Skinfaxi - 01.08.1974, Qupperneq 5
Á ferð og flugi
með UMFÍ
Ferðalög og fieimsóknir á milli landa
eru sífellt að verða algengari og má
segja að þannig séu þjóðimar og löndin
að færast nær hvort öðru. Þetta virðist
vera krafa tímans og hefur því komið til
kasta UMFÍ að annast fvrirgreiðslu í
þessum efnum fyrir félagsmenn og félög
sín.
Það hefur þó jafnan verið svo, að í-
þróttagarpamir hafa setið fyrir þessum
ferðalögum en félagsleiðtogamir og hinn
almenni félagsmaður hafa ekki verið
hafðir í huga þegar stofnað er til utan-
landsferða.
Nú í sumar ákvað UMFÍ að gera til-
raun með að skipuleggia ferð til Bergen
í Noregi, þar sem allt kapp yrði Iagt á að
fá sem ódýrasta flugvél fyrir stóran hóp
ungmenna sem síðan gæti hagað ferða-
lögum eða dvöl sinni í Noregi eftir eigin
geðþótta. Okkur virtist að með þessum
hætti gætu minni félög og sambönd boð-
ið félögum sínum uppá vel þegna fvrir-
greiðslu, og þama skapaðist gmndvöllur
fyrir fámenna hópa að njóta bestu kjara.
Er skemmst frá því að segja að þótt flug-
vél sú sem UMFÍ tók á leigu rúmaði alls
143 farþega þá komust mun færri en
vildu. Lang stærsti hluti þessa hóps vom
forystumenn úr félögunum og konur
þeirra eða ungir ungmennafélagar, en
einnig var nokkuð um fólk sem nú var
að kynnast starfssemi okkar í fyrsta
skipti.
Ferðin til Bergen kostaði 6.800,00 kr.
fram og til baka, og fólk gat valið um
hótelherbergi eða tjaldstæði á vegum
UMFÍ, en einnig gat það gert hvað annað
sem það vildi.
Nokkurs misskilnings gætti hjá sum-
um þátttakendunum í þá átt að þeir
héldu að þama væri um skipulagðan hóp
og skoðunarferð að ræða og UMFÍ menn
vrðu með stundaskrá á lofti og segðu
„þetta gerið þið í dag og þetta á morg-
un“, o. s. frv. En þannig var aldrei ætl-
unin að skipuleggja ferðina, heldur þann-
ig að UMFÍ sæi um ódýr fargjöld, út-
vegaði hótel eða tjaldstæði, þeim sem
vildu og hefði síðan mann á staðnum
sem aðstoðaði fólkið, gæfi upplýsingar
um hvað markvert væri að skoða og
hvemig hægt væri að komast þangað
o. s. frv. Þetta gekk þó allt saman vel og
einn vinningur er enn ótalinn sem ekki
er þó minnst virði en það er að þama
kynntust ungmennafélagar og leiðtogar
frá hinum ýmsu landshlutum og sam-
böndum og kannski var það ekki minnst
virði að nú vom konumar einnig með, og
SKINFAXI
5