Skinfaxi - 01.08.1974, Síða 3
| SKINFAXI 1
Tímaril Ungmennafélags l’slands — LXV. árgangur — 4. hefti 1974. — Ritstjóri Eysteinn
Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju.
Mér sjálfum allt - eða
Islandi allt
[ nútíma þjóðfélagi hugsar því miður
fjöldi fólks helst um það að græða á
verðbólgunni. Aðferðirnar við það eru
margar. T. d. að fjárfesta í steinsteypu
eða öðrum varanlegum hlutum, en um-
fram allt að eyða meir en aflað er. Þessi
lífsgæðastefna kann ekki góðri lukku að
stýra fyrir þjóðfélagið í heild. Okkur ís-
lendingum veitir ekki af að standa sam-
an sem ein heild. Það gerum við að vísu
oft í orði, en sjaldan í verki. A. m. k. ekki
meðan fjöldinn hugsar, ég fyrst, þjóð-
félagið svo. Með öðrum orðum, hvernig
get ég grætt mest á ríkinu og komið ár
minni sem best fyrir borð.
Margar leiðir eru til að breyta þessari
lífsskoðun. Ein sú áhrifaríkasta er að
laða hugi unga fólksins inn á aðrar braut-
ir áður en peningagræðgin og einstakl-
ingshyggjan hefur náð þar yfirhöndinni.
Og í stað þess að fólk hafi að kjörorði
mér sjálfum allt, taki það sér kjörorðið
fslandi allt.
Þetta kjörorð, sem ungmennafélögin
tóku sér í upphafi, á ekki síður við í dag.
Ástandið væri nokkuð annað í voru þjóð-
félagi ef allir hefðu það kjörorð að leið-
arljósi.
Sú gleðilega þróun hefur orðið á síð-
ustu árum að ungmennafélög víða um
land hafa stóreflst. Vonandi heldur sú
þróun áfram og vissulega er ástæða fyrir
alla íslendinga að stuðla að því að svo
verði.
Þá staðreynd er rétt að hafa í huga að
mest hafa þau eflst þar sem fastur starfs-
maður vinnur að því að skipuleggja starf-
ið. Með starfi sínu laðar hann fleiri og
fleiri til virkrar þátttöku og áður en varir
er það orðið kappsmál fjölda ungs fólks
að taka þátt í sjálfboðastarfinu. Taka þátt
í því að vinna jojóðfélaginu gagn án þess
að sþyrja um daglaun að kvöldi. Starf
framkvæmdastjóra ungmennasamband-
anna er því fljótt að borga sig fyrir þjóð-
félagið.
Því er ekki úr vegi fyrir þá, sem fjár-
magninu ráða, að hugleiða hvort ekki
borgi sig að veita auknum fjárhæðum til
ungmennafélagshreyfingarinnar þannig
að öll ungmennasamböndin hafi bolmagn
til að ráða sér starfsmann. Starfsmann
sem vinni að því að fá unga fólkið til að
hugsa um þjóðfélagið í heild, en ekki
eingöngu um sjálft sig.
Magn. Ól.
SKINFAXI
3