Skinfaxi - 01.08.1974, Page 11
ín furða því að við vorum farin að kynn-
ast hverju öðru svo vel og þetta var kann-
ski í síðasta skifti sem við sáumst. Það
var svo ótrúlegt að vikan væri búin, en
samt sem áður vorum við farin að þreyt-
ast og líklega eins gott að þetta var ekki
nema vika.
Á heimleiðinni fórum við með söniu
farartækjunum og við komum með, þar á
meðal með afturábak lestinni. í Gauta-
borg sváfum við á hóteli og gátum
skroppið smástund í búðir, áður en flug-
vélin fór næsta dag. Eg hugsa að það sé
sjaldgæft að tuttugu manna hópar ferðist
í strætóum og leigubílum með allt sitt
hafurtask enda starði fólkið á okkur þeg-
ar við biðum eftir strætó, ég veit ekki
hvernig farið hefði fyrir okkur ef farar-
stjórin hefði ekki verið eins góður og
hann var. A. m. k. komumst við heil á
húfi heim til íslands og getum haft eitt-
hvað skemmtilegt að minnast þegar lær-
dómsstaglið er að drepa okkur í skólan-
um.
Ágústa Gísladóttir
Landshappdrætti UMFÍ 1974
Landshappdrætti UMFÍ 1974 er nú
farið af stað og er það von manna að
félögin geti aflað sér nokkurra tekna af
sölu miðanna.
Vinningar eru glæsilegir sem fyrr og
eru að verðmæti samtals 535 þús. krónur,
út eru gefnir 16000 miðar og eru þeir
seldir á 200 kr. stvkkið. Sölulaun eru svo
80-100 kr. af hverjum miða, eða nánar
tiltekið kr. 100 til þeirra sambanda sem
selja sem svarar einum miða á félaga.
iúregið verður 1. des., en uppgjör vegna
sölu eiga að hafa borist skrifstofu UMFÍ
fyrir 15. nóv., og er áríðandi að uppgjör
berist á réttum tíma.
Skýrslur um happdrættið 1973 liafa
birst í Skinfaxa og mátti þar sjá að sölu-
laun til félaganna væru tæplega 600 þús.
kr. Þessa tölu verðum við að tvöfalda í
ár. Hér fylgir svo skrá yfir vinninga í
Landshappdrætti UMFÍ 1974.
Tjaldvagn ................ kr. 200.000
Reiðhestur ................. — 90.000
Ferð fyrir 2 til Danmerkur . . — 60.000
Ferð um hálendi íslands .. — 25.000
Skuggamyndasýningavél . . — 20.000
Málverk .................... — 20.000
Laxveiðilevfi .............. — 20.000
Símaborð.................... — 18.000
Dvöl í Skíðaskóla Keriingafj. — 15.000
Reiðhjól ................... — 15.000
Bókaflokkur................. — 14.000
Skíðabúnaður ............... — 12.000
Skólaritvél ................ — 8.000
Veiðibúnaður ............... — 8.000
íþróttabúnaður ............. — 6.000
Leikhúsferð................. — 4.000
Samtals: kr. 535.000
SKINFAXI
11