Skinfaxi - 01.04.1971, Síða 23
Sérstaklega ber að sá gaumgæfilega í
yztu jaðra flaganna, þannig að samfelld-
ur gróður myndist með óhreyfða landinu.
Rétt er að sá ekki of nærri akbraut veg-
arins, og skilja eftir ræmu 1,5—2 m næst
mölinni. Fé leitar alltaf í sáningu sem
þessa og það eykur á hættuna á því að
ekið sé á fé ef sáð er nærri akbrautinni.
Astæðulaust er að sá í dýpstu lægðina
þar sem vatn safnast saman og greinilega
myndast lækir meðfram vegum. Sú sán-
ing yrði hvort sem er gagnslaus þar sem
gróðri skolaði burtu.
Bezt er, ef hægt er, að sá svo snemma
að raki sé ehn nægur í moldinni frá vetr-
inum. Ef mjög þurrt er orðið, kemur til
greina að raka yfir fræið, en venjulega
hefur það þó ekki verið gert. Munið að
vanda vel þessa vinnu því að verkin sýna
merkin.
Akveðið er að landgræðslan meðfram
vegum verði um allt land sunnudaginn
6. júní.
3. S KÁKÞI N G
U M F í
Skákþing UMFÍ 1971 er nú hafið, og
er þátttakan meiri en nokkru sinni fyrr,
eða alls 14 sveitir. Vegna fjöldans er
sveitunum nú skipt í 4 riðla og teflir
sigursveitin úr hverjum riðla til úrslita á
landsmótinu.
Riðlaskiptingin er þannig:
1. riðill: UMSK, UMSB, USÚ, HSH.
2. riðill: USD, UNB, HVÍ, Umf. Bol-
ungarvíkur.
3. riðill: UMSS, UMSE, HSÞ.
4. riðill: HSK, USVH, USAH.
Framkvæmdaaðilar hver í sínum riðli
eru:
UMSK, HVÍ, UMSE og USAH.
Sigursveitin hlýtur að launum sæmd-
arheitið skákmeistari UMFÍ 1971 og hinn
fagra verðlaunagrip „Skinfaxastyttuna“
til varðveizlu fram að næsta skákþingi
UMFÍ.
SKINFAXI
23