Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.1914, Page 4

Skinfaxi - 01.05.1914, Page 4
60 SKINFAXI Og þau halda áfram að Iáta mönnum haldast þaS uppi, að svíkja. Ein afleið- ingin af því, út af fyrir sig, er sú, að blöð- in verða ónýt, geta engu til kostað, hvorki um forustu, efni, frágang eða framkvæmd nauðsynjamála; eru þetta þó leiðtogar þjóðarinnar taldir og verður henni líka að þvi. Skuldir almennings við viku- og mánað- arblöðin eru alveg botnlausar, æfagamalt samsafn af vanskilum kaupendanna og ó- dugnaði blaðanna sjálfra. Og jafnvel tíma- ritin, Bókmentafélags og Fornleifafélags. vinna ekki á. Rétt að kalla undir handar- jaðrinum á ötulum innheimtumanni Bók- menntafélagsins er að allra dómi vel stæð- ur embættismaður, sem skuldar því 24 kr. — fjögur ár. Og ennþá nær höfuðbóli b’ornleifafélagsins er annar embættismaður, sem skuldar því félagi fyrir árbókina öll árin síðan 1882, — 32 ár eða alls 64 krónur. Maður sér þetta af þvi að það er prentað, — en þeir kæra sig kollótta. Og svo telja menn, að þetta séu menn, sem ekki vilji vamm sitt vita. Þetta má eigi svo til ganga. Blöðin ættu öll að taka hér í taumana. En hvað sem því liður ætlar Skinfaxi ekki að raunalausu að verða til að auka á óskilvísi og svik- semi í landinu. Hann ætlar að ganga eftir sínu, en fái hann það ekki, þá hættir hann að vera til. Hann vill ekki, jafnvel þótt hann trúi því, að hann geti gert noklc- urt gagn, búa við þau kjör, að safna skuld- um í þeirri von að menn muni standa í skilum við hann seint og síðar meir, veit sem er að það yrði til þess eins, að hann yrði að svíkja aðra. Börnin hafa verið talin ábyggilegustu blaðkaupendurnir, og barnablöðin því trygg- ustu blaðfyrirtækin. Foreldrarnir hafa ekki kunnað við það, að láta þau standa í van- skilum, og þau hafa sjálf beðið um að þurfa þess ekki. En er þá svona mjótt í rnilli? Er ó- hugsandi að unglingarnir geti líka staðið í skilum ? Flest eru það unglingar, sem kaupa Skinfaxa, og nú skuluð þið sjá skiÞ semina þar, Blaðið er fjögra ára, árgangurinn kost- ar 1 kr. Við síðustu áramót stóðu reikn- ingarnir þannig: B.fj.S. 60 kaupendur, 30 þeirra skulda kr. 35,50 Mýrasl. 35 — 11 — 18,00 Snæf.ns. 9 — 6 — 11,00 Dalas. 5 — 2 - 5,50 B.str.s. 34 — 6 34,00 V.-ísafjs. 59 — 6 — 52,00 N.-ísafjs. 12 — 7 — 14,00 Strands. 18 — 6 — 10,00 Húnavs. 48 — 23 - 69,00 Skagfj.s. 21 — 2 - 2,00 Eyjafj.s. 52 — 11 - 52,00 S.-Þings. 60 -- 38 - 69,00 N.-Þings.20 — 2 - 33,00 S.-Múls. 35 — 11 - 25,50 N.-Múls. 46 , 6 — 40,00 A.-Skfs. 35 — 4 _ 9,00 V.-Skfs. 54 — 6 — 45,00 Rangvs. 49 — 16 - 28,00 Arnss. 107 — 35 - 94,00 G.-Kjs. 77 — 10 - 25,00 Rvík 152 — 19 — 19,00 Vestms. 16 — 2 — 5,00 Útlönd 13 — 3 — 4,50 Alls 1017 262 580,00 Svona er nú það, og er ekki efnilegt. Þó mun mega ætla, að einhverstaðar sé ástandið verra. Því þetla er þó blaðið, sem margir telja einna skást. Það á fjöl- mennan félagsskap við að styðjast og ó- neitanlega verður það þess víða vart, og þar að auki leggur það á borð með sér bæði meir og betur en önnur blöð, þar sem er fylgiritið til allra skilvísra kaup- enda. 1912 kom skógræktarritið, 75 aura virði, litlu minna en Skírnishefti þá, rit sem var lofað í flestum eða öllum blöð- um og tímaritum, enda mátti heita, að það ár heimtist vel inn; í fyrra kom ekkert rit en í þess stað koma tvö þetta árr Heimilisiðnaðarrit og Þjóðfélagsfrœði

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.