Skinfaxi - 01.04.1972, Blaðsíða 5
Sambandsráðsfundur UMFÍ
LANDSMÓTIN STÆKKA
18. sambandsráðsfundur UMFÍ var
haldinn í Hótel Akranesi laugardaginn
3. júní 1972, og hófst hann kl. 9 árdegis.
Fundinn sátu 21 fulltrúi, auk gesta,
starfsmanna og stjórnar UMFÍ. Gestir
fundarins voru þeir Reynir Karlsson,
Þorsteinn Einarsson, Gylfi ísaksson bæj-
arstjóri og Daníel Ágústínusson. Gest-
gjafi fundarins var Umf. Skipaskagi og
bauð formaður þess, Garðar Óskarsson,
fundarmenn velkomna í upphafi fundar.
Formaður UMFÍ, Hafsteinn Þorvaldsson
setti fundinn og tilnefndi þá Svein Jóns-
son, UMSE og Garðar Óskarsson, Umf.
Skipaskaga fundarstjóra.
Aðalverkefni fundarins var að ganga
frá reglugerð um 15. landsmót UMFÍ, en
drög að þeirri reglugerð voru lögð fram
á síðasta sambandsþingi. Þingið vísaði
tillögunum síðan til sambandsaðilanna
svo að þau gætu kynnt sér reglugerðina
betur, enda var nokkuð um nýmæli í
henni. Skyldi jiað síðan vera verkefni 18.
sambandsráðsfundar að ganga endanlega
frá málinu. Reglugerðir landsmótanna
eru viðfangsmiklar og stöðugt þarf að
aðlaga þær nýjum tíma og aðstæðum,
enda vaxa mótin stöðugt hvað snertir
þátttakendafjölda og keppnisgreinar.
Fundurinn samþykkti að lokum ein-
róma reglugerð sem felur í sér nokkra
lengingu á landsmótinu miðað við það
sem verið hefur. Gert er ráð fyrir að
næsta landsmót hefjist um miðjan föstu-
dag og ljúki á sunnudagskvöldi. Nokkuð
var fjölgað greinum mótsins, einkum í
sundkeppninni, og einnig var samþvkkt
að taka skákkeppnina inn í stigareikn-
inginn í fyrsta sinn. Skinfaxi mun fjalla
nánar um landsmótsreglugerðina í næsta
blaði og geta um helztu nýmæli í henni.
FÉLAGSMÁLAFRÆÐSLAN
Annað verkefni fundarins var að fjalla
um framtíðarskipan fræðslumála UMFÍ,
en sá þáttur starfseminnar hefur nú ver-
Hluti fundarmanna á sambandsráðsfundinum
á Akranesi. (Ljósm.: Sig. Geirdal.)
SKINFAXI
5