Skinfaxi - 01.04.1971, Page 19
urnar eru keppnisharðar og verða í öðru
sæti.
Hafdís
Ingimarsdóttir,
UMSK.
ins fyrr og síðar. Kristín Jónsdóttir,
UMSK, íslandsmeistarinn, sem kölluð
hefur verið „hlaupadrottningin“ síðustu
árin, verður ekki með á landsmótinu.
Þær Jensey Sigurðardóttir og Hafdís
Ingimarsdóttir, báðar úr UMSK, munu
taka upp merki hennar og berjast um
verðlaunasæti.
400 m. hlaup
Stúlkurnar úr UMSK eru líklegar til
sigurlauna í 400 m., sem er ný keppnis-
grein á landsmóti. Hafdís Ingimarsdóttir
er líklegust til að sigra, bráðefnileg
frjálsíþróttakona með fallegan hlaupastíl.
Sigríður Jónsdóttir, HSK, og Edda Lúð-
víksdóttir, UMSS, stórefnilegar og fjöl-
hæfar frjálsíþróttastúlkur, geta þó sett
strik í reikninginn í báðum þessum
hlaupum.
4x100 m. boðhlaup
Stúlkurnar úr UMSK ættu að vera
öruggar um sigur í boðhlaupinu, enda
eru þær íslandsmethafar í þessari grein.
Þasr hafa öruggar skiptingar og geta
harlasveitirnar lært af þeim. HSK-stúlk-
Langstökk
Björk Ingimundardóttir, UMSB, setti
íslandsmet í langstökki á síðasta ári: 5,39
m. og er líkleg til sigurs. Kristín Björns-
dóttir, UMSK, er á góðri framfarabraut í
frjálsum íþróttum. Þegar ég sá hana fyrst
fyrir tveim árum á æfingu, spáði ég strax
að hún yrði afburða frjálsíþróttakona.
Hún minnir á Wilmu Rudolph, sem sigr-
aði í 100 m. hlaupi kvenna á olympíu-
leikunum í Róm 1960. Kristín er líkleg
til að setja íslandsmet í 3—4 frjáls-
íþróttagreinum á komandi árum (lang-
stökki, hástökki, grindahlaupi og fimmt-
arþraut). Kristín er örugg um silfurverð-
launin í langstökki á landsmótinu. Þur-
íður Jónsdóttir, HSK, Islandsmeistarinn í
fyrra, sem á glæsilegan keppnisferil að
baki á landsmótum UMFÍ, mun eiga í
harðri baráttu um bronsverðlaunin við
hina kraftmikhi Björgu Kristjánsdóttur,
UMSK.
Kristín
Björnsdóttir,
UMSK.
SKINFAXI
19