Skinfaxi - 01.12.1969, Page 6
Ungmennafélagar úr HSK í landgræðsluferð
1967 norðan Bláfells.
til aukinnar skógræktar, og almennrar
náttúruverndar. Starfsáætlun er í smíð-
um og unnið er að undirbúningi fyrsta
aðalfundar samtakanna, sem verður
þegar í febrúarmánuði næstkomandi.
Utbreiðslu- og upplýsingastarfið er
strax á dagskrá og í því hyggjum við á
gott samstarf við skólana og fjölmiðl-
unartækin. Markmiðin eru mótuð í lög-
unum og á þeim sést að nóg verður að
starfa. Samtökin munu stuðla að hvers
konar gróðurfarsrannsóknum og til-
raunum og hafa um það samvinnu við
tilheyrandi stofnanir, benda á ný verk-
efni og leiðir til að bæta og auka gróð-
urinn á landinu og leggja á ráðin um
hóflega nýtingu hans.
— Og hvað um náttúruverndina ?
— Hún er náskyld landgræðslunni.
Það verður lögð áherzla á að brýna
fyrir fólki og hjálpa fólki til að um-
gangast og meðhöndla náttúruna með
þrifnaði og varfærni og njóta fegurðar
hennar. Samtökin munu framvegis
skipuleggja áróðursstarfsmenia „Hreint
land — fagurt land“, sem gefið hefur
góða raun undanfarin tvö ár. Unnið
verður að því að fyrirbyggja hvers kon-
ar mengun og kanna áhrif ýmissa fram-
kvæmda, svo sem virkjana, á dýralíf og
önnur náttúruverðmæti. Við viljum að
leitazt verði við að nýta landið án þess
að raska jafnvægi í náttúru þess. I
þessu sambandi má geta þess, að nú er
á döfinni ný löggjöf um nátútruvernd,
þar sem m. a. er gert ráð fyrir frið-
löndum á vissum svæðum.
— Hvernig verður háttað sambandi
Landgræðslu- og náttúruverndarsam-
takanna við aðildarsamböndin?
— Við treystum því að það verði
sem bezt. I framtíðinni þurfa samtökin
að verða þess megnug að hafa fast
starfsfólk, og við treystum því að hið
opinbera og fleiri aðilar veiti styrk til
þess. Það er mjög æskilegt að aðildar-
samböndin leiti til heildarsamtakanna
með áform sín og fyrirspurnir. Sam-
tökin hafa á sínum vegum hæfustu sér-
fræðinga í hvers konar ræktun og
gróðurvernd og náttúruvernd, sem
MelgresiS hefur gert stórvirki.
6
SKINFAXI