Skinfaxi - 15.03.1930, Page 19
SKINFAXI
91
eins gáfaðasta, besla og glaðasta ungmennis, sem við
höfum nokkurn tima kynnst, og óskum þess að ung-
mennafélögin ættu marga hennar líka.
Vigdis var fædd 12. sept. 1904 og var fósturdóttir
Gísla Péturssonar héraðslæknis.
Ingimar Jóhannesson.
Álit á U. M. F. E.
(Höf. þessara lína, Jón Einarsson hreppsstjóri og fyrv. odd-
viti, er einn merkasti maður eldri kynslóðarinnar á Eyrar-
bakka. llitstj. hefir þvi leitað álits hans á U. M. F. E.).
Eg vil leyfa mér að þakka ritstjóra þessa blaðs fyrir til-
mæli hans um að eg léti með nokkrum orðum í ljós skoðun
mína á þýðingu U. M. F. Eyrarbakka fyrir æskulýð þorpsins
og þorpið yfirleitt.
Mér er ánægja að verða, að svo miklu leyti sem eg get, við
þessum tilmælum, fyrir þá sök, að mér hefir alltaf verið mjög
Ijóst, hve geysimikið við eigum þessum félagsskap að þakka.
Um nokkurra ára skeið hafði allmikil kyrrð ogjafnvelhættu-
leg andleg deyfð lagst yfir flest ungt fólk hér. Þvi fylgdi
ekki aðeins kyrrstaða i athafnalífinu, en einnig margskonar
óregla og hættulegur hugsunarháttur. Drykkjuskapur jókst og
mjög bar á smásálarlegum deilum manna á milli, sem skað-
legar voru vexti þorpsins.
Eftir komu Aðalsteins Sigmundssonar kennara, til Eyrar-
bakka, gerðist víða mikil breyting til batnaðar. Hann ruddi
œskulýðnum braut í gegnum hættulegar venjur, og benti hon-
um á glæsileg verkefni. Hann leiddi unglingana út úr búðun-
um og út í náttúruna. Með þessu tókst honum smám saman
að undirbúa jarðveginn undir stofnun ungmennafélagsskapar.
Með aðstoð nokkurra ungra manna og kvenna gat liann svo
komið á fót U. M. F. E., sem um þessar mundir er að halda
hátíðlegt 10 ára afmæli sitt.
Eitt af fyrstu verkefnum félagsins var lierferðin gegn
drykkjuskapnum. Árangurinn varð brátt geysilegur. Algert
vínbindindi var skilyrði fyrir upptöku i félagið. Tóbaks-
bindindi mun félagið einnig hafa liaft á stefnuskná sinni, og
orðið nokkuð ágengt.
Félagið blómgaðist skjótt. Menn, sem áður héngu fyrir