Skinfaxi - 01.02.1915, Síða 15
SKINFAXI
23
hlaut góðan orðstír. Hann er nú leikfim-
is- og iþrótta-kennari við skólana í Hafnar-
firði. Siðan hann kom þangað hefir íþrótta-
lífi bæjarins íarið fram til muna.
Tveir Pálar
Jónsson og Zóphóníassón eru kenn-
arar við Hvanneyrarskólann, svo sem les-
endum Skinfaxa mun kunnugt. I vor sem
leið tóku þeir sína jörðina hvor, og komu
sér upp búi. Vinna þeir að búum sínum
á sumrin en kenna á veturnar. Er þetta
eitt merki um viði'étting landbúnaðarins á
síðustu árum. Fyrir 10 árum hefði verið
álitin brjálsemi af mönnum í þeirra spor-
um að fást við búskap og erfiðisvinnu. —
Heimur batnandi fer!
Þórólfur Sig-urðsson
frá Baldursheimi í Mývatnssveit dvelur
í Rvík og ferðast um Suðurland nú í vet-
ur. Hann er í stjórn hins nýstofnaða
sambands þingeyskra ungmennafélaga. Sagt
er að hann muni kaupa fyrir Kaupfélag
Þingeyinga flutningabifreið til að flytja á
J'ungavarning ýmsi-a hreppa þar i sýslu,
frá Ilúsavik suður í Breiðumýri. Er sú
vegalengd um 50 km. Búist er við, að
nýung þessi verði til mesta Iéttis fyrir sýslu-
búa, og knýi þá ennfremur til að bæta
svo vegi út frá akbrautinni, að innan skams
verði fært bifreiðum um alla sýsluna.
Kjarval indlari
dvelur nú í Höfn í vetur, til að læra
betur list sína. Málverk þau er hann gerði
hér í sumar hafa vakið almenna aðdáun
þeiri-a er séð hafa.
Jóu Þorbcrg-ssou
fjárræktarmaður var í vor og framan af
sumri í Skotlandi og Hjaltlandi til að kynna
sér betur en áður ýmislegt er lýtur
að fjárrækt. Hann færir í síðasta hefti
Búnaðarritsins sterkar líkur fyrir, að Is-
lendingar gætu grætt stórfé á að flytja
inn dálítið af útlendu sauðfé, stærra
en okkar sauðfé, og blanda því saman
við íslenskar kindur og ala upp sláturfé.
Eiginlega efast enginn um að þetta sé rétt.
En dýralæknirinn í Rvík hefir lagt blátt
bann á allan innílntning, vegna sýkingar-
hættu. En líklega fer þó svo innan
skamms, að hann verði að beygja sig í
því efni.
Félagsmál.
Skiðaferölr.
U. M. F. Önfirðinga hefir látið gera
silfurpening, sém gengur á milli bestu
skíðamanna í félaginu. Er kept um hann
árlega. Þetta er ágætur siður og ættu sem
flest félög að hafa þessa venju til að
hvetja unglingana fram til íþrótta.
Erliugur Pálsson
bar enn sigur úr býtum við nýárssund-
ið. Var kept um nýjan bikar, sem Guð-
jón Sigui'ðsson hafði gefið. Sá sem vinn-
ur bikarinn 5 sinnum í röð, fær hann til
eignar.
Bréfakvöld.
Sambandsstjórnin hefir ákveðið að sam-
bandsfélög þuifi ekki að borga fyrir aug-
lýsingar um bréfakvöld, og önnur nauð-
synleg félagserindi, sem birt verða fram-
végis í Skinfaxa.
Björu Guðmuudsson
form. U. M. F. V., biður að láta þess
getið, að Einar ritstjóri Gunnarsson í Rvík
hafi gefið ungmennaskólanum á Núpi all-
mikið af bókum og náttúrugripum. Sá
skóli er eitt hið besta útvirki ungmenna-
félagsskaparins i landinu og megum vi5
félagsbræður vel gleðjast yfir hverjum
sóma sem honum er sýndur.
U. M. F. Kennaraskðlans.
er nú endurrisið. Fyrst þegar skólinn
var stofnaður, mynduðu nemendur U. M.
F. og var búist við að eigi yrði annað
alment félag í skólanum. En það gaf eigi