Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1916, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.07.1916, Blaðsíða 7
SKINFAXI 87 fjallshlíð. En yfir aðalbyggingunni rís miðhluti hússins, höfuð þess, sem gefur ^jví mikinn svip og tignarlegan. Jafnvel reykháfarnir, sem venjulega eru bygging- meistaranum til mesta angurs, eru hér í rsamræmi við alla heildina og auka fegurð Jiennar, Frumleiki Asgríms í húsagerðar- ,list stendur vafalaust í sambandi við mál- arasnild hans. Engin bygging á bygðu fcóli getur talist fyrirmynd bankans hans. En hann hefir óafvitandi stuðst við aðra fyrirmynd sem enginn sá, sem skapað hefir ihallir, hefir fyr líkt eftir. Og þessi fyrir. mynd eru íslensku blágrýtisfjöllin. Sum- ar eftir sumar hefir Ásgrímur ferðast um fandið og glímt við fjöllin okkar, að skilja þau, og mála þau. Og nú hefir hann, að því er virðist myndað húsgerðarstíl ís- lendinga, þann sem hæfir byggingarefni okkar, steinsteypunni, með því að Iíkja hæfilega mikið eftir blágrýtisfjöllunum. Öll sönn húsagerðarlist er að miklu leyti end- urskin náttúru og staðhátta. Sig. Guð- mundsson meistari hefir í tilefni af þessu rakið sambandið milli torfbæjanna islensku með bröttum þökum, samhliða bustum, og sundum milli húsaraða, og náttúruunar umhverfis, fjallanna, þar sem háir tindar íTÍsa milli djúpra gilja og dala, sem ís og vötn hafa markað i hálendið. Þennan fallega stíl hefir þjóðin skapað og notað í þúsund ár. En nú er komið nýtt efni, steypan. Og það yrði bæði dýrt og ó- íhentugt að byggja steinsteypuhús í gamla stílnum. En íslensk náttúra hefir fleiri skörp og sérkennileg einkenni heldur en sundurtætta fjallahryggi. Við þekkjum vel aðra hlið fjallafegurðarinnar: Blágrýtis- hamrana, himinháa með stórfengilegum Iá- réttum hraunlögum, þar sem hvarvetna mótar fyrir háum súlum framan í berg inu. Að ofan er fjallið slétt eða þvi sem nær; það er bara efsta hraunlagið með þeim rákum og fellingum, sem tönn tímans hefir skilið eftir. Og neðan við fjallið er dalbotninn sléttur og vafinn grasi. Þarna er fyrirmyndin sem Ásgrímur hefir lært af án þess að vita það sjálfur. Bankinn hans er í blágrýtisstíl, einfaldur tignarlegur, svipmikill. Hver veit nema sá timi komi að margar byggingar á land- inu verði með sama svipmóti? Að vísu þarf tilbreytni og hana mun ekki vanta hjá jafn listelskri þjóð og Islendingar eru, en í húsgerðarlist hvers lands þurfa að vera nokkurskonar stöðulög, fáein atriði, fáeinir drættir í svipnum, sem jafnan haldast óbreyttir. Og það eru, þessar línur sem eg hygg að Ásgrímur hafi markað og þær munilifa þótt bankinn verði bygður með öðrum hætti, sem liklegt er talið. Það verk sem ber að þakka Ásgrími er ekki það að hafa gert mynd af vissu húsi, heldur að hafa skapað fyrirmynd, fáeinar hreinar línur, sem geta verið undirstaða í húsagerð Islendinga. Og þessar línur hafa þá tvo megin kosti sem með þurfti. Þær eru 1 fylsta samræmi við eitt fegursta ein- kenni í náttúru landsins, hin reglulegu blágrýtisfjöll. Og þær hæfa sérstaklega vel byggingarefni því, sem við nú þekkjum best, og við verðum að nota á komandi árum. Framsóknarhvöt. Nú berast okkur boð frá æðra heim, sem bylgjur þau að huga vorum svífa og með sér sterka æsku andans hrifa með undur-þýðum, töfrasterkum hreim. Ó, látum hann úr Iæðing okkur rífa og leiða oss um tilverunnar geim. Þá munum græða gull og andans seim, ef gerum ekki þreki voru hlifa. Við höfum setið svörtu myrkri í með sálu krepta vanþekkingar böndum. Ó hver&u margir þungir hlekkir þjá!

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.