Skinfaxi - 01.04.1964, Side 6
NÝ VERKEFNI
Strax sumarið 1953 var farið að athuga
að senda hingað mann frá Bandaríkjunum
á vegum F.O.A. (Foreign Operations Ad-
ministration). Þórhallur Ásgeirsson ráðu-
neytisstjóri hafði fyrst milligöngu um það,
síðan tók ég upp beint bréfasamband við
manninn sem sendur var, en hann var af
íslenzku bergi brotinn, Mat. A. Thorfinson
að nafni. sem við köllum hér Matthías
Þorfinnsson. Dvaldi Matthías hér í 6 mán-
uði eða frá því í apríl og fram í október.
Var mér falið að skipuleggja starf hans
hér Ég ferðaðist með honum um landið í
nær 5 mánuði Við kynntum sérstaklega
þær starfsíþróttir, sem kenndar voru við
4—H félögin í Bandaríkjunum. Sá megin-
munur er á þessum verkefnum og hinum,
sem byrjað var með hér. að unnið er að
4—H verkefnum langan tíma e.t.v. mán-
uði eins og t.d. ræktað er grænmeti, alin
upp húsdýr. hirt um vélar eða annað þess
háttar Að hausti er svo haldin sýning, þar
sem unglingarnir leggja fram vinnuskýrslur
og sýna árangur verksins.
Hin verkefnin voru „einsdagskeppni"
Við kynntum þessi verkefni með erindum
á fundum. Ijósmyridum, kvikmyndum og
í prentuðu máli Á nokkrum stöðum rækt-
uðu unglingar að okkar tilhlutan grænmeti
og kartöflur.
Við leituðum, eins og ég hafði gert
sumarið áður, samstarfs við búnaðarráðu-
nauta og formenn búnaðarsamtaka. Enn-
fremur ræddum við við námstjóra hús-
mæðrafræðslunnar og ýmsa húsmæðra
kennara. Um starf okkar skrifaði Matthías
Þorfinnsson greinargóða skýrslu, sem send
var landbúnaðarráðuneytinu hér og stjórn-
inni í Washington.
Tveimur árum síðar kom svo hingað til
lands annar maður frá F.O.A., var það dr.
Þórður Þórðarson, prófessor. Hann átti m.a.
að kynna sér árangur af dvöl Matthíasar
hér og hvetja til aukinna starfsíþrótta.
Þetta sumar 1954 voru háð nokkur
starfsíþróttamót, hið merkasta þeirra var
Hveragerðismótið 5. sept. Keppendur voru
þar 90 í 8 starfsgreinum. Um þetta mót
skrifaði ég grein í Morgunblaðið . 17 sept.
1954 og í 3. h. Skinfaxa sama ár, vísast
hér til þessara greina.
NORRÆNIR GESTIR.
Sumarið 1954 kom hingað framkvæmda*
stjóri sænsku ungmennafélaganna í starfs-
íþróttum Alvar Lindberg. Ræddi ég og aðr-
ir forystumenn ungmennafélaga hér mikið
við hann um skipulagsmál umf.. Þetta
sumar störfuðu 97 ráðunautar að starfs-
íþrótmm í Svíþjóð og höfðu þeir það ýmist
sem aðalstarf eða aukastarf. Alvar Lindberg
flutti einnig stutt spjall í útvarp hér um
starfsíþróttir.
Lars Korval, búnaðarmálastjóri frá Nor-
egi flutti erindi og sýndi kvikmynd uffl
starfsíþróttir í Noregi.
FJÁRHAGSÖRÐGLEIKAR.
Árin 1953 og 1954 höfðu orðið mjög
útgjaldasöm vegna starfsíþróttamála. Mikill
tilkostnaður varð af kennslunni, mikil
ferðalög og prentunarkostnaður auk launa
leiðbeinenda.
UMFÍ fékk 25.000.00 króna ríkisstyrk,
vegna starfsíþrótta og svo hefur verið ae
síðan þar til 1964 að smáhækkun varð á
styrknum. Landbúnaðarráðuneytið tók að
sér að greiða míkinn hluta af kostnaði,
vegna Matthíasar Þorfinnssonar, og Stéttar-
6
SKINFAXI