Fréttablaðið - 14.05.2009, Side 62
46 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. missa, 6. pot, 8. ískur, 9. fálm, 11.
samanburðartenging, 12. rými, 14.
kjöt, 16. sjó, 17. mánuður, 18. hluti
verkfæris, 20. átt, 21. steypuefni.
LÓÐRÉTT
1. dægurlagatónlist, 3. tvíhljóði, 4.
fargið, 5. tál, 7. raddfæri, 10. blekking,
13. er, 15. ávöxtur, 16. pumpun, 19.
tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. tapa, 6. ot, 8. urg, 9. pat,
11. en, 12. pláss, 14. flesk, 16. sæ, 17.
maí, 18. orf, 20. nv, 21. gifs.
LÓÐRÉTT: 1. popp, 3. au, 4. pressan,
5. agn, 7. talfæri, 10. tál, 13. sem, 15.
kíví, 16. sog, 19. ff.
„Samviska mín er hrein og ég mun heldur ekki
verða gjaldþrota,“ segir tónlistarmaðurinn Seth
Sharp, sem er hæstánægður þessa dagana. Banda-
ríski háskólinn Yale hefur ákveðið að falla frá dóms-
máli sem hann höfðaði gegn Seth vegna vangold-
inna skólagjalda. Skólinn hélt því fram að Seth hefði
aldrei greitt krónu af láni sínu frá því hann stund-
aði þar nám og krafðist í kjölfarið þriggja milljóna
greiðslu. „Ég var mjög feginn þegar lögfræðingur-
inn minn hringdi í mig og sagði að þeir hefðu hætt
við málið,“ segir Seth, sem tók þátt í X-Factor hér
um árið.
Seth segir að auðvelt hafi verið að sanna fyrir
rétti að skólinn væri að bera á hann rangar sakir.
Hann segist þó ekki vita nákvæmlega hvers vegna
málið var látið niður falla. „Kannski héldu þeir að
ég myndi ekki ráða mér lögfræðing vegna málsins
eða kannski héldu þeir að ég myndi bara borga
þetta. Ég vildi allan tímann að þetta færi fyrir rétt.
Mér fannst það best í staðinn fyrir að tala beint við
skólann,“ segir hann. Það margborgaði sig því nú
getur Seth gengið hnarrreistur um götur borgarinn-
ar eftir að hafa lagt sjálfan Yale-háskóla að velli.
Hann segist hafa fengið mikil og góð viðbrögð við
greininni sem Fréttablaðð birti um málið í síðustu
viku og fyrir það er hann afar þakklátur. „Fullt af
fólki hefur stoppað mig úti á götu og lýst yfir stuðn-
ingi við mig, sem er alveg frábært. Ég fékk líka
helling af tölvupósti og SMS-skeytum. Það hversu
margir stóðu á bak við mig í þessu máli er hreint út
sagt ótrúlegt.“ - fb
Seth Sharp lagði Yale að velli
SETH SHARP Tónlistarmaðurinn Seth Sharp er ánægður eftir að
hafa lagt sjálfan Yale-háskóla að velli. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
„Ég leik Skrögg, eða Scrooge,
draugana og allt. Þetta er ein-
leikur. Ég þarf að gera allt sjálf-
ur. Það er alltaf svoleiðis,“ segir
Þórhallur Sigurðsson eða Laddi.
Í gær skrifuðu Laddi og Bjarni
Haukur Þórsson leikhússtjóri
Loftkastalans undir samning þess
efnis að Laddi leiki eina þekktustu
jólasögu allra tíma eða Jólaævin-
týri eftir Charles Dickens. Sagan
segir af hinum fégráðuga Ebenez-
er Scrooge og samskiptum hans
við drauga um jólanótt. Sagan
kom fyrst út 19. desember árið
1843 og telst mikilvæg áminn-
ing um hinn sanna jólaanda. Að
sögn Bjarna hefur Jólaævintýri
reynst mörgum kvikmyndaleik-
stjóranum efniviður og margir
þekktir leikarar túlkað Scrooge.
