar með orku-
og liðleikaplástra en hægt er að
fá alls konar plástra, meðal ann-
ars til þess að sofa betur og jafn-
vel grennast.
„Ég hef fundið mun á orkunni
hjá mér og verð minna þreyttur
með plástrana, hvort sem það er í
hausnum á mér eða ekki. Það skipt-
ir mig í raun ekki máli á meðan
mér finnst þeir virka,“ segir
Bjarni. „Menn eru farnir að biðja
um þessa plástra enda sjá þeir að
þetta svínvirkar. Ég er meira að
segja farinn að spila á kantinum,“
segir Bjarni léttur en hann setur
plástrana annað hvort á bringuna
eða fæturna á sér.
Á meðal þekktra íþróttamanna
sem sagðir eru nota þessa plástra
eru David Beckham, Michael
Phelps og Lance Armstrong. Í hóp
þessara manna er einnig kominn
fyrirliði KR, Jónas Guðni Sævars-
son.
„Ég finn fyrir smá orku þegar
ég er með plástrana. Samt ekkert
sem ég hef tekið mikið eftir. Þetta
er ekkert eins og að fá vítamín-
sprautu,“ segir Jónas Guðni, sem
hefur spilað með þessa plástra í
síðustu tveim leikjum.
„Má til gamans geta þess að ég
hef skorað í báðum leikjunum.
Þetta eru því markaplástrar fyrir
mig og ég mun halda áfram að
spila með þá á meðan ég skora,“
segir Jónas Guðni og bætir við:
„Ég fór á fyrirlestur og varð
hrifinn. Það er ekkert í þessu sem
á að fara inn í líkamann en á samt
að hjálpa manni. Það er bara hið
besta mál ef þetta virkar eins og
það virðist gera. Ef þetta hjálpaði
ekki nema bara andlega þá er það
ekki neikvætt heldur,“ segir Jónas
Guðni.
En hvað eru þessir plástrar
nákvæmlega og hvernig virka þeir
eiginlega?
„Þetta er í rauninni bara vísindi
og ekkert annað. Þetta byggir á
gömlu austurlensku fræðunum um
nálastungupunkta og orkubrautir
líkamans. Með því að setja plástr-
ana á ákveðna punkta er verið að
örva rafsegulsvið líkamans. Þetta
er ný tækni og plástrarnir koma í
staðinn fyrir nálarnar,“ segir Guð-
mundur Bragason, kynningarfull-
trúi fyrir Lifewave-plástrana.
„Þetta er lokað kerfi. Það eru
engin efni, krem eða lyf sem fara
inn í líkamann sjálfan heldur ein-
göngu tíðni. Þessi tíðni verður til
við sambland sykurs, súrefnis og
blöndu af amínósýrum sem eru
inni í plástrinum. Það er í raun
og veru bara hómópata-remedíur.
Þetta eru náttúruleg efni.“
Nú eru alltaf margir efasemda-
menn á sveimi þegar eitthvað
álíka þessum plástrum kemur
fram. Guðmundur segir að þetta
sé ekkert svindl.
„Alls ekki. Þetta virkar. Nef-
plástrarnir áttu bara að auka súr-
efnisflæðið með því að opna önd-
unarveginn. Það var ekkert í þeim
plástrum. Hér erum við aftur á
móti bara að tala um vísindi,“ segir
Guðmundur.
henry@frettabladid.is
Orkuplástrar eru nýjasta
æðið í íþróttaheiminum
Lifewave-orkuplástrarnir eru að slá í gegn hjá íþróttamönnum þessi misserin.
Fjöldi þekktra erlendra íþróttamanna hefur verið að nota þessa plástra og Ís-
lendingar eru að sjálfsögðu engir eftirbátar þeirra og keppa nú með plástra.
LÍKA Á FÆTURNA Plástrarnir eru settir á
svokallaða nálastungupunkta. Strákarnir
setja þá plástra líka á lappirnar á sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FLOTTIR MEÐ PLÁSTRANA KR-ingarnir Jónas Guðni Sævarsson og Bjarni Guðjónsson
nota báðir Lifewave-plástrana og eru ánægðir með þá. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
laugavegur 49 | sími 552 2020
tískuvöruverslun
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
FERSKT
EINFALT &
ÞÆGILEGT
PANTAÐU SÓMA VEISLUBAKKA
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar
Hauka í Iceland Express-deild
kvenna réðu í gær Henning
Henningsson, nýráðinn lands-
liðsþjálfara, sem þjálfara liðsins
næsta vetur. Henning þjálfaði
Haukastelpurnar 2001-02 og kom
þeim þá upp í efstu deild.
