Skinfaxi - 01.04.1916, Síða 12
44
SRINFAXI
ævo alt verður glundroði og fimbulfamb út
i loftið, sem enginn getur hent reiður á
né botnað í. En flestum kemur saman
um að knýja þurfi þegnskylduna fram með
Jagaboði, hvað sem tautar. Og þegnskyldu-
lögin eiga að efla hjá mönnum þjóðrækni,
ættjarðarást og ýmsar dygðir, á svipaðan
hátt eins og danska stjórnin um eitt skeið
áleit, að bæta mætti trúrækni og siðferði
íslendinga með eintómum Iagaboðum.
Á þessum grundvelli liggur það í aug-
um uppi að félagsskapur, eins og ung-
mennafélögin, gæti ekki eindregið aðhylst
þegnskylduna, hve góð sem hugmyndin
annars kynni að vera. Og einkum þegar
á það er litið að félagsskapurinn getur
enga hlutdeild haft í því, hvernig fram-
kvæmd málsins skuli hagað, því að þeir
einir fjalla um málið, sem yfirleitt eiga
engan þátt í ungmennafélagsstarfinu og
láta sig því litlu varða tillögur ungmenna-
félaga, þegar því er að skifta.
Menn, sem alast upp með hugsjónum
ungmennafélaganna og hafa starfað að
þeim í félögunum eru sjálfkjörnir, er þeir
taka við opinberum trúnaðarstörfum í þjóð-
félaginu, að koma áhugamálum ungmenna-
félaganna á framfæri hjá aimenningi. Ef
ungmennafélögin hefðu yfirleitt aðhyllst
þegnskylduna, og viljað koma henni í
framkvæmd, mundu þau hafa valið þessa
leið, í stað þess að fela lítt þektum eða
óhlutvöndum stjórnmálamönnum málið til
meðferðar á alþingi, er gerði það að póli-
tísku flokksmáli, og hefði félögin að leik-
sopp.
Guðmundur Davíðsson.
Heim.
Morgunroðinn bak við skýin skín
skuggarnir lækka, það dagar.
Ur hafinu stígur ströndin mín,
standbjörg og skagar —
yfir blástraum blikandi Iagar,
— sem dreymandi, hikandi hilling
hefjast í árroðans þögulu stilling.
Sviðið er alt eitt undralin
ofið af sól og stilling.
Draumur, vaka, held ég heim?
Heim til Fróns?
Til ættjarðar Ulfljóts og Jóns?
Frá glóðum hins brennandi báls
i bræðralund Þorgeirs og Njáls?
Frá menningu morða og kvala
og málmskeytahreim,
til Islands draumgrænu dala?
Árni Öreiða.
(. S. I.
Iþróttasamband íslands er stofnað 28.
janúar 1912 og hefir þess fyr verið getið
hér í blaðinu. Tilgangur þess er að auka
félögunum afl og samtök með þvi að lúta
öll einni yfirstjórn, og hlíta allsherjarregl-
um, að vera fulltrúi Islands um öll íþrótta-
mál gagnvart öðrum þjóðum, og að styðja
af megni íþróttir og fimleika, er horfa til
eflingar líkamlegrar og andlegrar orku hinn-
ar íslensku þjóðar.
Stefnan er ágæt, og því sjálfsagt fyrir
öll íþróttafélög að aðhyllast hana, og eftir
megni efla I. S. í., með því t. d. að ganga
í sambandið. Á aðalfundi I. S. í. í fyrra
var samþykt að afnema ársgjald sambands-
félaga I. S. I., var það gert til að ekkert
gæti hindrað íþróttafélög að ganga í sam-
bandið.
I fyrra kom á markaðinn „íþróttabókin“,
sem svo hefir verið kölluð er, það Iög og
leikreglur í. S. í., mjög þörf bók. Segir
þar nákvæmlega frá öllu er viðvíkur lög-
um og leikreglum i kappleikjum, o. m. fl.
Eins og áður er sagt þurfa sambands-
félö^ I. S. I. ekki að greiða neitt ársgjald
til I. S. í., en eiga einungis gefa árskýrslu