Skinfaxi - 01.08.1974, Blaðsíða 15
við þar aðallega í dansa, sem Sigríður og
Mínerva Jónsdóttir hafa safnað og skráð
víða um land. Því næst var farið vand-
lega yfir þjóðdansasýninguna í heild. Um
kvöldið fengum við að kynnast erlendum
þjóðdönsum, helzt frá Norðurlöndunum,
og var það mjög svo ánægjuleg kvöld-
stund.
Fjórða og síðasta degi námskeiðsins
var að mestu varið í, að æfa sýninguna í
öllum smáatriðum, enda var námskeið-
ið aðallega haldið vegna hennar, eins og
áður sagði. Síðla sama dag hélt svo hver
til síns heima og sjálfsagt allir glaðir í
hjarta, að minnsta kosti ég.
Á námskeiðinu kom til umræðu að
halda fleiri slík námskeið og vona ég að
það geti orðið, því að ég tel að dans yf-
irleitt, ekki sízt þjóðdansar hafi lieilbrigð
og þroskandi áhrif á alla. í því sambandi,
langar mig til að koma á framfæri, að-
dáun minni á Þjóðdansafélagi Reykjavík-
ur, vegna framtaks þess í að glæða áhuga
á þjóðdönsum og væri ekki úr vegi að
fleiri félög, ungmennafélög til dæmis,
leggðu stund á slíka starfsemi.
Ég vil svo að síðustu þakka öllum
þeim, sem að námskeiðinu stóðu og þá
fyrst og fremst okkar ágætu kennurum,
Helgu og Sigríði, fyrir þeirra framlag,
einnig Hafsteini Þorvaldssjmi og mönn-
um hans fyrir frumkvæði þeirra að nám-
skeiðinu og svo Sigurði R. Guðmunds-
syni skólastjóra á Leirárskóla og starfs-
liði hans f}'rir góða aðhlynningu.
Með danskveðju,
Anna Björnsdóttir
U.S.V.S., Vík.
Ársþing U.S.V.S. 1974
Ársþing Ungmennasambands Vestur
Skaftafellssýslu var haldið sunnudaginn
21. júlí í Leikskálum í Vík. Helgi Gunn-
arsson formaður USVS setti þingið og
bauð gesti og þingfulltrúa velkomna.
Gestir voru Guðmundur Gíslason UMFÍ
og Þórður Magnússon íþróttakennari
sambandsins í sumar. Um 20 fulltrúar
sóttu þingið.
Á þinginu var mikið rætt um liðið
starfsár og einnig var starfsáætlun næsta
árs mótuð og samþykkt, var m. a. samþ.
að láta gera merki fyrir sambandið og
stjórninni var heimilað að ráða fram-
kvæmdastjóra ef efni og aðstæður leyfa.
Á þinginu var gerð sú breyting varð-
andi stjórnaskipun að kosnar voru tvær
fastanefndir, íþróttanefnd og fjáröflun-
arnefnd. — Stjórn USVS 1974-1975 skipa
Helgi Gunnarsson form., Jón Júlíusson
ritari, Skúli Oddsson gjaldkeri.
SKINFAXI
15