Skinfaxi - 01.08.1974, Side 8
íslenskir ungmennafélagar í
unglingabúðum í Svíþjóð
Ágústa Gísladóttir
Aðfaranótt hins tuttugasta júlí hóf sig
á loft frá Keflavíkurflugvelli þota Air
Viking og stefndi til Gautaborgar. Innan-
borðs voru m. a. tuttugu íslendingar sem
voru á leið til Rauland í Noregi, þar sem
haldið var norrænt unglingamót. Hópur-
inn fór utan á vegum U.M.F.f. og var
Sólveig Sveina Sveinbjörnsdóttir farar-
stjóri.
Það var ekki laust við að okkur kitlaði
í magann á leiðinni út á flugvöll því fæst
okkar höfðu komið út fyrir landsteinanna
fyrr. Flugferðin gekk nú samt sem áður
ágætlega og enginn var flugveikur. Það
eina sem hrjáði okkur, var hellan sem
við fengum fyrir evrun þegar flugvélin
lenti í Gautaborg, en hellan sú entist okk-
ur Iíka allan daginn. Fljótlega eftir að við
komum til Gautaborgar lögðum við aftur
af stað, með lest til Osló. Lestir eru
líklega einu farartækin sem aka ýmist
afturábak eða áfram enda fannst okkur
það líka asnalegt a. m. k. til að bvrja með.
Okkur leið nú samt ágætlega, en mikið
getur fimm tíma lestarferð verið þreyt-
andi. í Osló sváfum við um nóttina á
farfuglaheimili en héldum svo af stað
snemma um morguninn til Rauland. Rau-
land, hvílíkur himnaríkisstaður. sturtur
við næstum hvert herbergi, herbergin
eins eða tveggja manna, og með upp-
búnum rúmum sem biðu eftir okkur. Eg
hafði búist við því að þurfa að sofa í
skólastofu eða einhverju þvíumlíku enda
var dásamlegt að skríða undir sæng eftir
nærri þriggja sólarhringa vöku. Það var
furðulegt hvað við vorum hress um
kvöldið, líklega of þreytt til þess að finna
fyrir þreytunni.
Það yrði efalaust of langt mál að segja
frá öllu því sem við tókum okkur fyrir
hendur svo að ég ætla að segja frá því
helsta. Ekki byrjaði fvrsti dagurinn vel,
morgunnmaturinn var svo vondur að . . .
Fjallgangan sem við fórum í var hinsveg-
ar mjög svo ágæt. Það var nú ekkert
fjall sem við gengum uppá heldur aðeins
aflíðandi heiði, a. m. k. fannst okkur ís-
lendingunum það, ég veit ekki hvað Dön-
unum fannst. Hvað um það, við komumst
upp í yfir þúsund metra hæð yfir sjávar-
máli, en reyndar var Rauland í rúmlega
sjö hundruð metra hæð. Á heimleiðinni
tevgðist all verulega úr hópnum og staf-
8
SKINFAXI