Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1964, Side 30

Skinfaxi - 01.04.1964, Side 30
Frá héraðssamböndunum 1964 Héraðsþing HSS 20. ársþing Héraðssambands Stranda- manna var haldið á Hólmavík 19. apríl ’64. Þingið sátu 13 fulltrúar frá 4 sambands- félögum. Félögin lögðu 6 mál fyrir þingið, sem voru rædd og afgreidd. Frá stjórninni komu 6 tillögur um málefni sambandsins. Stjórnarkosning: Guðjón Jónsson formaður, Bjarni Halldórsson varaformaður, Grímur Benediktsson gjaldkeri, Pálmi Sæmundsson ritari, Magnús Ingimundarson meðstjórn- andi. Úr skýrslu HSH Sundmótið var haldið að Kolviðarnes- laug í júni Þátttakendur voru 30. Héraðsmótið var haldið að Görðum í Staðarsveit í júlí. Þátttakendur í íþrótta- keppninni voru rúmlega 60. Drengjamót fór fram í september að Arnarstapa. Keppendur voru 25. Þá keppti sambandið í frjálsum íþrótt- um við Héraðssambandið Skarphéðinn að Félagslundi í Gauverjabæjarhreppi. Haldnar voru tvær samkomur til fjár- öfiunar fyrir sambandið. íþróttaráðunautur hefur starfað á vegum sambandsins, og hefur starf hans borið góðan árangur. Námskeið var haldið í í- þróttum. Sambandsfélögum voru skrifuð bréf um þau verkefni, sem sambandið beit- ir sér fyrir. 50 Frá starfi UMSE Héraðsmót Ungmennasambands Eyja- fjarðar var haldið að Laugalandi. Keppt var í 19 íþróttagreinum karla og kvenna Sambandið minntist 40 ára afmælis að Freyvangi. Bændadagur var haldinn, sem að undanförnu með skemmtiatriðum og keppni í íþróttum. Komið var á drengja- og kvennamóti í íþróttum. Margir keppendur tóku þátt í hinum ýmsu frjálsíþróttamótum, sem hald- in voru á Akureyri. UMSE hafði umsjón með skíðalandsgöngunni í héraðinu. Knatt- spyrnulið sambandsins háði marga kapp- leiki við ýmsa aðila, og auk þess var haldið héraðsmót í knattspyrnu. Fjórir kennarar störfuðu meira og minna hjá sambandinu. Áhugi er mikill fyrir í- þróttum. Nokkrir fyrirlestrar voru fluttir á vegum UMSE, 2200 trjáplöntur voru gróðursettar í Oxnadal. Keppt var í dráttarvélaakstri og plöntugreiningu á bændadaginn. Komið var á héraðsmóti í skák, og teflt við Akur- eyringa. Mörg félögin starfa vel .Mikið er um það, að unga fólkið hverfi að heiman yfir veturinn, og háir það félagsstarfinu. UMSD Héraðsmót Ungmennasambands Dala- manna var haldið að Nesodda, og var keppt þar í frjálsum íþróttum. SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.