Skinfaxi - 01.10.1915, Blaðsíða 8
112
SKINFAXI
og minna stundað skógrækt. Sum hafa
tekið nýja bletti til skógræktar, haldið
við hinum gömlu, gróðursett í þá, hlúð
að eldri plöntunum, komið upp trjá-
görðum heima við bæi o. s. frv. Eitt
félag sunnanlands hefir tekið t. d. 3600
□ m. blett til skógræktar. Skýrslurn-
ar geta um að 2000 plöntur haíi verið
gróðursettar, en þær eru þó miklu fleiri,
þvi að víða er getið um að gróðursett-
ar hafi verið plöntur, en ekki tekið
fram hve margar. Félögin á Norður-
landi hafa lagt fram um 715 kr. til
plöntukaupa og gróðursetningar. Aust-
firðingafél. hafa unnið 30 dagsverk við
skógrækt í Eiðahólma í Fljótsdalshér-
aði o. s. frv.
10. Iþróttir. — Þessar iþróttategundir hafa
verið æfðar í félögunum: Glímur, sund,
hlaup, stökk, skiðaferðir, skautahlaup,
knattspyrna, „Mín aðferð“ o. s. frv.
I þremur félögunum norðanlands, hafa
t. d. verið haldnar 40 glímuæfingar.
. Þá hafa ýms félög kostað sundnáms-
skeið og glímuskóla. I Reykjavík var
. haldið íþróttanámsskeið eins og að
undanförnu fyrir félögin í Sannlend-
ingafjórðungi.
íþróttamót var haldið í Reykjavík
um vikutíma síðastliðið vor. Styrktu
öll félögin i sambandinu það með 400
kr. framlagi.
1L- Yms störf, sjálfboðavinna o. fl.:
Austfirðingafjórðungur:
U. M. F. Þór á Eiðum lauk við að búa
til íþróttavöll.
Norðlendingafjórðungur:
U. M. F. Geisli heyjaði 40 hesta.
— „— Oxndæla jók heyforða sinn
um 15 hesta.
— „— Akureyrar endurbætti leikvöll,
sem félagið á.
Vestfirðingafjórðungur:
U. M. F. Mýrarhrepps vann ÍO1/^ dags-
verk við vegavinnu í hreppn-
um, stundaði heimilisiðnaðo.fl.
U. M. F. Vorblóm vann 22 dagsverk
við vegavinnu.
— „— Örn æfði söng og sjónleiki.
Sunnlendingafjórðungur:
U. M. F. Akraness stundaði garðyrkju
og gekst fyrir stofnun ung-
lingaskóla.
— „— Baldur stundaði garðyrkju.
— „— Biskupstungna sló tún fátæks
einyrkja endurgjaldslaust. Fé-
Iagið hafði handavinnusam-
kepni.
— „— Björn Hítdælakappi vann 30
dagsverk endurgjaldslaust við
vegavinnu.
—„— Dagrenning endurbætti sund-
laug.
— „— Drífandi hélt hlutaveltu til á-
góða fyrir húsgerðarsjóð sinn.
— „— Egill Skallagrímsson pældi
móa, og undirbjó þá til gras-
ræktar.
— „— Gnúpverja hafði umsjón með
lestrarfélagi hreppsins.
— „— Haukur vann að heyskap end-
urgjaldslaust hjá fátækri ekkju,.
og endúrbætti hús félagsins.
— „ — Hekla bygði sundlaug.
— „— Reykjavíkur og U. M. F. Ið-
unn unnu saman að skíða-
brautargerð.
— „— Reykdæla lagði 300 m. lar.g-
an veg.
— „— Samhygð vann að girðingu og
garðrækt.
— „— Skarphéðinn gróf skurð og.
gerði við sundlaug.
— „— Skeiðamanna bygði sundlaug-
—„— Skjaldborg stofnaði lestrar-
félag.
— „— Stokkseyrar Iagði stund á
heimilisiðnað og sá um söng-
kenslu.
Á Suðurlandi vantar skýrslu frá þess-
um félögum: U. M. F. Baula, U. M. F.