Skinfaxi - 15.03.1930, Síða 12
84
SKINFAXI
liver félagi rétt til, að bjóða með sér einu barni.
Á skemmtunum þessum hefir verið leikið, sungið,
kveðið, ræður haldnar, lesið upp, sýndar íþróttir og
skuggamyndir, stignir vikivakar og tízkudansar. U.
M. F. E. liefir aldrei notað aðfengna krafta á innan-
félags skemmtunum. Auk ársskemmtana liafa félag-
ar haft skemmtikvöld endrum og sinnum, er tilefni
liefir verið.
Opinberar skemmtanir til fjárafla hefir fél. lialdið
flest ár, og suma vetur fleiri en eina. Síðan félagið
stofnaði bókasafn, hefir það árlega haldið hlutaveltu
fyrir það.
Störf át ú við. — U. M. F. E. samþykkti á stofn-
fundi, að ganga í U. M. F. f. Var það gert á þingi
Sunnlendingafjórðungs U. M. F. f. vorið 1920. Síðan
hefir það jafnan haft hönd í hagga um málefni sam-
bandsins, eftir því sem einstakt félag á kost á. Félag-
ar frá U. M. F. E. bafa t. d. setið öll sambandsþing
síðan, sem fulltrúar Sunnlendingafjórðungs og síðar
Skarphéðins. Nú siðustu ár, síðan sambandsskattur
bækkaði, hefir fél. greitt yfir hálft ann.að liundrað
kr. á ári, til sambandsþarfa.
Siðan Héraðssambandið Skarpliéðinn var stofnað,
við skiftingu Sunnlendingafjórðungs 1922, hel'ir U. M.
F. E. verið þar stærst og aðsópsmest félag. Ilefir það
að jafnaði átt fimm fulltrúa á héraðsþingum og alt-
af mann í stjórn héraðssambandsins.
Utan sambandsstarfseminnar hefir fél. átt minni
samvinnu en skyldi við önnur U. M. F. Stöku sinn-
um hefir það haft sameiginlega fundi með nágranna-
félaginu, U. M. F. Stokkseyrar. Þá hefir flokkur fé-
lagsmanna heimsótt U. M. F. Biskupstungna, Skeiða-
manna og Baldur i Hraungerðishreppi.
Félagið er í í. S. I.
Ýms slörf. — Taflflokkur og tóbaksl)indindisflokk-
ur störfuðu í félaginu um nokkurt skeið. — Fél. I)eitti