Skinfaxi - 01.01.1929, Síða 15
SklNFAXI
15
Þótti mönnum mjög ánægjulegt að heyra kveðin „gömlu
lögin*, og sjá útskurð í fornum stil. — Siðasta náms-
skeiöskvöidið var kvöldvaka í U. M. F. Eyrarbakka.
Þeim er þannig háttað, að félagar koma saman með
vinnu sina, eins og á kvöldvökunum áður fyr. Slðan
les einn hátt fyrir fólkið. Kaffi er drukkið á vök-
unni, og húslestur lesinn í vökulok. Þetta kvöld var
öllum nemendum námsskeiðsins — utanféiagsmönnutn
líka, boðið á kvöldvökuna, svo og Ríkarði og Sigvalda.
Þar var saman komið um hálft hundrað manna — aliir
með vinnu. Siðan var lesið, kveðið, sagðar sögur, skrítlur,
drukkið kaffi og seinast Iesinn húslestur — en þá var
kl. orðin 2 að nóttu. Það er langskemtilegasta kvöld-
vaka sem við U. M. F. hér tnunum eftir. Ýmsir hafa
látið svo ummælt að þeir mundu aldrei gleyma kvöld-
inu. Nemendurnir og aðrir Eyrbekkingar er kyntust Rík-
harði munu og hatis lengi minnast.
Ingimar Jóhannesson
(ritari i hóraðssainb. Skarphéðinn.)
Farfuglafundirnir
i Reykjavík halda áfram i vetur eins og áður, fyrir
forgöngu U. M. S. K. Hafa þrír verið haldnir í haust
við góða aðsókti. (70—100 félagar á fundi). Hafa ýms
félagsmál verið rædd þar, og flutt erindi á hverjum.
Fyrsta etindið flutti Skúii Skúiason ritstjóri, um Átthaga-
rækni, mjög ágætt erindi, og þörf hugvekja, sem fleiri
þyrftu að heyra; annað erindið var um Þjóðernisstefnu
og aiþjóðahyggju (með miklum umræðum á eftir) og
það þriðja um Þjóðdansa og danskvæði til forna. Fund-
irnir eru einu sinni f mánuði, og ættu allir ungmenna-
félagar, sem i Rvik eru fundardagana, að sækja þá.
Gestamót
héit U. M. F. Velvakandi í Reykjavík, þantt 24. nóv.
s. I. fyrlr alia ungmennaféiaga sem I bænum voru. Var þar
margt til skemtunar, svo sent: einsöngur, ferðasaga frá