Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.07.1916, Qupperneq 6

Skinfaxi - 01.07.1916, Qupperneq 6
68 SKINFAXl Fagrar listir. Banki Ásgríms málara. Þegar Landsbankinn brann í fyrra var mönnum gefinn kostur á að keppa um, hver gert gæti besta teikningu að nýrri bankabyggingu. Þetta mun hafa orðið til þess (þó að ekkert yrði úr kaþprauninni) að Ásgr. málari fór að hugsa um hvernig, hann vildi hafa bankann. Síðan málaði hann mynd þá sem hér fylgir, en Ríkarð- ur myndhöggvari gróf hana í málm fyrir Skinfaxa. Bankamynd Ásgríms vakti allmikið um- tal og skiftust menn mjög í tvo flokka. Sumir álitu að húsið (ef bygt væri eftir teikningu þessari) yrði mjög ljótt, yrði einfaldur kassi. Þar að auki væru annmarkar á frá sjónarmiði húsgerðarfræð- innar. Flöt þök ættu illa við á íslandi, efrihæðin byrgði fyrir Ijós inn í neðri hæð. Birta fengist ekki sæmileg inn í kjallarann, ef stigaþrey væri meðfram allri framhlið- jnni o. s. frv. Aftur voru aðrir mjög hrifnir af myndinni og óskuðu af alhuga að bygtyrði myndarlegt hús í þessum stíl því að ekkert hús mundi verða jafnfagurt hér á landi. Ásgrímur hugsaði sér þessa byggingu standa eina sér, helst með miklu torgi framundan. Hæðirnar eru tvær og kjall- ari undir með gluggum til þriggja hliða. Efrihæðin nær dálítið Iengra fram en sú neðri og hvílir á ferstrendum súlum (milli allra glugga). Fram úr miðju ganga tveir „blindir“ stólpar, sinn hvoru megin við dyrnar. Þeir vega á móti gluggalausu hornsúlunum, en áttu annars sérstaklega að vera til hlífðar peningaskápunum. Glugg- arnir á neðri hæð eru afarstórir, til þesa að geta borið birtu undir hinni „þungu brún“ múrsins. Aftur er léttara yfirglugg' unum á efri hæð, og á þeim eina stað eru bognar línur, annars ekkert nema bein- ar linur hátt og lágt i allri byggingunni Múrbrúnin að ofan leynir flötu steyptn þaki, sem hallar lítið eitt aftur. Alt vatn af þakinu rennur eftir sérstökum vatns' æðum niður í jörð. Vafalaust er þessi mynd svo hrifandr fögur í augum margra manna af því, að hún er einföld. frumleg og stíllinn í fylsta samrœmi við náttúru landsins. Enginn hlutur er verulega fallegur nema hann sé einfaldur að allri gerð. Og hvað getur hugsast einfaldara en þessi still? Næstum tómar beinar línur, láréttar oglóð- réttar, sem hvarvetna mynda rétt horn, Gætum að innganginum. Stigaþripin með- fram endilangri húshliðinni og ofar þrjár múrrandir samhliða eins og klettabelti p

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.