Skinfaxi - 01.04.1964, Qupperneq 16
um sínum við útlendingana. Hann vann
nefnilega bæði Nonu og Wade.
Trausti Björnsson er ungur og upprenn-
andi skákmaður, og verður frammistaða
hans að telast mjög góð, með tilliti til þess,
að þetta er þriðja mótið, sem hann teflir
í síðan hann ávann sér meistaraflokksrétt-
indi. Fyrsta mótið var ágústmót T.R. í
sumar. Þar varð hann annar, hálfum vinn-
ingi á eftir Birni Þorsteinssyni. Annað mót
hans í meistaraflokki var Haustmót T.R.
Það mót vann hann og er því núverandi
skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur.
í 13. sæti varð Jón Kristinsson, sem varð
annar í síðustu landsliðskeppni, og í neðsta
sæti var enginn annar en Ingvar Ásmunds-
son, og hefði það þótt fyrirsögn, ef einhver
hefði spáð því fyrir mótið.
Hér birtast þrjár skákir sem' sýnishorn
af taflmennsku hinna erlendu gesta.
Hvítt: M. Tal.
Svart. R. Wade.
SIKILEYJARVÖRN.
1. e4 c5
2. Rf3 Rc6
3. d4 cxd4
4 .Rxd4 Rf6
5. Rc3 e5
Þessi leikur þykir váfasamur, og er
honum því sjaldan beitt. Raunin verður
lika sú, að Tal fær fljótt yfirburðastöðu.
6. Rb5 — —
Langbezti leikurinn. 6. Rb3 væri slæmt
hér vegna Bb4. Eftir 6. Rf3 kæmi einnig
Bb4. Ef hvítr dræpi á c6 dræpi svartur
til baka með b-peðinu og styrkti við það
miðborð sitt auk þess sem b-línan opnað-
ist fyrir hrók hans.
6. ----- d6
7. Bg5 a6
8. Ra3 -----
Hér á hvítur einig annað gott fram-
hald: 8. Bxf6 gxf6 9. Ra3 d5 10. Rxd5
Bxa3 11. bxa3 Be6 12. Re3 Da5t 13.
Dd2 Dxa3.
8------------ Be6
9. Rc4 Rd4
Hc8 er sennilega sterkari leikur, sbr.
skákirnar Robatsch — Larsen og West-
erinen — Ingi frá svæðamótinu í Halle.
Það kemur nefnilega í ljós, að riddarinn
fær ekki frið á d4 til frambúðar.
10. Bxíö Dxf6
Ef til vill er gxf6 betri leikur. Hvít-
ur svarar honum með 11. Re3.
11. Rb6 Hb8
12. Rcd5 Bxd5
13. Rxd5 Dd8
14. c3 -----
Og nú er komið að því að riddarinn
verður að hörfa. Hann getur valið um
tvo reiti c6 og e6. 14. — — Rc6 ætlaði
Tal að svara með eftirfarandi drottning-
arfórn: 15. Da4 Be7 16. Bxa6 Ha8 17.
Bxb7! Hxa4 18. Bxc6t Kf8 19. Bxa4 og
þessa stöðu vinnur hvítur auðveldlega.
14 Re6
15. g3 Be7
16. a4 0—0
17. Bh3 He8
18. 0—0 Bf8
19. a5 Rg5
20. Bf5 g6?
Og Wade fellur í gildruna. Hér er enn
entt dæmi um það, hve varasamt getur
verið að veikja kóngsstöðuna að óþörfu.
21. Bd7! ’■--------
Þetta er þokkaleg sending eða hitt
þó heldur!
21.------He6
Michail Tal.
16
SKINFAXI