Skinfaxi - 15.03.1930, Side 1
Skinfaxi 4. 1930.
Ungmennafélag Eyrarbakka.
1920 — 5. maí — 1930.
Formáli. — Það er raunar ekki slórvægilegur at-
burður, þó að ungt og lítið félag eigi afmæli. 10 æfi-
ár U. M. F. Eyrarbakka eru ekki nema lítill dropi í
liafi „íslands þúsund ára“. E11 sá dropi befir sína
þýðingu og „liolar stein“ örðugleikanna, eigi síður en
aðrir dropar. U. M. F. E. hefir verið öflugur og áber-
andi þáttur í lífi þorps síns og þýðingarmikill aðili
í uppeldi og mótun æskulýðs þess. Félagið hefir
starfað i fámennu þorpi, sem var i hraðfara hnign-
un. Þó hefir það verið eitt fjölmennasta og öflugasta
U. M. F. landsins, og að ýmsu leyti fyrirmynd og
brautryðjandi meðal íslenzkra æskulýðsfélaga. Þess
vegna þykir ekki úr vegi, að 10 ára almælis U. M. F.
E. sé í nokkru minnst.
Þrennt vill U. M. F. E. vinna með þvi, að gefa út
aukahefti það af Skinfaxa, er hér birtist: 1. Það vill
rifja upp fyrir sjálfu sér og félögum sínum, hvað
það liefir verið og er, og fá með þvi livöt til nýrra
dáða og magnan til aukins álmga. 2. Það vill gefa
alþjóð þá mynd, sem það hefir ráð á, af lífi, starfi
og þýðingu íslenzkra ungmennafélaga. 3. Það vill
skýra öðrum U. M. F. frá störfum sínum og starfs-
aðferðum, því að sjálfsögðu geta félög hvert af öðru
lært um það efni.
Stofnun. — Stofnfundur U. M. F. E. var haldinn