„Þeirra á meðal George C. Scott,
Bill Murray, Kelsey Grammer
og Patrick Stewart. Einnig mun
glæný teiknimynd þar sem enginn
annar en Jim Carrey mun túlka
Scrooge líta dagsins ljós næsta
vetur,“ segir Bjarni Haukur. Hug-
myndin er að sýna verkið aðeins
í desember en keyra þá sýningar
nokkuð þétt. Taka svo upp þráðinn
að ári.
„Bara sýnt í desember, kannski
tuttugu sýningar eða svo. Og að
ári liðnu mæti ég aftur og flyt
þetta,“ segir Laddi en verkefnið
leggst sérlega vel í hann þó Laddi
segi þetta ekki létt verk. Hann
segir söguna og bregður sér í allra
kvikinda líki. Þó Laddi sé einhver
ástsælasti skemmtikraftur þjóð-
arinnar er hann vanur leiksvið-
inu og má meðal annars nefna
frábæra frammistöðu hans í Óli-
ver Tvist þar sem hann lék Fagin
– ræningjaforingjann í Þjóðleik-
húsinu fyrir margt löngu. Tónlist
og hljóðmynd skipa veigamikinn
sess í Jólaævintýri en leikgerðina
gera Jón Gunnar Þórðarson, Egill
Antonsson og Sindri Þórarinsson.
Leikstjóri er Jón Gunnar.
Sýningunni Laddi 6-tugur sem
sýnd var í Borgarleikhúsinu er
nú lokið eftir rúmar 120 sýningar
og áhorfendafjölda upp á tæplega
80 þúsund manns. „Jú, velgengni
þeirrar sýningar kom mér heldur
betur ánægjulega á óvart og ég er
í skýjunum yfir þeim viðtökum.
Þetta var mikil törn til tveggja
ára. Og menn hálf ómögulegir
eftir að þetta hætti. Sitja heima
hjá sér, hringja hver í annan og
segja: Eigum við ekki að fara að
hittast. Þetta er skrýtið ástand
eftir að hafa umgengist hópinn
svo mikið og reglulega.“
jakob@frettabladid.is
BJARNI HAUKUR: SÝNINGIN VERÐUR KEYRÐ Í DESEMBER ÁR HVERT
Laddi leikur Ebba Skrögg
SKRIFAÐ UNDIR SAMNINGINN Í LOFTKASTALANUM Í GÆR Hugmynd Bjarna Hauks, um að Laddi leiki Skrögg í Loftkastalanum ár
hvert í desember, er einhvern veginn þess eðlis að hún getur vart klikkað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Ég hlusta á Village People,
samíska joikara sem heita
Vaijas og svo hlusta ég á sönglög
með Schubert, Bach og Ellý
Vilhjálms.“
Hulda Hákon myndlistarkona.
„Það var stjórnarfundur hjá félag-
inu í morgun [í gær] og það sem
þar fór fram er trúnaðarmál,“
segir Björn Ingi Hilmarsson
stjórnarmaður í Félagi íslenskra
leikari (FIL).
Fréttablaðið sagði af afar mik-
illi óánægju sem birtist í bréfi
sem Edda Björgvinsdóttir setti á
póstlista FIL þar sem hún varaði
leikara við að tala við „vafasama
prentmiðla” og á þar vísast við
DV. Edda segir: „...það er komið
algjörlega aftan að ykkur, þið
gerð að fíflum og niðurlægð með
samhengislausum, heimskulegum
og villandi forsíðutexta og ömur-
legum fyrirsögnum.“ Í öðru bréfi
Eddu, sem Björn Ingi sendi áfram
á póstlistann, undrast hún mjög
að bréfið hafi ratað til fjölmiðla
og vill meina að í örfrétt blað-
isins þar sem vakin er athygli á
óánægju sem birtist í fyrra bréfi
sé gert lítið úr henni. Björn Ingi
undrast mjög að þessi bréf séu í
höndum Fréttablaðsins og telur
um trúnaðarmál að ræða.
