Skinfaxi - 01.07.1916, Blaðsíða 8
88
SKINFAXI
En nú er mál, að vakna víst á ný
og veg sér ryðja á auðum hrjósturlöndum
Vort háa takmark heimur þar má sjá.
Eg sé i anda árdags mörkin skýr,
sem inst í djúpi þjóSar minnar kvika.
Eg sé í fjarlægð björtu ljósin biika,
sem boða dag er nóttin myrka flýr.
Þá mun í Islands háa hamrasal
hin horfna menning bústað aftur þiggja,
ef við að hofi hennar leggjum grunninn.
I hverjum grænum, skógi skrýddum dal
mun skari mikill frjálsra hölda byggja.
Þá „Gullöld“íslands önnur upp er runnin
Sigurdur Einarsson
Hoffelli.
8. þing Sunnlenðingafjórðungs
U. M. F. í.
var haldið við Þjórsárbrú dagana 22. og
23. júní 1916. Mættu þar 24 fulltrúar frá
17 félögum. Þessi eru hin helstu málefni,
er tekin voru til meðferðar:
I. Skýrsla fjórðungssljórnar um hag
sambandsins og starf á liðnu starfsári. I
fjórðungssambandinu eru 39 félög með
1450 reglulega félagsmenn og 110 auka-
félaga. Til allra félaganna var sendur
fyrirlestrarmaður. 4 menn skifta sam-
bandssvæðinu á milli sin. Auk þess hafði
fjórðungurinn fastan starfsmann, er heim-
sótti öll félögin. Iþróttanámsskeið var
haldið í Reykjavik og hefir áður verið
skýrt frá þvi hér í blaðinu. Tekjur fjórð-
ungsins á árinu voru 657 kr. 65 a., út-
gjöld 750 kr. 20 a, í sjóði við árslok 334
kr. 36 a. Helstu útgjaldaliðirnir voru
þessir:
Til starfmanns fjórðungsins kr. 357,65
— fyrirlesrta .... — 165,50
Til iþróttanámsskeiðsins . — 111,45
— fjórðungsstjórnar og þings 81,85
II. Iþróttamál. Samþ. að halda náms'
skeið í Reykjavík í haust. Veittar til þess>
100 kr. og 60 kr. í ferðastyrk handa SkafÞ
fellingum. Ennfremur ákveðið að senda
um sambandssvæðið menn, einn eða fleirir
til að lita eftir æfingum heima í félögun-
um. Fjórðungsstjórn falið að leita að-
stoðar I. S. I. í því efni. Alls var veitt
til íþrótta 250 kr.
III. Fyrirlestramál. Samþ. að hagæ
framkvæmdum í því líkt og síðastliðið árr
ef kostur væri að fá hæfa menn innan’
ungmennafélaganna. Veitt til fyrirlestra
350 kr.
IV. Samþ. að prenta útdrátt úr skýrsÞ
um félaganna, ásamt þingtíðindunum.
V. Næsta fjórðungsþing var ákveðfö
að halda um miðjan mai, í Reykjavik eða
í nágrenni hennar.
Yms áhugamál ungmennafélaganna voru>
og tekin til meðferðar, svo sem skógrækR
armál, bannlögin, þegnskyldan og móður-
málið. Voru tillögur samþ. í flestuin
þeirra. En þar sem þær birtast í þing-
tíðindunum, virðist varla þörf að eyða
dálkum Skinfaxa undir þær. Umræðurn-
ar um móðurmálið snerust aðallega ui»
ættarnöfnin, og voru þau einum rómi
dæmd óalandi og óferjandi.
I stjórn fjórðungsins hlutu kosningu:
Steinþór Guðmundsson fjórðungsstjórir
endurkosinn.
Steindór Björnsson ritari.
Guðm. Kr. Guðmundsson gjaldkeri, end-
urkosinn.
I varastjórn:
Ingibjörg Benediktsdóttir, fjórðungsstjórir
Óskar Jónsson, ritari,
Erlingur Pálsson, gjaldkeri.