Skinfaxi - 01.04.1971, Blaðsíða 20
Arndís
Björnsdóttir,
UMSK.
Hástökk
Kristín Björnsdóttir, UMSK, stökk ný-
lega 1,55 m. í hástökki innanhúss með
Fosbury-stíl. Hún er í stöðugri framför
og nálgast íslandsmetið. Edda Lúðvíks-
dóttir, UMSS, er fjölhæf, komung
íþróttakona, sem átti í fyrra um skeið ís-
landsmet í hástökki innanhúss (1,55 m.).
Kristín er líklegri sigurvegari. Keppni um
næstu sætin verða svo aðallega milli
stúlkna úr UMSK og Skarphéðni.
Kúluvarp
Keppni í kúluvarpi kvenna verður hörð
á landsmótinu. Erfitt er að spá um úrslit.
Keppni um þrjú fyrstu sætin kemur trú-
lega til með að standa á milli Halldóru
Ingólfsdóttur, Ulfljóti, Emelíu Baldurs-
dóttur, UMSE, og Öldu Helgadóttur,
UMSK. Alda átti íslandsmet í spjótkasti
um skeið og kastaði ki'dunni 10.90 m.
árið 1969. Eg spái Öldu sigri, hafi hún
jafnað sig eftir meiðsli. Halldóra Ingólfs-
dóttir er í stöðugri framför og til alls
líkleg, og sömuleiðis óþekkt stúlka úr
UMSK, sem heitir Gunnþórunn Geirs-
dóttir. Emelía Baldursdóttir er fyrrver-
andi Islandsmethafi í kúluvarpi og er
keppnishörð íþróttakona. Islandsmet
Oddrúnar Guðmundsdóttur, Skagfirðings
11,06 frá 1961 fellur trúlega á þessu ári.
Kringlukast
Ingibjörg Guðmundsdóttir, HSH, er
yfirburðakona í kringlukasti á síðasta ári.
Hún ætti að geta nálgast 20 ára gamalt
íslandsmet í kringlukasti, 36,30 m., á
þessu ári, og er öruggur sigurvegari.
Sigríður Gestsdóttir, USAH, er efnileg
í kringlukasti og ætti silfrið að vera henn-
ar. Ingibjörg Sigurðardóttir HSK á mesta
möguleika í þriðja sætið.
Spjótkast
Árið 1969 tóku stúlkurnar úr UMSK,
þær Arndís Björnsdóttir og Alda Helga-
dóttir, stórstígum framförum í spjótkasti
og settu báðar Islandsmet í greininni.
Tækni þeirra er allgóð. Arndís Björns-
dóttir er hklegri til þess að verða fyrsta
íslenzka íþróttakonan, sem kastar spjóti
yfir 40 m. íslandsmet hennar er 38.52 m.
Álda Helgadóttir, UMSK verður í öðm
sæti. Sólveig Þráinsdóttir, HSÞ, er lík-
legust til þess að fá bronsið.
20
SKINFAXI