Í seinna bréfi Eddu ítrekar hún
þá skoðun sína að fjölmiðlar bók-
staflega níðist á leikurum: „Við
vitum öll um afar marga í okkar
stétt sem hafa verið niðurlægðir
oftar en einu sinni á forsíðum og
baksíðum blaða og tímarita þegar
þeir hafa látið tilleiðast að leyfa
fjölmiðlafólki að opna sálarkirnur
sínar, í þeirri von að vakin verði
athygli á einhverju leikverki, bíó-
mynd, námskeiði etc. sem okkur
er uppálagt að standa við bakið
á, m.a. með því að þiggja viðtöl í
hinum ýmsu fjölmiðlum,“ skrif-
ar Edda. Í klausu sem fylgir bréf-
inu upplýsir Björn Ingi félags-
menn um að málið verði tekið
fyrir á stjórnarfundi. Í samtali
við Fréttablaðið vill hann ekki
upplýsa hvort ályktunar og/eða
aðgerða sé að vænta frá félag-
inu. Hann lýsti jafnframt þeirri
skoðun sinni að hann teldi fjölda-
póst til félagsmanna FIL vera
einkamál. - jbg
Leikarar í fári vegna leka af fjöldapóstlista
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR
Varar leikara eindregið við vafasömum
prentmiðlum og sparar hvergi stóru
orðin.
Listahátíð í Reykjavík hefst á morg-
un og virðast sumir viðburðir á
hátíðinni ætla að slá
í gegn. Einn þeirra
eru tónleikar
mexíkósk-kan-
adíska söngva-
skáldsins Lhasa
de Sela sem
seldist fljótt
upp á. Nú
mun vera
afráðið
að efnt
verður til
aukatón-
leika með
Lhasa. Verða
þeir á Nasa sunnudagskvöldið 24.
maí klukkan 20. Ef einhver skyldi
hvá yfir vinsældum Lhasa hér á
landi og spyrja hverju sæti má
benda á að söngvaskáldinu hefur
verið líkt bæði við Tom Waits og
Edith Piaf. Ekki amaleg meðmæli
það.
Einkaþjálfarinn Egill „Störe“ Ein-
arsson fagnaði 29 ára afmæli sínu
í gær. Kappanum gafst þó ekki mik-
ill tími til þess að njóta dagsins því
auk þess að sinna tugum kúnna
sem hann er með í einkaþjálfun
er Egill að skrifa lokaritgerð sína til
prófs í íþróttafræði. Útskriftin er í
júní og lokaritgerðin
fjallar um tengsl milli
lífshátta og árang-
urs í þrekprófum
hjá unglingum í
íþróttum.
- hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Opið virka daga kl. 8:00 til 17:00
www.velaland.is
VESTURLANDSVEGUR
VAGNHÖFÐI
VÉLALAND
HÚSGAGNA-
HÖLLIN
TANGARHÖFÐI
BÍlDSHÖFÐI
H
Ö
FÐ
A
B
A
K
K
I
REYKJAVÍK
Vélaland - VAGNHÖFÐA 21
Sími 577-4500
Vélaland sérhæfir sig í tímareimum.
Komdu í Vélaland og fáðu ráðgjöf um skiptingu
á tímareim. Vélaland skiptir fljótt og vel um
tímareimina fyrir þig, á föstu verði.
Fáðu ráðgjöf um tímareimaskipti
Er tímareimin komin á tíma?
Fast verð hjá Vélalandi
Skoðaðu fast verð hjá Vélalandi. Hringdu
núna í síma 577-4500 og pantaðu tíma.
Verðdæmi um tímareimaskipti:
Nissan Patrol 2,8 dísil Árgerð 1992-2000
Heildarverð, varahlutur og vinna: 49.088 kr.
Toyota Land Cruiser 90 3,0TD Árgerð 1997-2002
Heildarverð, varahlutur og vinna: 36.925 kr.
Toyota Corolla 1,6 bensín Árgerð 1997-2001
Heildarverð, varahlutur og vinna: 35.987 kr.
VW Golf 1,6AEE bensín Árgerð 1997-2006
Heildarverð, varahlutur og vinna: 46.774 kr.
Ford Focus 1,6 bensín Árgerð 1998-2005
Heildarverð, varahlutur og vinna: 38.948 kr.
Sjáðu hvar við erum. Hringdu núna í síma
577-4500 og pantaðu tíma.
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU