Skinfaxi - 15.03.1930, Page 13
SKIN'FAXf
85
sér fyrir fjársöfnun til Laugarvatnsskólans. Inn komu
kr. 900.00. — Bæði vorin, sem þegnskaparvinna U.
M. F. slóð á Þingvöllum, lagði fél. til nokkra vinnu;
fyrra vorið mánuð og seinna vorið liálfan mánuð,
Skylt er að geta þess, að einstakur félagsmaður, Þor-
leifur Guðmundsson f. alþm., gaf félaginu viku vinnu
af þessu. — Námsskeið i vikivökum Iiélt fél. á út-
mánuðum 1929. Kenndi þar Katrín Árnadóttir frá
Oddgeirshólum. — Fjögur ár, 1925—1929, Iiafði fél.
samkomulnis Eyrarhakkalirepps, er Fjölnir nefnist,
á leigu, og leigði það síðan út til samkomuhalds.
Var þelta töluvert liagræði l'yrir félagið, að því leyli,
að með þessu móli átti það frjálsari aðgang að húsi
en ella. Reikningslega var tap á rekstri hússins sum
árin, en fél. liafði þó liagnað af að liafa það, vegna
þess, að félagsmenn gáfu geysimikla vinnu við um-
sjón hússins og ræstingu. Er sú vinna lágt metin á
reikningum hússins á nál. 800.00 kr. öll árin. — Dýra-
verndun hefir fél. nokkuð látið til sin taka, eink-
um y. d. — Nefnd úr fél. hefir starfað að örnefna-
söfnun; er þó stórmilcið þar ógert enn. -—- Lítið eitt
hefir verið fyrir því liugsað, að safna drögum til sögu
Evrarbakka. — Einu sinni hefir e. d. styrkt sjúkan
félaga, og y. d. gefið veiku harni myndarlega jóla-
gjöf. — Fleiri störf mætti telja, en liér skal staðar
numið.
Örðugleikar. — Eyrarbakki var fyrrum blómlegt
þorp. Þar var öldum saman mestöll verzlun þriggja
sýslna. Bátaútvegur var þar og landhúnaður nokk-
ur. Framan af þessari öld var Bakkinn meðal stærstu
sjóþorpa landsins; ihúar fast að þúsundi. En með
hættum samgöngum og bifreiðaferðum livarf verzl-
un þaðan og fluttist til Reykjavíkur, Selfoss, Þjórsár-
túns og fleiri staða. Fleiri atvik urðu því og valdandi,
að mikið utstreymi hefir verið úr þorpinu hin siðari
ár og íhúum fækkað um l'ullan þriðjung. Einkum