Skinfaxi - 01.04.1972, Qupperneq 22
bandinu keppti í knattspyrnu í deildar-
keppni HSK. Félög innan USVS eru nú
5 talsins með um 270 félaga.
Formaður sambandsins Haukur Valdi-
marsson baðst undan endurkjöri, en
hann hefur unnið farsælt starf þessi tvö
síðastliðin ár.
í stjórn voru kosnir fyrir næsta starfs-
ár:
Formaður:
Helgi Gunnarsson, Umf. Drang.
Gjaldkeri:
Þorsteinn Gíslason, Umf. Ármann.
Ritari:
Hannes Kjartansson, Umf. Skafta.
Til vara:
Einar Klemensson, Umf. Reynir.
Reynir Ragnarsson, Umf. Drang.
Jón Júlíusson, Umf. Skafta.
51. ÁRSÞING UMSE
var haldið að Húsabakkaskóla dagana
22.-23. apríl s. 1. UMSE átti 50 ára af-
mæli á árinu og var því um afmælisþing
að ræða, enda mikið um dýrðir. Af hálfu
UMFÍ sóttu þingið þeir Hafsteinn Þor-
valdsson form. UMFÍ, og Sigurður Geir-
dal, framkvæmdastjóri samtakanna.
Þingið sóttu á milli sextíu og sjötíu full-
trúar frá 12 félögum.
Starfsemi UMSE var allgóð á síðasta
ári sem endranær, enda er UMSE eitt
traustasta og bezt skipaða héraðssam-
bandið innan UMFÍ, og er ein ástæðan til
þess efalaust sú að UMSE hefur um ára-
bil haft framkvæmdastjóra í starfi allt
árið og eins hefur UMSE haft á að skipa
óvenjustórum hópi hæfra félagsmanna til
forystustarfa.
Sveinn Jónsson, form. UMSE, setti
>>
Fulitrúar á ársþingi UMSE. (Ljósm. Geirdal).
þingið og skipaði þá Hauk Halldórsson
og Sigurður V. Sigmundsson, þingfor-
seta, en Magnús Kristinsson og Birgi
Þórðarson þingritara. Eins og fyrr segir
var þingið fjölsótt og voru umræður bæði
fjörugar og málefnalegar. Helztu um-
ræðuefni voru liðið starfsár svo og
hvernig auka mætti starfið og bæta í
framtíðinni, þá kom fram vilji þingfull-
trúa og stjórnar í þá átt að ráða í fram-
tíðinni framkvæmdastjóra í fullt starf
allt árið. Rætt var um væntanlega þátt-
töku UMFÍ í hátíðarhöldunum vegna 1100
ára afmælis íslandsbyggðar o. fl.
Að kvöldi fyrri þingdagsins var efnt til
afmælisfaðnaðar að Víkurröst á Dalvík
og mættu þar um 250 gestir. UMSE barst
fjöldi gjafa og heillaóska og fjölmargar
ræður voru fluttar. Jón Stefánsson flutti
sögu sambandsins og ýmis skemmtiatriði
voru á boðstólnum.
Þrír eldri ungmennafélagar þeir Guð-
mundur Benediktsson frá Breiðabóli,
Helgi Símonarson Þverá og Jón Stefáns-
son Dalvík voru sæmdir starfsmerki
UMFÍ og einnig var Jón Stefánsson
sæmdur gullmerki ÍSÍ.
Samkvæmið tókst með ágætum og var
UMSE til hins mesta sóma.
Stjórn UMSE skipa nú:
Formaður: Sveinn Jónsson,
Ritari: Haukur Steindórsson,
Gjaldkeri: Birgir Marinósson,
Varaformaður: Haukur Halldórsson,
Meðstjórnandi: Vilhjálmur Björnsson.
22
SKINFAXI