Margir reyndir þjálfarar eru
komnir í kvennadeildina fyrir
næsta vetur en fimm af átta
þjálfurum hennar hafa gert lið að
Íslandsmeisturum í annaðhvort
karla- eða kvennaflokki. - óój
Iceland Express-deild kvenna:
Henning þjálfar
meistara Hauka
STÖÐUHÆKKUN Henning var aðstoðar-
þjálfari Hauka í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
> Sverrir kominn til FH
Sverrir Garðarsson mun leika með FH-
ingum í sumar en í gær fékkst það staðfest
að gengið hefði verið frá lánssamningi
FH og sænska félagsins GIF Sundsvall
þess efnis. Sverrir lék síðast með
FH árið 2007 en var svo seldur til
Sundsvall. Lánssamningurinn gildir
til loka tímabilsins, sem þýðir að
Sverrir mun ekki spila í Svíþjóð í sumar.
Félagaskiptaglugganum verður lokað
hinn 1. september, nokkrum vikum áður
en tímabilinu hér á landi lýkur.
Sigurður Ingimundarson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfu-
bolta, ætlar að velja tólf manna hópinn sinn á Smáþjóðaleikunum á
sunnudagskvöldið. Fram undan eru fjórar æfingar á fjórum dögum og
þar munu tuttugu leikmenn berjast um tólf laus sæti.
„Við verðum að vinna þetta hratt því það er ekki mikill tími
fyrir æfingar. Það er allt í lagi. Við höfum síðan tíma til að
slípa liðið almennilega saman,“ segir Sigurður.
Það eru einhver forföll í íslenska landsliðinu og er þegar
ljóst að hvorki Jakob Örn Sigurðarson né Helgi Már Magn-
ússon verða með á Kýpur. Þá er líka óvíst hvort Hlynur
Bæringsson eða Jón Arnór Stefánsson verði með. Sigurður
er þó ekki búinn að afskrifa þá. „Það getur vel verið að Hlynur
verði með en þá þarf ýmislegt að ganga upp,“ segir Sigurður en
gengi ítalska liðsins Benetton í úrslitakeppninni á Ítalíu ræður
því hvort Jón Arnór verður með á Kýpur. „Ef Jón verður á
Ítalíu verður hann ekki með en ef hann er dottinn út,
sem ég vona ekkert, þá kemur hann með okkur,“
segir Sigurður.
Sigurður fagnar því að Pavel Ermolinskij ætli að
vera með landsliðinu í sumar. „Hann verður með í allt sumar og líka
í verkefninu í haust og það er gaman að því. Pavel er að spila mikið í
gulldeildinni á Spáni sem er mjög gott. Hann er að spila þar í 25 til 30
mínútur og er að standa sig nokkuð vel. Hann er klárlega spennandi
kostur og það verður gaman að fylgjast með honum í landsliðinu,“
segir Sigurður en Pavel, sem er 22 ára og tveggja metra leikstjórn-
andi, hefur ekkert verið með landsliðinu síðustu árin.
Íslenska landsliðið vann gullið á síðustu Smáþjóðaleikum þar
sem úrslitaleikurinn leystist upp eftir að Kýpverjar misstu alla stjórn
á sér og réðust bæði á íslensku leikmennina og dómara leiksins.
„Það verður spennandi að mæta Kýpverjunum aftur og það er
eins gott að menn verði tilbúnir í slagsmál. Nú verður ekkert
bakkað og leyft þeim að haga sér eins og villimönnum,”
segir Sigurður í léttum tón og bætir við: „Mér skilst
að það sé búið að setja einhverjar varrúðarráð-
stafanir í húsinu og aukna gæslu. Ég hef engar
áhyggjur því ég hef bara gaman af þessu,“ segir
Sigurður.
SIGURÐUR INGIMUNDARSON, ÞJÁLFARI KARLALANDSLIÐSINS: UNDIRBÚNINGUR FYRIR SMÁÞJÓÐALEIKA AÐ HEFJAST
Eins gott að menn verði tilbúnir í slagsmál