Skinfaxi - 01.06.1916, Page 14
78
SKINFAXI.
lögur frá þeirra hendi mundu teknar til
greina?
HvaS yrði um starfsemi sambandsins, ef
það léti aldrei önnur mál til sín taka en
þau, er það eitt gæti ráðið niðurlögumá?
Eg sé ekki að þegnskyldan sé í þessu efni
neinum öðrum lögum háð en önnur mál.
Niðurlag greinarinnar hlýtur að eiga
heima á öðrum stað, því allir vita að ung-
mennafélögin hafa ekki falið neinum stjórn-
málamönnum þegnskyldumálið. I því er
•eg samdóma sambandsstjóra, að ekkert
ungmennaféiag hefði getaö haldið þá leið,
sem mentaskólafélagið gerði. Vér getum
«kki faliö öðrum hugsjónamál vor til fram-
kvæmda en þeirn, er vér vitum með vissu
að skilja hugsjón vora. En mér dylst
ekki, að flutningsmaður þegnskyldumálsins
á alþingi siðast, hefir ekki skilið hugsjón
þess máls.
Afstaða ungmennafélaganna til þegn-
skyldumálsins, verður að mínu áliti varla
dæmd eftir þvi, hvort sambandsstjóri er
andstæður því eða ekki. Mér virðist hér
vera tvent til að að byggja á.
1. Samþyktir sambands og fjórðungs-
þinga. Þær eru nokkuö margar til, og
ganga aliar, sem ég þekki þegnskyldunni í
vil.
2. Yfirlýsingar einstakra félaga. Fjórð-
ungsþing Sunnlendinga hefir tvívegis skipað
milliþinganefnd i málið, og hafa nefndir
þær í bæði skiftin leitað álits félagsmanna.
1910—1911, var allur þorri félaganna með
þegnskyldunni. Síðan hefir félögum fjölg-
að aö mun og í vetur voru svörin misjöfn
en mjög mörg félög svöruðu ekki. Þrjú tjá
sig mótfallin hugmyndinni.
Af þessu dreg eg þá ályktun, að sam-
bandið sem heild geti að svo stöddu ekki
skift sér neitt af málinu. En tel þeim fé-
lögum, er áhuga hafa á málinu skylt að
vinna eftir megni að því, að útbreiða þekk-
ingu og auka skilning á hugmyndinni.
Vonandi verður þetta atkvæðagreiðsluflan
þegnskylduvinum nógu dýrkeypt reynsla
til að færa mönnum heim sannanir um,
að hugsjónarmál eiga ekki heima á lög-
gjafarþingum, fyr en einhver gögn eru
fyrir hendi til framkvæmda. Fyrst og
fremst verða löggjafarnir þá að skilja
hugsjónina. Á þessum grundvelli skilst
mér að ungmennafélögin hljóti ávalt að
vinna fyrir málið. Þeir beitt sér fyrir
því starfi, sem áhugann hafa, hvort sem
þeir eru í félagsstjórnum U.M. F. eða ekki.
Reyna að vekja áhugann hjá öörum, uns
markinu er náð. Skinfaxi hefir lofað að
ala á málinu öðru hvoru. Eg treysti hon-
um til að standa við orðin.
Steinþór Guðmundsson.
Fjórðungsþmg D. M. F. Vestf jarða 1916
háð að Núpi í Dýrafirði dagana 20.—22. apríl.
Á þinginu mættu 9 fulltrúar frá 5 fje- ,
lögum af 7 sem eru í fjórðungnum.
Málefni:
I. íþróttatstarfsemi og fyrirl. Til-
laga samþykt:
„Fjórðungsþingið felur fjórðungsstjórn-
inni að sjá um að sendur sé maður á
væntanlegt íþróttanámsskeið í Reykjavík,
sem kenni íþróttir á tjórðungssvæðinu á
næsta vetri. Sömuleiðis að sjá um að
fenginn sé maður til að ferðast um félög-
in og flytja fyrirlestra; og jafnframt að
útvega sem ríflegasta aðstoð sambandsins
í þessu efni“.
II. Skýrslur félaganna. Tillaga sam-
þykt:
„Að gefnu tilefni ákveður fjórðungsþing-
ið að hér eftir semji félögin starfsskýrsl-
ur sínar um áramót, og sendi þær til sam-
bandsstjóra í janúarmánuði ár hvert“.
III. Heimilisiðnaðarnámsskeið. Sam-
þykt tillaga:
„Fjórðungsþingið ályktar að veita 75
krónur til heimilisiðnaðarnámskeiðs á Isa-