Skinfaxi - 01.06.1916, Blaðsíða 15
SKINFAXI.
79
firði, með þeim skilyrðum sem fjármála-
nefndin hefir sett“.
IV. Þegnskylduvinna. Samþyktar til-
lögur:
a. „Fjórðungsþingið álitur heppilegt að vinna
að framgangi þessa máls með því, að
stofnað verði til sjálfboðavinnu í þarfir
þjóðarheildarinar, þó í smáum stíl, fyrst
í stað, þar sem aðaláherslan verði lögð
á það, að starfið hafi þroskandi gildi
fyrir vinnendur bæði andlega og líkam-
lega.
b. „Fjórðungsþingið álítur að meðferð máls-
ins á síðasta alþingi hafi verið málinu
óheppileg, og skorar á alla atkvæðis-
bæra menn, sem hlyntir eru þegnskyldu.
hugmyndinni í einhverri mynd að skila
auðum seðlum við kosningarnar“.
V. Ferðakostnaður þingmanna. Til-
lögur samþyktar:
a. „Fjórðungsþingið samþykkir þannig lag-
aðan viðauka við 14. gr. fjórðungslag-
anna: Þeim helming þingkostnaðirins
sem félögunum ber að greiða, sé jafn-
að niður á félögin eftir meðlimafjölda
þeirra“.
b. „Með tilliti lil þess, að næsta ár er
sambandsbing, ákveður fjóðungsþingið,
að það ár greiði fjórðungssjóður aðeins
helming þess kostnaðar, sem af þinginu
leiðir á þingstaðnum, en öllum öðrum
kostnaði, eftir sanngjörnum reikningum,
sem af sendingu fulltrúanna leiðir, sé
jafnað niður á félögin“.
VI. Leikvöllur á ísafirði. Samþykt
tillaga:
„Með því að ekkert fé er fyrir hendi,
sér þingið sér ekki fært að sinna fjárbeiðní
U. M. F. ísfirðinga til leikvallar á ísafirði".
VII. Sambandsmerki. Samþykt tillaga:
„Fjórðungsþing Vestfjarða æskir þess,
að sem fyrst verði gefin út sambandsmerki
þau, er síðasta sambandsþing fól samb.stj.
að láta gera og aðhyllist að það merki
sé bláhvíti fáninn; einnig að hann sé hylt-
ur og hafður sem félagsfáni“.
VIII. Fyrirspurn til sambandssljórn-
ar um löggildi deildarfunda. Samþykt
tillaga:
„Með því að félög hér í fjórðungnum
eru mörg dreifð yfir svo stórt svæði að
þau verða að starfa í deildum, en reynsl-
an sýnir að erfitt er að koma á 6 sam-
eiginlegum fundum, finnur þingið ástæðu
til þess að spyrja, hvort félögin missi rétt-
indi við fækkun sameiginlegra funda en
fjölgun deildafunda.“
IX. Nœsta fjórðungsþing ákveðið á
Isafirði um mánaðarmótin mars og apríl.
X. Birting þinggerðanna. Samþykt
að senda útdrátt úr þinggerðunum til birt-
ingar í Skinfaxa.
Samþykt áætlun fyrir næsta reikningsár.
Tekjur: Kr.
Eftirstöðvar f. f. á...............64,44
Skattur frá U. M. F. Ísfirðinga f. 1916 11,20
Ógreiddur skattur frá U. M. F.
„Skjöldur“ f. 1916 . . . • . 11,00
Skattur af 300 meðlimum f. 1917 105,00
Tíauragjald úr Sambandssjóði . 27,10
Samtals kr. 218,74
Gjöld: Kr.
Kostnaður við fjórðungsþing 1916 25,00
— — — stjórnina 20,00
Til íþrótta og fyrirlestra . . . 65,00
Til heimilisiðnaðarnámsskeiðs á ísa-
firði..............................75,00
Upphæðin veitist sem styrkur til U.
M. F. ísfirðinga gegn því skilyrði, að
félagar innan fjórðungsins hafi ókeyp-
is aðgang að námskeiðinu, að það
standi ei skemri tíma en 6 vikur, og
að kennarinn sé viðurkendur af fjórð-
ungsstjórninni.
Óviss útgjöld.....................20,00
í sjóði við árslok................13,74
Samtals kr. 218,74
Kosnir í stjórn fjórðungsins:
Forseti: Björn Guðmundsson, Næfra-
nesi, Dýrafirði.