Skinfaxi - 01.04.1964, Side 12
Frá skrifstofu U M F í
Héraðsþing USAH
Framkvæmdastjóri UMFÍ heimsótti hér-
aðsþing Ungmenasambands Austur-Húna-
vatnssýslu, sem haldið var á Blönduósi 26.
marz 1964, og flutti þar erindi. Á þinginu
voru fulltrúar frá öllum sambandsfélögum
nema einu. Kristófer Kristjánsson var kos-
inn formaður í stað Ingvars Jónssonar.
Héraðsþing UMSE
Héraðsþing Ungmennasambands Eyfirð-
inga var haldið dagan 11. og 12 apríl 1964.
Sambandsstjóri, Eiríkur J. Eiríksson, var á
þinginu og flutti þar erindi á kvöldvöku.
UMF Víkverji
9- október 1964 var stofnað ungmenna-
félag í Reykjavík, sem hlaut nafnið Vík-
verji. Stofnendur voru 70. Stjórn skipa:
Halldór Þorsteinsson formaður, Valdimar
Óskarsson ritari og Sigurður Sigurjónsson
gjaldkeri. Félaginu hefur verið veitt inn-
ganga í Ungmenafélag íslands.
Þrastaskógur
í sumar hefur verið unnið við leikvang-
inn í Þrastaskógi. Nú er aðeins eftir að
jafna gróðurmold yfir völlinn og sá í hann.
Langt er komið að reisa veitingaskálinn í\
Þrastaskógi. Sérstök nefnd hefur séð um
þá framkvæmd: Skúli H. Norðdahl, arki-
tekt, hann teiknaði skálann, Ármann Pét-
ursson og Skúli Þorsteinsson. Er talið lík-
legt að hægt verði að starfrækja skálann
af fullum krafti næsta sumar. Hafsteinn
Þorvaldsson hefur haft daglega umsjón með
skálabyggingunni og verið nefndinni til að-
stoðar. Laxveiðiréttindi í Soginu voru Ieigð
Osvald Knudsen í sumar. Skógarvörðurinn
í Þrastaskógi sá um gróðursetningu í skóg-
inum eins og að undanförnu. Settar voru
niður um 5000 plönrar með aðstoð ung-
mennfélaga úr nágrenninu. Aðsókn al-
mennings í skóginn vex með hverju ári.
Umgengni er góð.
Minningarsjóður Aðal-
steins Sigurðssonar
Það hefur verið hljótt um þennan sjóð
síðustu árin og hann hefur lítið aukizt,
svo sem oft vill verða um slíka sjóði.
Nú hefir sjóðsstjórnin auglýst styrk úr
sjóðnum og er þess að vænta að einhver
góður ungmennafélagi notfæri sér styrk
þennan.
Þar sem þetta er eini sjóðurinn, er styrk-
ir aðeins efnilega ungmennafélaga til náms,
svo sem reglugerð sjóðsins ber með sér,
er þess að vænta, að ungmennafélagar veiti
sjóðnum meiri athygli eftirleiðis og styrki
hann eftir því sem efni og ástæður leyfa,
m.a. með minningargjöfum.
Aðalsteinn Sigmundsson var á sínum
tíma einhver ágætasti og fórnfúsasti starfs-
maður ungmennafélaganna og það sæmir
vel minningu hans, að styrkja nefndan sóð
svo rækilega, að hann komi að verulegum
notum í framtíðinni, þeim er vilja vinna
fyrir hugsjónir ungmennafélaganna.
Minningarspjöld munu fást eftirleiðis á
skrifstofu U.M.F.Í. í Reykjavík.
Stjórnin.
12
SKINFAXI