Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1971, Page 29

Skinfaxi - 01.04.1971, Page 29
1500—3000 m. hlauparar Æfingar skulu vera 6 sinnum í viku (alls 18), og skal hér aðallega lögð áherzla á sköpun aukins þols og létts hlaupalags, létt, óþvinguð skref. Reynt skal að forðast allt vagg í hlaupinu og alla spennu. Lagt er kapp á að auka styrk ökla og fóta með sérstökum hopp- æfingum. Ef hraði sá, sem ég áætla, er of mikill til þess að hægt sé að hlaupa án aukinnar vöðvaspennu likamans, verður viðkomandi íþróttamaður að reyna að hægja nokkuð á sér og æfa næst nokkuð hægara eða í samræmi við það, sem fram hefur komið. Tímarnir í æfingaseðlinum miðast við timana 4,45—4,57 i 1500 m. á síðasta ári. 1. æfing: „Intervall“-æfing. 1. Upphitun i 25—35 min. 2. 4—6 sinnum 1000 m. hlaup á 3,16— 3,21,5 mín. hvert hlaup með 2—3 min hvíldum á milli eða þar til púlsinn kemst niður í 120—124 slög á mín. 3. Mjúkt og létt hlaup í 15—20 mín. og ljúka því með fótstyrktaræfingum, svo sem alls konar hoppum og þá helzt upp í móti. 4. 5—10 mín. létt skokk. 2. æfing: 1. Langhlaup í 75 mín, án þess að stöðva í æfingunni, nema smástanz i upphit- uninni meðan leikfimiæfingar eru gerðar. Hraðinn mjög breytilegur og sprettir margir og allflestir upp i móti, ef hægt er. Gott bað. Gufa. 3. æfing: „Intervall“-æfing. 1. Upphitun i 25—35 min. 2. 10—14x200 m. hlaup á 36—38 sek. hvert hlaup með hvíldum á milli, þar til púlsinn kemst i 120—124 slög á mín- útu. 3. 6—8x300 m. hlaup á 55—57,5 sek. hvert hlaup með hvildir á milli þar til púls- inn kemst niður i 120—124 slög á mín- útu. 4. 5—10 mín. létt skokk. Gott bað. 4. æfing: 1. Langhlaup i 90 mín. þar sem 25 fyrstu mín. eru upphitun, og síðan er þetta erfið æfing með alls konar hugsanleg- um breytingum bæði á hraða, undir- lagi og öðru. Þetta er erfiðasta æfing þesa seðils. Gott bað. Gufubað. 5. æfing: „Intervall“-æfing. 1. Upphitun í 25—30 min. 2. 4—5x400 m. hlaup á 75—78 sek. hvert hlaup með hvildum á milli þar til púlsinn nær 120—124 slögum. 3. 3—4x400 m. hlaup á 70—73 sek. hvert hlaup, en nú með 4—8 mín. hvíldum á milli. 4. Létt skokk og stuttir sprettir eftir eigin geðþótta i 10—15 mín. og æfingin end- ar með 5—10 min. skokki. Gott bað. 5000—10000 m. hlauparar Æfingar 6 sinnum i viku hverri eða alls 18 eftir þessum seðli. Reynið að æfa reglulega og hugsið vel um að hlaupa ætíð létt og afslappað með góðri stöðu líkamans, ekki of miklum framhalla né alveg fattir. Staða líkamans er bezt eðli- leg og eilítið framávið. Reynið að temja ykkur armsveiflur, sem þið þreytist ekki af, ekki of stórar né heldur of langt niður með hliðum í armsveiflunni, sem þið reynið að hafa mjög mjúka og næstum eingöngu með hreyfingu í axlarlið. Gætið þess að koma ekki niður í skref- inu of hátt upp á tábergið. 1. æfing: 1. Langhlaup i 90 mín. þar sem fyrstu 20 mín. eru upphitunar jogg og léttar SKINFAXl 29

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.