Skinfaxi - 15.03.1930, Blaðsíða 4
76
SKINFAXI
Aðalsteinn Sigmundsson er fæddur í Árbót í ASaldal 10. júlí
1897. Lauk kennaraprófi 1919. Skólastjóri á Eyrarbakka 1919—
1929. Starfaði í U. M. F. Akureyrar, Geisla í Aðaldal og Kenn-
araskólans. Formaður U. M. F. E. 1920—’23 og 1928—’29. í
stjórn Héraðssambandsins Skarphéðins 1922—’27. Hefir setið
öll sambandsþing U. M. F. í. síðan 1921.
Auk þessara tveggja aðalstraumbrjóta U. M. F. E.
verður eigi hjá því komizt, að geta þriggja, er gengu
í félagið á stofnfundi og jafnan hafa staðið í fremstu
röð félagsmanna og standa enn: Jakobína Jakobs-
dóttir (f. 22. maí 1877, kennari við barnaskóla Eyrar-
bakka síðan 1919), liefir stundum verið í félagsstjórn
og öll árin starfað með yngri deild. Sigurður Krist-
jáns kaupmaður (f. 26. febr. 1896) befir oftast setið
í stjórn eða varastjórn félagsins, var lengri form.
dómnefndar þess, en er nú formaður þess og belzti
áhrifamaður. Vigfús Jónsson (f. 13. okt. 1903) befir
selið lengst allra manna í stjórn félagsins; var gjald-
keri þess 1923—1929, og mun betri fjárreiðumaður
og starfsmaður í félagi torfenginn.
Freistandi er, að nefna nöfn ýmsra fleiri kvenna
og manna, er haft hafa forystu í U. M. F. E. á ýms-
um tímum og í ýmsum málum. En rúmið leyfir slíkt
ekki, enda „þýðir ekki að þylja nöfnin tóm, og þjóðin
mun þau annarsstaðar finna“.
Félagsrnenn. — Alls hafa gengið í fél. 275 menn.
Nú eru félagsmenn 147, og eru 2 þeirra lieiðursfélag-
ar. Af núverandi félagsmönnum eru 14 eldri en 30
ára, 51 yfir tvítugt, en 32 eru í yngri deild. Sézt á
þessu, að fél. er sannnefnt ungmennafélag. —- 5 fé-
lagar liafa dáið, allt kornungt fólk og mannvænlegt.
Fél. gaf silfurkrossa til minningar um tvo þeirra, en
lagði blómsveiga á kistur þriggja.
Fundir. — Félagið hefir haldið 215 fundi alls. Af
þeim hafa 37 verið sameiginlegir fyrir báðar deildir,
85 í eldri deild og 93 i yngri deild. Jafnaðartala 21,5