Skinfaxi - 01.04.1972, Síða 9
íslandsmeistari
í víðavangshlaupi
Námskeiðsfólk i sundblaki i sundlauginni
aS Leirá.
allir mjög góða skemmtun af þáttum
þeim er fram komu.
Allt efni, sem ritað var á námsskeið-
inu um undirbúning og framkvæmd ung-
mennabúða hefur verið fjölritað fyrir
þátttakendur, svo og stutt lýsing á
skemmtiþáttum sem alls reyndust yfir
60. Auk þessa var þátttakendum útveg-
að eintak af segulbandsspólu með kvöld-
vökusöngvum.
Þessu fyrsta námskeiði hérlendis um
stjórnun og rekstur ungmennabúða er nú
lokið. Það hefur sýnt sig að mjög
var tímabært að hefja þessa fræðslu, og
er það ákveðin stefna stjórnar UMFÍ að
slík námskeið verði haldin árlega. Hefur
verið rætt um að næsta ár verði einnig
einskonar I. stigs námskeið, en síðan yrði
stefnt að því vorið 1974 að halda II. stigs
námskeið.
Stjórnin þakkar þátttakendum áhuga
þeirra. Þeir hafa lýst ánægju sinni með
námskeiðið og vonar stjórnin að þeir
megi nýta þekkingu sína, æskufólki okk-
ar til handa í starfi ungmennabúða í nú-
tíð og framtíð.
Slgurður R. Guðmundsson.
Fyrsta vlðavangshlaup íslands var háð i
snævi þöktum Laugardalnum i Reykjavik
sunnudaginn 26. marz s.l. Jón Sigurðsson,
HSK, sem verið hefur bezti langhlaupari
landsins siðustu ár, sigraði i flokki fullorð-
inna.
Á efri myndinni
er Jón (nr. 80)
ásamt Ágústi Ás-
geirssyni, ÍR, sem
varð annar.
Á myndinni til
hliðar er Jón að
keppa i 5000 m.
á Júnimóti FRÍ,
en þar sigraði
hann með yfir-
burðum.
SKINFAXI
9